Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Page 30
Vikublað 9.–11. desember 201430 Lífsstíll
M e ð í s l e
n s k um
r jóma
G A M A L D A G S
Töfraðu fram veislu með sannkölluðum hátíðarblæ
Fólk er miklu meira en flúrið
Ragnhildur og Eygló gera mastersverkefni um fólk og húðflúr þess
R
agnhildur K. B. Birgisdóttir
og Eygló Árnadóttir eru
um þessar mundir að klára
mastersverkefni sitt Fólk
og flúr í Hagnýtri ritstjórn
og útgáfu við Háskóla Íslands. Ver-
kefnið er sett upp sem heimasíðan
folkogflur.is þar sem birt eru brot úr
viðtölum við fólk um húðflúr þess
og myndir. Ætlunin er svo að halda
áfram með síðuna þegar þær hafa
skilað af sér verkefninu. Blaðamað-
ur DV hitti á Ragnhildi sem sagði
aðeins frá því sem þær eru að gera.
Gaman að heyra sögur af fólki
„Við sóttum innblástur til síðunnar
Humans of New York,“ segir Ragn-
hildur. „Síðunni er haldið úti af
manni sem fer um New York,
tekur myndir af
fólki og fær það til
að segja sögu sína.
Upphaflega byrj-
uðum við á þessu
þegar við vorum í
námskeiði sem hét
Lifandi vefrit. Þar
lærðum við að nota
alls konar miðlun-
arleiðir eins og að
vinna með mynd-
bönd, hlaðvarp, ljós-
myndun og texta og
fleira.
Við vorum hvatt-
ar til þess að vinna
með það efni sem við
höfðum áhuga á, því verkefnið yrði
aldrei eins gott annars.
Ég fór þá að hugsa um hvað mér
fyndist gaman að gera og þar sem
ég elska húðflúr, fór ég að hugsa
um hvað ég gæti gert með það. Við
ákváðum að gera hlaðvarpsverkefni
út frá því. Húðflúr er auðvitað mjög
myndrænt og flestir hefðu hugs-
að strax um að taka ljósmyndir. En
við ákváðum að vinna með hljóðið
frekar og leyfa fólki að segja sögurn-
ar sínar. Mér fannst það verkefni al-
veg geðveikt skemmtilegt og gam-
an að heyra sögurnar frá fólkinu og
hversu ótrúlega fjölbreytt fólk getur
verið.“
Erfitt að sjá fjölbreytileikann
„Íslendingar eru ótrúlega fjölbreytt-
ir en það þarf svolítið að gefa þeim
tækifæri til að sýna það. Við erum
kannski svolítið einsleit út á við og
þá sérstaklega á veturna, þegar allir
eru í úlpunum, með trefla og húfur.
Þá sést ekki eins vel hversu misjöfn
við erum.“
Þær langaði að skoða fjöl-
breytileika landans og með mynda-
vél Eyglóar að vopni fóru þær saman
í að vinna verkefnið. „Eygló hafði
ekki pælt mikið í húðflúri áður en við
unnum hlaðvarpsverkefnið saman.
Hún er ekki með neitt, né nokkur af
hennar nánustu vinum og ættingj-
um. En hún fékk mikinn áhuga á
húðflúri út frá hlaðvarpinu því það
er svo gaman að mynda það.
Ritstýrðu sjálfum sér
Þær byrjuðu lokaverkefnið með
því að auglýsa eftir fólki á Tattoo á
Íslandi-hópnum á Facebook. „Við
tókum svo meðvitaða ákvörðun um
að leyfa röddum fólksins að skína í
gegn. Við löguðum málfræðivillur
en leyfðum orðum þeirra að halda
sér. Við vildum að þetta frábæra fólk
sem tók þátt í verkefninu fengi að
vera sinn eigin karakter.
En þetta er auðvitað lokaverkefni
í ritstjórnun og við vorum því að rit-
stýra því sem við vorum að gera. Við-
tölin sem við tókum voru mislöng en
notuðum smá part af hverju sem
okkur fannst segja mest og grípa
best.“
Alltaf einhver saga
Það var ekki margt sem kom Ragn-
hildi á óvart við verkefnisgerðina,
nema hversu opið og tilbú-
ið fólk var til að ræða um
húðflúr sitt. „Langflesta sem
við töluðum við þekktum við ekk-
ert, þau voru úr öllum áttum. Það
langskemmtilegasta við allt ferlið
var hvað fólkið var fjölbreytt og svo
ótrúlega opið með lífið sitt. Húðflúr
er stór hluti af manni og það liggur
alltaf eitthvað að baki, einhver saga.
Það er ekki næstum því alltaf sem
það er einhver djúp merking á bak
við flúrið. Stundum var fólk bara að
flippa á djamminu í útlöndum. Það
er alveg jafn skemmtileg saga og
minnir fólk á ákveðin tímabil í lífinu.
Sumar sögurnar voru mjög
dramatískar og tilfinningaþrungn-
ar. Það kom mér á óvart hve fólk
var einlægt. Fólk virkar stundum
frekar lokað hér á Íslandi, það býður
enginn góðan daginn úti á götu en
í þessum viðtölum kom öll romsan
um þau þegar við spurðum.“
Fordómar gagnvart húðflúri
Það er ekki langt síðan að húðflúr
var talið tilheyra aðeins sjómönnum
og glæpamönnum og því kemur ekki
á óvart að sumt fólk verði fyrir ein-
hvers konar fordómum vegna húð-
flúrs. „Þau voru nokkrir sem höfðu
þá reynslu að fólk liti öðruvísi á þau
því þau eru með húðflúr, sérstaklega
ef þau voru í þjónustustörfum. Ein
stelpa sem við töluðum við, sem var
í snyrtifræðinámi, hafði áhyggjur af
því að hún fengi kannski ekki vinnu
hérna heima út af því hvernig hún
lítur út. Fólki finnst þetta eitthvað
skrítið og jafnvel heldur að hún sé
ekki eins góð í starfinu sínu og aðrar
sem eru ekki með flúr.
Við töluðum líka við húðflúrara
og spurðum hann hvort hann fyndi
fyrir einhverjum fordómum sem
faðir, þar sem hann á litla stelpu. En
hann sagði að öllum fyndist það bara
mjög krúttlegt, til dæmis þegar hann
sækir dóttur sína á leikskólann.“
Reyna að opna huga fólks
„Við erum ekki markvisst að reyna
að breyta hugsunarhætti Íslendinga
gagnvart húðflúri heldur kannski
meira að sýna að fólk er miklu meira
en flúrið sitt. Það var því líka með-
vituð ákvörðun um að hafa ekki
alltaf myndir af tattúum fólks í öllum
póstunum. Fólk er svo miklu meira.
Áherslan í verkefninu er fólkið, eða
„striginn“. Við vildum gera það, því
það er til fullt af síðum þar sem að-
eins er birt mynd af tattúinu og talað
um hver gerði það og kannski ein-
hver tækniatriði í myndinni. En við
vildum alveg halda okkur frá því. Þar
að auki erum við engir sérfræðingar
í tattúum, við höfum bara áhuga á
fólki.“
Ætla að halda áfram
Eins og er, eru þær að klára lokaverk-
efnið en skil eru um miðjan janúar.
„Við eigum enn eftir að skrifa skýrsl-
una um verkefnið og það er leiðin-
legasti parturinn. Við þurfum auð-
vitað að vera fræðilegar líka þar sem
þetta er mastersverkefni. Við erum
ekki að bæta við fólki á síðuna eins
og er en þegar við erum búnar er
planið að halda áfram. Við viljum
endilega að þetta verði lifandi blogg.
Fyrirkomulagið á síðunni verð-
ur þannig að við ætlum að stoppa
fólk úti á götu og fá að spjalla við
það en það mun geta haft samband
við okkur til að fá að vera með. Okk-
ur finnst það skemmtilegast,“ segir
Ragnhildur að lokum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„ Íslendingar eru
ótrúlega fjöl-
breyttir en það þarf svo-
lítið að gefa þeim tæki-
færi til að sýna það.
Ragnhildur og Eygló Kynntust þegar þær voru saman í námskeiði í Háskóla Íslands. Verkefnavinnan þar varð til þess að þær
ákváðu að gera mastersverkefnið saman.
Einn af viðmælendum Snyrtifræðineminn sagði:
„Ég hef alveg hugsað hvort það væri ekki bara auð-
veldara að hætta þessari baráttu og lita hárið á mér
rautt aftur, eins og ég er náttúrulega, og lita auga-
brúnirnar eðlilegar. En það bara er ekkert gaman.“
Ætlaði að fá sér tvo
litla teninga Annar
viðmælandi stelpnanna
sagði: „Ég fékk mér þetta
tattú af því að ég var
kölluð Dice í skólanum.
Þetta áttu bara að vera
tveir litlir teningar en í
staðinn varð þetta stór
hauskúpa með pínulitlum
teningum svo að flestir
fatta ekki tenginguna, sjá
ekki einu sinni að þetta
séu teningar.“