Bændablaðið - 12.02.2015, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. febrúar 2015
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Kryddjurtir – þrjár kulsæknar frá
Miðjarðarhafsströndum
RÓSMARÍN, Rosmarinus officinalis,
vex við sjávarsíðuna allt í
kringum Miðjarðarhaf. Nafnið
þýðir „sjávardögg“ bókstaflega og
plantan er sígrænn hálfrunni með
upprúlluðum blöðum sem minna
ekki lítið á barrnálar.
„There's rosemary; that's for
remembrance. Pray, love, remember“
leggur Shakespeare Ófelíu í munn í
leikritinu um Hamlet, því sú var trúin
að rósmarín skerpti minnið. Því kom
það ekkert á óvart þegar lesa mátti um
það á netinu fyrir skömmu, að við það
að anda að sér rósmarínilmi skerptist
minni manna um 75%. Þetta hafa
vísindin sannað eftir yfirgripsmiklar
og flóknar tilraunir. Og ekki bara
það. Í aldanna rás hefur tiltrúin á
úrbótagildi rósmarínplöntunnar
verið nær takmarkalaus. Rósmarín
leysir krampa og bætir meltinguna.
Hún örvar starfsemi lifrarinnar
og nýrnanna. Rósmarín hækkar
líka blóðþrýsting. Rósmarín var
notað í reykelsi við guðsþjónustur.
Rósmarínseyði þótti líka gott
til útvortis brúks gegn ýmsum
húðákomum svo sem exemi og
kossageit. Það hreinsaði og græddi.
Ekki þótti rósmarínseyði síður gott
hárvatn, því var núið í hársvörðinn til
að koma í veg fyrir skalla. Enn í dag
seljast hárvörur með rósmarínívafi
eins og heitar lummur.
Rósmarínolía inniheldur „thujon“,
efni sem getur valdið fósturlátum,
flogum og jafnvel dauða ef mikils
er neytt af jurtinni. Þess vegna er
rósmarín alltaf notuð með varúð í
mat, enda þarf ekki mikið af henni,
því hún er bragðsterk.
Sem krydd er rósmarín einkum
notuð með kálfa- og lambakjöti.
Sömuleiðis í fyllingar í heilsteikta
fiska og fugla. Blöðin eru oft
mulin saman við steiktar kjöt- eða
fiskibollur. Rósmarín á líka vel við
hvítkál og gulrætur.
Rósmarín er hitakræf um
vaxtartímann og því á mörkum
þess að geta þrifist að gagni hér
utandyra á sumrin. Það gengur þó
yfirleitt vel í bestu sumrum sunnan-
og suðvestanlands. Vel hefur gefist
að rækta hana inni í glugga eða í
gróðurhúsi.
Á veturna má hafa rósmarín
í pottum í björtum gluggum eða
gróðurhúsum. En gæta skal að því
að hafa ekki of heitt á henni og
að stilla vökvun í hóf. Best er að
vetrarhitinn liggi milli 5–10 °C en í
vetrardvalanum þolir rósmarín samt
eina og eina frostnótt.
Rósmarín er sáð innanhúss í
mars–maí. Sáningin þarf mikla birtu.
Auðvelt er líka að fjölga henni með
græðlingum. Margir hafa gaman
af því að forma rósmarín eins og
japanskt „bonsai“ en þá má ekki
hafa of heitt eða rakt á plöntunum
á veturna.
SALVÍA, Salvia officinalis, er frá
sömu slóðum og rósmarín. Eins og
hún er hún sígrænn hálfrunni með
gráloðnum, afar ilmsterkum blöðum.
Nafnið er frá latínunnar „salvare“
sem þýðir að frelsa, græða eða lækna.
Það bendir til að salvían hafi verið
mikilsmetin lækningajurt. Salvía
dregur saman og herðir, stoppar
svita og útferð. Salvía ver fólk elli
og gleymsku. Svart hár sem stöðugt
er skolað úr salvíuseyði helst svart.
Salvía stöðvar tannlos og heldur
tönnum skjannahvítum. Þannig
heldur lofrullan áfram í grasalækna-
bókunum gömlu. Þó verður að hafa
fyrirvara á.
Í salvíunni er nefnilega talsvert
thujon eins og í rósmarínplöntunni.
Þess vegna er varhugavert að
innbyrða mikið af henni í einu. Það
þarf sem betur fer ekki mikið af
salvíu til að gefa bragð í matinn.
Salvía er mjög bragðsterk. Hún
hefur fyrst og fremst verið notuð með
feitum mat, fiski sem kjöti, reyktu
og söltuðu. Hænsnakjöt og sjófuglar
eiga skilið að fá salvíukvist í soðið
sitt. Salvía og rósmarín vinna vel
saman. Seyði af þeim hefur jákvæð
áhrif á káljurtir sé því úðað yfir þær
reglulega.
Í erlendum bókum er mjög
lofsungið að láta þessar jurtir vaxa
með hvítkáli, bæði á það að hafa ljúf
áhrif á bragðgæði kálsins og, sem
ekki er nú síður um vert, að halda
kálmaðki í skefjum.
Salvía er ómissandi í hinn franska
„bouquet garni“ kryddvendinum
sem er svo nauðsynlegur í franskri
matargerð. Salvía og rósmarín þurfa
sama aðbúnað og hægt er að yfirvetra
þær báðar á björtum, frostlausum
stað. Salvían er þó öllu þolnari á
kalda vetur og getur stundum lifað af
veturinn úti undir gler- eða plastskýli.
SAR, Satureja hortensis, er oft
kallaður sumarsar til aðgreiningar
frá annarri tegund, vetrarsar (Satureja
montana), sem er fjölær kryddjurt
og þrífst ekki vel hér á landi nema
hugsað sé um hana eins og salvíu
eða rósmarín.
Nafnið satureja er dregið af
skógarvættunum kersknu og
kvensömu, satýrunum sem sagt er
frá í goðasögnum Rómverja. Okkar
form á nafngiftinni, sar, verðum við
að líta á sem danskan menningararf
sem er eiginlega komin til fyrir
klaufaskap. Þannig var að í fyrsta
skipti sem fræ af honum barst til
Danmerkur kom það frá frönsku
klaustri. Frakkar kalla plöntuna
Sarriette og franski munkurinn sem
bjó um fræið lét duga að skrifa bara
skammstöfunina „SAR“ á fræbréfið.
Það nafn festist við tegundina um
allt Danaveldi, að Íslandi meðtöldu
auðvitað! Svíar kalla jurtina Kyndel,
þýskir Bohnenkraut en Bretar Savory.
Sú trú hefur fylgt sarnum að
hann ýti undir löngun til holdsins
lystisemda og að af því sé dregin
tengingin við satýrana. En aðrir
hafna því að svo sé og segja að miklu
heldur sé því aldeilis öfugt farið. Líka
hefur það verið sagt um hann að hann
dragi saman, rói, hreinsi og örvi.
Hann eykur úthald og bindur vind.
Sem krydd er hann hefð í alla
baunarétti á meginlandi Evrópu. Á
líka vel við í hrásalat, með skeldýrum
og í kryddsmjör með steiktu
lambakjöti. Gefur frísklegt bragð
sem er einhvers staðar á milli myntu
og pipars. Þurr sem nýr gengur sar
vel í kjötsúpu og alls konar kjötfars
ellegar bjúgnagerð. Sar og ögn af
hvítlauk kryddar lifur ljúflega ásamt
pipar og salti.
Það er að sjálfsögðu hægt að sá sar
inni á vorin, bæði til að rækta áfram
í pottum eða til að planta út í garð.
Hentugast er samt að sá honum gisið í
sólreit í byrjun maí og uppskera hann
eftir þörfum þegar líður á sumarið.
Hann er best að þurrka þegar fyrstu
blómin sýna lit eða rétt áður. Og nú
eftir að geitungar hafa numið hér land
til að vera, er gott að vita að kraminn
sar dregur úr sviða og bólgum eftir
stungur hungangsflugna og geitunga.
Rósmarín í blóma. Salvía, státleg planta í sumarskrúða.
Sar – sjaldséð kryddjurt.
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur gefið út nýja
reglugerð um velferð svína
sem er byggð á nýjum lögum
um velferð dýra auk laga um
dýrasjúkdóma og varnir gegn
þeim. Eldri reglugerð um
aðbúnað og heilbrigði svína
fellur þar með úr gildi.
Tilgangur reglugerðarinnar er
að tryggja velferð og heilbrigði
svína með góðri meðferð, umsjá
og aðbúnaði. Í anda hinna nýju
laga um velferð dýra er sérstaklega
tekið fram að leitast skuli við að
svín geti lifað í samræmi við sitt
eðlilega atferli eins og framast
er kostur. Reglugerðin tilgreinir
lágmarkskröfur um einstök atriði.
Meðal nýmæla má nefna að
gerð er krafa til allra sem halda
svín að þeir afli sér grunnþekkingar
á þörfum og umönnun svína, að
auki þarf umráðamaður tiltekins
svínahalds skv. viðauka að hafa
sérstaka þekkingu, í formi náms
eða reynslu af svínabúskap. Ný
ákvæði um aflífun, handsömun
og rekstur er að finna í nýrri
reglugerð, t.d. verður ekki lengur
heimilt að reka svín með því að
nota tæki sem gefa frá sér rafstuð.
Ný reglugerð gerir ráð fyrir að
svín geti einnig verið haldin úti
sem er nýmæli frá fyrri reglugerð,
en hún tók eingöngu til svínahalds
innandyra.
Margar breytingar hafa verið
gerðar varðandi kröfur um
lágmarksrými svo sem um stærð
stía og bása. Þar má nefna að
lágmarksstærð á stíu fyrir einn
gölt er nú 6 m2 í stað 5 m2 áður
og lágmarksstærð gotstíu er nú 6
m2 í stað 4,5 m2 áður. Hins vegar
er leyfður aukinn þéttleiki hjá
eldisgrísum sem vega 21 til 110
kg og það sama á við um gyltur
sem haldnar eru í litlum hópum í
lausagöngu (10 gyltur eða færri).
Lágmarksbreidd skammtímabása
hefur breyst á þann veg að halda
má unggyltur á 60 sm breiðum
básum í stað 65 sm áður, en breidd
skammtímabása fyrir fanggyltur
verður áfram 65 sm. Dagafjöldi
sem heimilt er að halda gyltur í
gotbásum hefur verið lengdur úr 7
dögum eftir got í 28 daga eftir got.
R e g l u g e r ð i n g e f u r
svínabændum svigrúm í 10 ár
til að breyta úr básahaldi (sem
viðvarandi vistarverum) yfir í
lausagöngu, en þó með þeim
fyrirvara að básarnir þrengi ekki
um of að gyltunum.
Með reglugerðinni eru þrír
viðaukar. Fyrsti viðauki tilgreinir
hvaða svínahald er tilkynninga-
og úttektarskylt. Annar viðauki
fjallar m.a. um lágmarksstærðir
innréttinga (stíur, básar o.fl.). Þriðji
viðauki tilgreinir hvernig eigi að
meta holdafar og bógsár og hjálpar
þannig við að meta ástand svína.
Einnig er að finna í þriðja viðauka
nánari leiðbeiningar um aflífun
svína heima á bæ.
Matvælastofnun, í samstarfi
við atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Bændasamtök Íslands,
Dýralæknafélag Íslands og
Dýraverndarsamband Íslands,
boðar til ráðstefnu um nýju
dýravelferðarlögin og reglugerðirnar
mánudaginn 23. febrúar kl. 9–15
í Ásgarði á Hvanneyri. Nánari
upplýsingar á www.mast.is.
Vigdís Tryggvadóttir,
sérgreinadýralæknir
svínasjúkdóma
...frá heilbrigði til hollustu
Nýjar reglur um velferð svína