Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015 Fróðleiksbásinn Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur Kryddjurtir – þrjár kulsæknar frá Miðjarðarhafsströndum RÓSMARÍN, Rosmarinus officinalis, vex við sjávarsíðuna allt í kringum Miðjarðarhaf. Nafnið þýðir „sjávardögg“ bókstaflega og plantan er sígrænn hálfrunni með upprúlluðum blöðum sem minna ekki lítið á barrnálar. „There's rosemary; that's for remembrance. Pray, love, remember“ leggur Shakespeare Ófelíu í munn í leikritinu um Hamlet, því sú var trúin að rósmarín skerpti minnið. Því kom það ekkert á óvart þegar lesa mátti um það á netinu fyrir skömmu, að við það að anda að sér rósmarínilmi skerptist minni manna um 75%. Þetta hafa vísindin sannað eftir yfirgripsmiklar og flóknar tilraunir. Og ekki bara það. Í aldanna rás hefur tiltrúin á úrbótagildi rósmarínplöntunnar verið nær takmarkalaus. Rósmarín leysir krampa og bætir meltinguna. Hún örvar starfsemi lifrarinnar og nýrnanna. Rósmarín hækkar líka blóðþrýsting. Rósmarín var notað í reykelsi við guðsþjónustur. Rósmarínseyði þótti líka gott til útvortis brúks gegn ýmsum húðákomum svo sem exemi og kossageit. Það hreinsaði og græddi. Ekki þótti rósmarínseyði síður gott hárvatn, því var núið í hársvörðinn til að koma í veg fyrir skalla. Enn í dag seljast hárvörur með rósmarínívafi eins og heitar lummur. Rósmarínolía inniheldur „thujon“, efni sem getur valdið fósturlátum, flogum og jafnvel dauða ef mikils er neytt af jurtinni. Þess vegna er rósmarín alltaf notuð með varúð í mat, enda þarf ekki mikið af henni, því hún er bragðsterk. Sem krydd er rósmarín einkum notuð með kálfa- og lambakjöti. Sömuleiðis í fyllingar í heilsteikta fiska og fugla. Blöðin eru oft mulin saman við steiktar kjöt- eða fiskibollur. Rósmarín á líka vel við hvítkál og gulrætur. Rósmarín er hitakræf um vaxtartímann og því á mörkum þess að geta þrifist að gagni hér utandyra á sumrin. Það gengur þó yfirleitt vel í bestu sumrum sunnan- og suðvestanlands. Vel hefur gefist að rækta hana inni í glugga eða í gróðurhúsi. Á veturna má hafa rósmarín í pottum í björtum gluggum eða gróðurhúsum. En gæta skal að því að hafa ekki of heitt á henni og að stilla vökvun í hóf. Best er að vetrarhitinn liggi milli 5–10 °C en í vetrardvalanum þolir rósmarín samt eina og eina frostnótt. Rósmarín er sáð innanhúss í mars–maí. Sáningin þarf mikla birtu. Auðvelt er líka að fjölga henni með græðlingum. Margir hafa gaman af því að forma rósmarín eins og japanskt „bonsai“ en þá má ekki hafa of heitt eða rakt á plöntunum á veturna. SALVÍA, Salvia officinalis, er frá sömu slóðum og rósmarín. Eins og hún er hún sígrænn hálfrunni með gráloðnum, afar ilmsterkum blöðum. Nafnið er frá latínunnar „salvare“ sem þýðir að frelsa, græða eða lækna. Það bendir til að salvían hafi verið mikilsmetin lækningajurt. Salvía dregur saman og herðir, stoppar svita og útferð. Salvía ver fólk elli og gleymsku. Svart hár sem stöðugt er skolað úr salvíuseyði helst svart. Salvía stöðvar tannlos og heldur tönnum skjannahvítum. Þannig heldur lofrullan áfram í grasalækna- bókunum gömlu. Þó verður að hafa fyrirvara á. Í salvíunni er nefnilega talsvert thujon eins og í rósmarínplöntunni. Þess vegna er varhugavert að innbyrða mikið af henni í einu. Það þarf sem betur fer ekki mikið af salvíu til að gefa bragð í matinn. Salvía er mjög bragðsterk. Hún hefur fyrst og fremst verið notuð með feitum mat, fiski sem kjöti, reyktu og söltuðu. Hænsnakjöt og sjófuglar eiga skilið að fá salvíukvist í soðið sitt. Salvía og rósmarín vinna vel saman. Seyði af þeim hefur jákvæð áhrif á káljurtir sé því úðað yfir þær reglulega. Í erlendum bókum er mjög lofsungið að láta þessar jurtir vaxa með hvítkáli, bæði á það að hafa ljúf áhrif á bragðgæði kálsins og, sem ekki er nú síður um vert, að halda kálmaðki í skefjum. Salvía er ómissandi í hinn franska „bouquet garni“ kryddvendinum sem er svo nauðsynlegur í franskri matargerð. Salvía og rósmarín þurfa sama aðbúnað og hægt er að yfirvetra þær báðar á björtum, frostlausum stað. Salvían er þó öllu þolnari á kalda vetur og getur stundum lifað af veturinn úti undir gler- eða plastskýli. SAR, Satureja hortensis, er oft kallaður sumarsar til aðgreiningar frá annarri tegund, vetrarsar (Satureja montana), sem er fjölær kryddjurt og þrífst ekki vel hér á landi nema hugsað sé um hana eins og salvíu eða rósmarín. Nafnið satureja er dregið af skógarvættunum kersknu og kvensömu, satýrunum sem sagt er frá í goðasögnum Rómverja. Okkar form á nafngiftinni, sar, verðum við að líta á sem danskan menningararf sem er eiginlega komin til fyrir klaufaskap. Þannig var að í fyrsta skipti sem fræ af honum barst til Danmerkur kom það frá frönsku klaustri. Frakkar kalla plöntuna Sarriette og franski munkurinn sem bjó um fræið lét duga að skrifa bara skammstöfunina „SAR“ á fræbréfið. Það nafn festist við tegundina um allt Danaveldi, að Íslandi meðtöldu auðvitað! Svíar kalla jurtina Kyndel, þýskir Bohnenkraut en Bretar Savory. Sú trú hefur fylgt sarnum að hann ýti undir löngun til holdsins lystisemda og að af því sé dregin tengingin við satýrana. En aðrir hafna því að svo sé og segja að miklu heldur sé því aldeilis öfugt farið. Líka hefur það verið sagt um hann að hann dragi saman, rói, hreinsi og örvi. Hann eykur úthald og bindur vind. Sem krydd er hann hefð í alla baunarétti á meginlandi Evrópu. Á líka vel við í hrásalat, með skeldýrum og í kryddsmjör með steiktu lambakjöti. Gefur frísklegt bragð sem er einhvers staðar á milli myntu og pipars. Þurr sem nýr gengur sar vel í kjötsúpu og alls konar kjötfars ellegar bjúgnagerð. Sar og ögn af hvítlauk kryddar lifur ljúflega ásamt pipar og salti. Það er að sjálfsögðu hægt að sá sar inni á vorin, bæði til að rækta áfram í pottum eða til að planta út í garð. Hentugast er samt að sá honum gisið í sólreit í byrjun maí og uppskera hann eftir þörfum þegar líður á sumarið. Hann er best að þurrka þegar fyrstu blómin sýna lit eða rétt áður. Og nú eftir að geitungar hafa numið hér land til að vera, er gott að vita að kraminn sar dregur úr sviða og bólgum eftir stungur hungangsflugna og geitunga. Rósmarín í blóma. Salvía, státleg planta í sumarskrúða. Sar – sjaldséð kryddjurt. Atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um velferð svína sem er byggð á nýjum lögum um velferð dýra auk laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Eldri reglugerð um aðbúnað og heilbrigði svína fellur þar með úr gildi. Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð og heilbrigði svína með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Í anda hinna nýju laga um velferð dýra er sérstaklega tekið fram að leitast skuli við að svín geti lifað í samræmi við sitt eðlilega atferli eins og framast er kostur. Reglugerðin tilgreinir lágmarkskröfur um einstök atriði. Meðal nýmæla má nefna að gerð er krafa til allra sem halda svín að þeir afli sér grunnþekkingar á þörfum og umönnun svína, að auki þarf umráðamaður tiltekins svínahalds skv. viðauka að hafa sérstaka þekkingu, í formi náms eða reynslu af svínabúskap. Ný ákvæði um aflífun, handsömun og rekstur er að finna í nýrri reglugerð, t.d. verður ekki lengur heimilt að reka svín með því að nota tæki sem gefa frá sér rafstuð. Ný reglugerð gerir ráð fyrir að svín geti einnig verið haldin úti sem er nýmæli frá fyrri reglugerð, en hún tók eingöngu til svínahalds innandyra. Margar breytingar hafa verið gerðar varðandi kröfur um lágmarksrými svo sem um stærð stía og bása. Þar má nefna að lágmarksstærð á stíu fyrir einn gölt er nú 6 m2 í stað 5 m2 áður og lágmarksstærð gotstíu er nú 6 m2 í stað 4,5 m2 áður. Hins vegar er leyfður aukinn þéttleiki hjá eldisgrísum sem vega 21 til 110 kg og það sama á við um gyltur sem haldnar eru í litlum hópum í lausagöngu (10 gyltur eða færri). Lágmarksbreidd skammtímabása hefur breyst á þann veg að halda má unggyltur á 60 sm breiðum básum í stað 65 sm áður, en breidd skammtímabása fyrir fanggyltur verður áfram 65 sm. Dagafjöldi sem heimilt er að halda gyltur í gotbásum hefur verið lengdur úr 7 dögum eftir got í 28 daga eftir got. R e g l u g e r ð i n g e f u r svínabændum svigrúm í 10 ár til að breyta úr básahaldi (sem viðvarandi vistarverum) yfir í lausagöngu, en þó með þeim fyrirvara að básarnir þrengi ekki um of að gyltunum. Með reglugerðinni eru þrír viðaukar. Fyrsti viðauki tilgreinir hvaða svínahald er tilkynninga- og úttektarskylt. Annar viðauki fjallar m.a. um lágmarksstærðir innréttinga (stíur, básar o.fl.). Þriðji viðauki tilgreinir hvernig eigi að meta holdafar og bógsár og hjálpar þannig við að meta ástand svína. Einnig er að finna í þriðja viðauka nánari leiðbeiningar um aflífun svína heima á bæ. Matvælastofnun, í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið, Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtök Íslands, Dýralæknafélag Íslands og Dýraverndarsamband Íslands, boðar til ráðstefnu um nýju dýravelferðarlögin og reglugerðirnar mánudaginn 23. febrúar kl. 9–15 í Ásgarði á Hvanneyri. Nánari upplýsingar á www.mast.is. Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir svínasjúkdóma ...frá heilbrigði til hollustu Nýjar reglur um velferð svína

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.