Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015 Meistarafélag kjötiðnaðarmanna 25 ára − félagarnir orðnir 86 en voru 23 í upphafi - allt meistarar í faginu sem stöðugt vinna að því að bæta fagmennsku í greininni Meistarafélag kjötiðnaðarmanna (MFK) heldur upp á 25 ára afmæli sitt nú um helgina en félagið var stofnað 10. febrúar 1990. Stofnfélagar voru 23, en félagsmenn í dag eru nú 86. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu: Þorvaldur Guðmundsson, Síld og fiski, formaður, Björn Ingi Björnsson, Höfn á Selfossi, varaformaður, Gísli Árnason, Afurðasölu Sambandsins, ritari, Leifur Þórsson, Sláturfélagi Suðurlands, gjaldkeri og Tómas Kristinsson, Kjötsölunni, meðstjórnandi. Árið 2009 voru félagarnir samtals 39 en þá var ákveðið að opna félagið meira og var fólk með meistararéttindi hvatt til að ganga í félagið. Meistarafélag kjötiðn- aðarmanna er félagssamtök kjötiðnaðarmeistara, sem hafa stjórnunar- ábyrgð á sínum vinnustað eða reka sitt eigið kjötvinnslu fyrir- tæki. Þeir hafa réttindi til að taka nema á námssamning og kunnáttu til að kenna þeim. Félagið er ekki eiginlegt hagsmunagæslufélag sem hefur launabaráttu á stefnuskrá sinni en þau mál eru á könnu MATVÍS, félags iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum. „Þetta er bara hópur af fólki sem hefur áhuga á því að gera kjötiðnaðinn betri,“ segir Halldór Jökull Ragnarsson, formaður MFK. „Við stefnum að því að félagatalan verði komin í 100 eftir eitt til tvö ár. Þá höfum við bætt nýju tákni við einkennisbúninginn okkar sem við notum við hátíðleg tækifæri. Það er svartur kúluhattur sem við setjum upp í staðinn fyrir hvítu hattana og verðum með á afmælishátíðinni sem haldinn verður á Reykjavík Natura Hotel.“ Þar feta íslenskir kjötiðnaðarmeistarar í smiðju kollega sinna í Bretlandi og í Danmörku. Ötulir við að grilla í þágu bænda Félagar í MFK hafa verið mjög sýnilegir á undanförnum árum, m.a. verið á þönum um allt land með grillvagn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS). Þannig hafa félagar MFK verið áberandi á ýmsum útihátíðum yfir sumartíma á Íslandi. Hafa þeir verið í náinni samvinnu við LS við að kynna íslenska lambakjötið með þessum hætti. Afstaða þeirra til þessa verkefnis er að sem kjötiðnaðarmenn, þá sé það ekki síður þeirra hagur en bænda að framleiðsla lambakjöts gangi sem best. Þannig sé þeim tryggt hráefni til að vinna úr. „Það hefur tekist mjög góð samvinna með okkur og sauðfjárbændum varðandi grillvagninn. Svo er þetta bara svo skemmtilegt,“ segir Halldór Jökull. „Fyrsta grill MFK á þessu ári verður við setningu Búnaðarþings við Hörpuna 1. mars. Á sama tíma í fyrra stóðu 13 kjötiðnaðarmeistarar við grillið við setningu Búnaðarþings.“ Til hjálpar þeim sem minna mega sín MFK stendur fyrir kynningu á íslenskum jólamat í samstarfi við kjötvinnslur ár hvert. Félagarnir hafa líka verið ötulir við að veita samfélagsþjónustu. Hluti af því göfuga starfi er úrbeining á hangikjöti fyrir hver jól fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Hafa félagar í MFK staðið að því verkefni í sjö ár í röð. Kjartan Bragason, fyrrverandi formaður MFK, segir að tilurð þessarar úrbeiningar mætti rekja til neyðarástandsins sem skapaðist í kjölfar efna hagshrunsins haustið 2008. Þá hafi þeim félögum fundist að þeir yrðu að leggja eitthvað af mörkum til að hjálpa fólki í vanda. Þá hafi komið upp sú hugmynd að reyna að fá afurðastöðvar og kjötiðnaðarfyrirtæki til að gefa hangikjöt sem félagarnir síðan úrbeinuðu og gerðu klárt til afhendingar til Mæðrastyrksnefndar. Undirtektir fyrirtækjanna voru strax miklu betri en menn þorðu að vona og hefur þetta síðan verið árlegur viðburður. Undanfarin ár hafa þeir góðfúslega fengið að nýta vel búið kennslueldhús hótel- og matvælagreina í Menntaskólanum í Kópavogi. Öflugt námskeiðahald MFK hefur staðið fyrir mörgum námskeiðum í samvinnu við Félag íslenskra kjötiðnaðarmanna (FÍK) og fyrirtæki sem þjóna og selja vörur, tæki til kjötiðnaðar. Sem dæmi um námskeið má nefna: Hrápylsugerð, Framsetning í kjötborð verslunar, Nauta- og svínakjötsúrbeining og Skinkugerð. Félagið hefur einnig staðið fyrir mörgum fyrirlestrum um málefni er tengjast kjötiðnaði. Eins hefur félagið staðið fyrir hópferðum á sýningar erlendis fyrir fagmenn og meistara. Fagkeppni kjötiðnaðarmanna Þá hefur MFK staðið fyrir fagkeppni kjötiðnaðarmanna undanfarin 22 ár. Fyrsta fagkeppni sem meistarar tóku þátt í var í Herning 1992. Í framhaldi var haldin fagkeppni hér heima annað hvert ár með danskan meistara (Jens Munck) sem yfirdómara, í framhaldi á fagkeppnum hefur íslenskur meistari séð um yfirdómarahlutverkið. Þá má geta þess að nú vinnur Ásgeir Gunnar Ásgeirsson að ritun á sögu kjötiðnaðar á Íslandi í samvinnu við FÍK. Vakning í aðsókn í kjötiðnaðargreinar Endurnýjun í stétt kjöt- iðnaðar manna hefur verið nokkuð sveiflukennd í gegnum tíðina. Halldór segir að haustið 2012 hafi nýnemar í kjötiðn hjá MK verið 24, síðan 37 árið 2013 og 34 haustið 2014. „Það er greini lega einhver vakning í gangi núna og mér sýnist að endurnýjun í menntuðum kjötiðnaðarmönnum á Íslandi sé nú í þokkalega góðum málum. Þetta unga fólk heldur síðan áfram og hefur verið duglegt í vöruþróun nýrra matvæla á markaðnum. Þar hjálpar fagkeppni Meistarafélagsins til sem við höldum á tveggja ára fresti. Þar höfum við krýnt í hvert sinn kjötmeistara Íslands, en þessa keppni höfum við haldið síðan 1992. Fyrirtækin í kjötiðnaði hafa tekið mjög góðan þátt í þessari keppni. Í síðustu keppni sem fram fór á síðasta ári var metþátttaka með nýjar vörur. Það voru 148 vörur sem komu inn í keppnina sem er töluvert mikil aukning frá því við byrjuðum aftur eftir hrun. Við slepptum keppninni sem átti að vera 2008 vegna ástandsins í þjóðfélaginu en höfðum síðan keppni 2010, 2012 og 2014. Vandmeðfarin verðlaunavara í síðustu keppni Halldór segir að það hafi komið mjög áhugaverðar og flottar vörur út úr þessari keppni. Á síðasta ári vann mjög athyglisverð vara sem lítur út eins og camembert eða sambærilegur hvítmygluostur. Enda heitir varan „Salami Camemberti“ og var jafnframt valin besta varan í flokki hrossa- eða folaldakjöts. Höfundurinn, Jón Þorsteinsson, hjá Sláturfélagi Suðurlands, hlaut fullt hús stiga fyrir þessa vöru og hlaut jafnframt titilinn kjötmeistari Íslands 2014. Þessi einstaka vara þótti sérlega góð en er afar vandmeðfarin í framleiðslu. Til stóð að hefja fjöldaframleiðslu á „Salami Camemberti“, en vandinn er að ekkert kjötiðnaðarfyrirtæki var tilbúið að hleypa slíkri framleiðslu inn í sitt rými, þar sem hluti af dæminu er myglusveppur. Engin ostagerð var heldur til í að hleypa mönnum inn með kjötvörur í sitt rými. Því þyrfti líklega sérhæfða lokaða aðstöðu fyrir framleiðslu á þessari mjög svo sérstöku vöru. Undirbúningur hafin að næstu keppni Þegar er hafin undirbúningur að næstu fagkeppni kjötiðnaðarmanna sem haldin verður í byrjun næsta árs. Verður keppnin haldin í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem Hótel- og Matvælaskólinn er einnig til húsa. Þá segir Halldór að hugmyndin sé að vera þá einnig með minni keppni sem verður meira stíluð á fyrirtækin í greininni frekar en einstaka kjötiðnaðarmenn. Fyrirmyndin er sótt til Danmerkur og er fyrirfram ákveðið að fyrirtækin keppi um eina ákveðna vörutegund eins og t.d. lambakæfu. Matið felst svo eingöngu í bragðprófun og er meiningin að draga þar félög annarra fagmanna í matvælageiranum að borðinu. Þau þrjú fyrirtæki sem komast með sína vöru í úrslit geta svo skreytt sig með þeim árangri. Heimaframleiðsla komin víða en oft skortur á eftirliti Eftir efnahagshrunið 2008 fór af stað ákveðin vakning um að kjötframleiðendur hjálpuðu sér meira sjálfir og er Beint frá býli m.a. afrakstur af því. Halldór segir að ákveðnar reglugerðir séu um slíka heimaframleiðslu bænda. Ef menn hafa farið á námskeið og séu með alla aðstöðu í lagi þá megi þeir framleiða ákveðnar vörur sjálfir og selja ef íbúafjöldinn á þeirra markaðssvæði er ekki meiri en um 100 manns. Ef selja eigi á stærra markaðssvæði þá er gerð krafa um að við framleiðsluna starfi sveinn eða meistari í greininni. Samkvæmt iðnaðarlögum eru kjötiðnaðarmenn lögvernduð starfsgrein. Halldór segir að þegar bændur eru komnir í meiri framleiðslu en fyrir 100 manna svæði þá sé eftirlitið með því brotakennt. „Það er sýslumaður eða lögregluvaldið á hverjum stað sem á að annast eftirlit með að löggiltir fagmenn stundi framleiðsluna. Þar skortir talsvert á og við það erum við að berjast í dag,“ segir Halldór. Þá bendir hann á að í verslunum í Reykjavík megi líka finna kjötvörur sem standist ekki þær kröfur sem heilbrigðiseftirlitið eigi að fylgjast með að séu uppfylltar. Telur Halldór brýnt að vanda þar betur til verka. /HKr. Formenn MFK frá upphafi 1. Formaður MFK 1990 Þorvaldur Guðmundsson. 2. formaður MFK 1991 Björn Ingi Björnsson. 3. formaður MFK 1994 Thorvald K. Imsland. 4. formaður MFK 2000 Níels Hjaltason. 5. formaður MFK 2004 Björk Guðbrandsdóttir. 6. formaður MFK 2008 Kristján G. Kristjánsson. 7. formaður MFK 2010 Kjartan Bragason. 8. formaður MFK 2014 Halldór Jökull Ragnarsson. Halldór Jökull Ragnarsson, núverandi formaður MFK, við Grillvagn Landssamtaka sauðfjárbænda á Bændadegi á Þingeyri í júlí 2013. Myndir / HKr. Kjötiðnaðarmeistarar afhenda Ragnhildi Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar, afrakstur vinnu sinnar við úrbeiningu á hangikjöti fyrir jólin 2013. Lengst til hægri er Kjartan H. Bragason, þáverandi formaður MFK, og lengst til hægri er Halldór Jökull Ragnarsson, núverandi formaður félagsins. Jón Þorsteinsson, hjá Sláturfélagi Suðurlands, var krýndur kjötmeistari Íslands í fagkeppni MFK 2014.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.