Bændablaðið - 26.03.2015, Side 1
6. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 26. mars ▯ Blað nr. 439 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000
Frumvarp um innflutning á sæði til að styrkja holdanautastofninn í landinu kynnt í ríkisstjórn og lagt fyrir Alþingi:
Ráðherra vill heimila innflutning
á sæði úr norskum holdanautum
Til að efla nautakjötsframleiðsluna
á Íslandi hafa ræktendur
holdanautgripa af erlendum
kynjum lagt áherslu á nauðsyn
þess að fá nýtt erfðaefni til að
styrkja stofninn sem fyrir er. Útlit
er fyrir að þetta verði að veruleika
nú í vor.
Sigurður Ingi Jóhannsson
landbúnaðarráðherra sagði á
aðalfundi Landssambands kúabænda
(LK) sem haldinn var 12. mars, að
hann ætlaði að leggja fram frumvarp
á næstunni sem muni heimila
innflutning á sæði úr norskum
holdanautum. Var frumvarpið svo
kynnt á vorfundi ríkisstjórnarinnar
20. mars.
Þarna er um að ræða frumvarp
til laga um breytingu á lögum
um innflutning dýra, nr. 54/1990,
með síðari breytingum (erfðaefni
holdanautgripa). Einnig var kynnt
þessu tengt frumvarp til laga um
breytingu á lögum um dýrasjúkdóma
og varnir gegn þeim, nr. 25/1993,
með síðari breytingum (leyfisveiting
færð til Matvælastofnunar,
innleiðing reglugerða).
Til að innflutningurinn verði
að veruleika þarf að leggja fram
frumvarp til breytinga á lögum
54/1990 á Alþingi og frestur til þess
er til 31. mars. Ef frumvörpin verða
samþykkt er vonast til að hægt verði
að hefja innflutning á næstu vikum
til sæðinga á íslenskum holdakúm
nú í sumar.
Aðalfundur LK fagnar
áformum ráðherra og væntir þess
að frumvarpið verði afgreitt á
yfirstandandi þingi.
Landssamband kúabænda hafi
leitað samvinnu við stjórnvöld um
leiðir til endurnýjunar á erfðaefni
holdanautastofnanna frá árinu 2009
en að málinu hafi miðað hægt.
Áhættumat frá Veterinærinstituttet
í Noregi er grundvallargagn í málinu
og samkvæmt niðurstöðu þess fylgir
innflutningnum hverfandi lítil áhætta
á smiti.
Þótt þetta frumvarp verði að
lögum þýðir það ekki að þar með
sé heimilað að hefja innflutning
á sæði til að rækta hér upp nýjan
mjólkurkúastofn. Það mál hefur
verið mjög umdeilt og skiptast
mjólkurkúabændur nokkuð í tvö
horn í þeim efnum. Margvísleg
sjónarmið eru þar undirliggjandi og
hefur þar meðal annars verið bent
á skyldur Íslendinga til að vernda
þann forna kúastofn sem fyrir er í
landinu sem þykir einstakur. Hafa
verið lögð fram rök fyrir því að
erfitt geti verið á erfðafræðilegum
forsendum að viðhalda stofninum
ef stór hluti kúabænda fari að
rækta annað kúakyn. Tekist hefur
verið á um þetta sem og hættu á
innflutningi kúasjúkdóma sem
íslenska kynið sé berskjaldað fyrir.
Ljóst er að kúabændur hafa mjög
sterkar skoðanir á þessum málum í
báðar áttir og óvíst hver framvindan
verður. Telja þó margir viðmælendur
blaðsins að heimild til innflutnings
á holdanautsæði veiki varnir þeirra
sem staðið hafa gegn ræktun á nýjum
mjólkurkúastofni. /VH /HKr.
− Meira um aðalfundinn á innsíðum
Rosemary Lilja Ríkharðsdóttir og Björn Henry Kristjánsson á Lambeyrum með hrútinn Henry.
Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra. Mynd / HKr.
„Burðurinn kom okkur á óvart
og var skemmtilegur og langt
frá því að vera skipulagður,“
segir Björn Henry Kristjánsson,
ráðsmaður að Lambeyrum í
Dalabyggð.
„ L a m b i ð
kom í heiminn
17. mars síðast-
liðinn og er
myndarlegur
hrútur sem
konan mín
kallar Henry.
Ærin sem átti
lambið er borin
2007 og því
komin á efri ár.“
Björn segir að tímasetning
á burði á Lambeyrum sé ekki
skipulögð út í æsar en á bænum
eru 1.600 ær. „Ég á reyndar von á
að um 20 til viðbótar beri á næstu
dögum og í kringum páska.“
Að sögn Björns dafnar ærin, sem
hann segir ekki hafa nafn, vel og
Henry litli einnig. „Hann er í alla
staði hraustur og hefur stækkað þó
nokkuð frá burði.“
Annað lamb bar að bænum
Emmubergi í Dalabyggð síðast-
liðinn sunnudag. Því er óhætt
að segja að það sé vor í lofti í
Dölunum, sauðburður sé hafinn þar
og að hann hefjist fljótlega annars
staðar á landinu. /VH
Sauðburður á Lambeyrum:
Fyrsta lamb ársins
heitir Henry
18
Þingeyska
montið vel
heppnað
„Sérsniðinn pakki
Evrópusambandsins var
ekkert annað en blekking“
28-30
Nautakjöts framleiðendur
hafa lengi beðið eftir
endurnýjun
24
Henry.