Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 17
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 S alvör Rafnsdóttir er kempa vikunnar. Salvör æfði fimleika með meistaraflokki Gerplu í hópfim- leikum en hætti ekki alls fyrir löngu. Með liðinu hampaði hún nokkrum Íslands-, bikar- og deild- armeistaratitlum og vann Norðurlandamót félagsliða í hópfimleikum árið 2013, auk þess sem hún vann Evr- ópumeistarmótið í hópfimleikum með landsliðinu árið 2012. Hún er að hefja þriðja ár í læknisfræði við HÍ og vinnur í sumar við rannsóknir hjá fyrirtækinu BioCule, auk þess að starfa sem móttökuritari á Landspítalanum í Fossvogi á kvöldin og um helgar. Salvör deilir því með lesendum hvernig afreksíþróttamaður tekst á við lífið án íþróttarinnar. Leggurðu mikið upp úr heilbrigðu líferni? Já og nei. Ég hef aldrei borðað mikinn skyndibita og við erum dugleg að elda mat úr lítið unnu hráefni. Ég hef alltaf verið dugleg að hreyfa mig og fundist gaman að gera það. Hvaða íþróttir hefur þú stundað um ævina? Ég bjó í Edinborg til fimm ára aldurs og þar var ég í balletttímum í leikskólanum og hélt því áfram eftir að við fluttum heim. Ég varð fljótt þreytt á því þar sem það var ekki nógu mikil „aksjón“ í því og síðan þá hef ég verið í fim- leikum. Ég prófaði fótbolta og badminton með fimleikum en fimleikarnir sigruðu alltaf í bar- áttunni um hug minn og hjarta. Hvers konar hreyfingu stundarðu eftir að þú hættir að æfa fimleika? Í fyrstu hreyfði ég mig lítið sem ekkert. Það var svolítið skrýtið að hætta í fimleikum þar sem það var í raun það eina sem mér fannst ég kunna. Mér fannst mjög erfitt að finna einhverja hreyfingu sem mér þótti gaman að. Fannst hall- ærislegt og leiðinlegt að fara í ræktina, það var bara ekki fyrir mig, og þar að auki var vetur og mikið að gera í skólanum. Ég hafði alltaf talað um að þegar ég hætti í fimleikum þá myndi ég fara að hlaupa og eitthvað gekk það illa hjá mér. En heppnin er með mér þar sem ég á foreldra sem ýta mér oftast af stað í hluti sem ég set í bremsu. Svo einn mánudagsmorg- uninn í vetur þá tilkynntu þau mér að ég væri skráð í hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþon- inu núna í ágúst. Ég á enn eftir að sjá það ger- ast en það er það sem ég er að æfa mig undir núna. Svo hefur mér alltaf fundist gaman að hjóla svo ég fer líka í hjólatúra annað slagið. Hversu oft í viku voru æfingar hjá þér og hversu oft hreyfirðu þig núna? Skipulagðar æfingar í fimleikunum voru fimm sinnum í viku í þrjá tíma í senn á veturna. Á sumrin komu morgunæfingar inn aukalega, tvisvar í viku. Núna hleyp ég þrisvar í viku eftir prógammi fyrir hálfmaraþonið og svo reyni ég að hreyfa mig smá inn á milli hlaupa, til dæmis að fara út að hjóla eða í göngutúra. Hvar finnurðu hvatningu til að lifa heilbrigðu lífi? Ég hef alltaf haft gaman af því að hreyfa mig og stunda ýmiss konar íþróttir. Ég hef ánægju af því að svitna smá og puða. Hluti heilbrigðs lífernis er að hreyfa sig og boðra næringarríkan mat. Síðasta árið hef ég farið úr mjög mikilli hreyfingu yfir í enga hreyfingu og þaðan yfir í hóflega hreyfingu. Af þessu lærði ég að of mikil hreyfing er slæm og engin er jafnvel verri. Á þessu ferli hef ég áttað mig á því að til að ég nái að lifa lífinu til fullnustu þá þarf ég líka að hreyfa mig. Eftir hreyfingu þá léttir yfir mér, dagurinn brotnar upp og ég endurnærist og verð tilbúnari fyrir næstu verkefni kvöldsins, hvað sem það er sem ég þarf að gera. Ég er alin upp við lítinn sem engan skyndibita, foreldrar mínir eru mjög duglegir að elda heima og ég tek með mér nesti oftast. Þar sem ég er alin upp við hollt mataræði þá finnst mér það líka best og hugsa því lítið um mat- aræðið. Hvað finnst þér mikilvægast að hafa í huga varðandi mataræði? Allt er gott í hófi, ekki á að útiloka neinn fæðuflokk. Drekka vatn, gos og áfengi eru spari! Ekki vera gikkur eða leyfa börnunum þínum að alast upp við barnafæði, þá býrðu til litla gikki. Börn eru bara litlar manneskjur og mega fá salat og sushi og allt það sem þú borðar. Þannig var ég alin upp og ég er foreldrum mínum þakk- lát fyrir það. Ég er persónulega mjög skeptísk og á móti fæðubótarefnum, almennt fæði á að duga, hollt og gott er frá náttúrunnar hendi! Hvað er uppáhalds holla snakkið þitt? Þegar ég er á hraðferð er ég ötull stuðnings- maður Corny-stykkja, þótt ég efi að þau séu holl. Svo klikkar skyrdollan seint. Ef ég hef meiri tíma finnst mér finnst allt mini-grænmeti vera æðislegt, t.d. baby-gulrætur, kirsuberjatóm- atar og litlar appelsínugular paprikur. Hvaða freistingar leyfirðu þér helst? Ís og nammi og þá sérstaklega súkku- laði. Ég hef þannig séð litla reglu á hve- nær ég leyfi mér eitthvað og hvenær ekki, er ekki allt gott í hófi? Hverjar eru helstu fyrirmyndir þínar og hvers vegna? Fyrst og fremst reyni ég að taka mér til fyrirmyndar það besta í fari fólks sem ég umgengst. Þrátt fyrir það þá eru mínar helstu fyrirmyndir foreldrar mínir, Rafn Benediktsson og Hildur Kristjánsdóttir. Mér finnst þau vera stórkostleg og ég vil líkjast þeim sem mest. Þau eru bæði virkilega klárar, jákvæðar og hjartahlýjar manneskjur sem gera allt sem þau taka sér fyrir hendur meistaralega vel. Þetta eru þeir eiginleikar sem ég vil búa yfir. Aðrar fyrirmyndir mínar eru meðal annars systkini mín, móðursystir mín og bestu vin- konur mínar. Þessir ein- staklingar eru fyrirmyndir mín- ar á mismunandi sviðum og stöðum lífsins vegna mismunandi eiginleika þeirra. Hvaða ráð hefurðu handa afreksíþróttamönnum sem eru að breyta um takt eða að hætta að æfa og keppa? Þetta er erfitt í byrjun, hægt og rólega gerirðu þér grein fyrir því hvað lífið hefur upp á mikið að bjóða. Þetta er ekki bara ein- hver þvæla sem fólk segir. Þú býrð að mjög góðri reynslu sem þú getur nýtt þér, ekki vera hrædd/ur við að gera það! Ekki gera sömu mistök og ég og draga það að hreyfa þig, það er ástæða fyrir því af hverju þér fannst svona gaman í íþróttinni þinni, meðal annars er ástæðan líklega sú að þér finnst gott að hreyfa þig, ekki gleyma því og haltu áfram að hreyfa þig. Það hjálpar þér á öðrum stöðum í lífinu. Nýttu tækifærið, próf- aðu einhverja nýja hreyfingu. Það er gaman! KEMPA VIKUNNAR SALVÖR RAFNSDÓTTIR Foreldrar til fyrirmyndar Ný rannsókn frá Cornell-háskóla leiddi í ljós að þeir sem hafa gam- an af því að prófa nýjan og óvenjulegan mat eru líklegri til að borða hollari mat en þeir sem vilja alltaf borða það sama. Einnig hafa þeir hugann meira við almenna holla lifnaðarhætti og hreyfa sig meira. Mataráhugafólk heilsusamlegra* Lífslíkur myndu stórauk-ast ef grænmeti ilmaðijafnvel og beikon. Doug Larson Það kemur líklega fæstum á óvart að streita og álag getur haft þau áhrif að löngun í óhollan, fituríkan mat eykst – nægir þar að nefna kvikmyndaklisjuna vinsælu um sam- bandsslit og rjómaís. Ný rannsókn frá Háskólanum í Flórída bendir hins vegar til þess að tengslin séu flóknari en svo. Skv. niðurstöðum rannsókn- arinnar hefur fitumagnið á lík- amanum áhrif á það hvernig brugð- ist er við streitu. Ekki eru þau áhrif góð, því þeim mun meira sem fitu- magnið er, því meiri streitu upplifir einstaklingurinn. Sú streita leiðir síðan til meira og óhollara áts, eins og fram var tekið í byrjun grein- arinnar. Fitan í líkamanum hefur áhrif á upplifun af streitu með því að senda frá sér efni sem hafa áhrif á heilann. Fituvefurinn virkar því í raun sem innkirtill og vilja sumir sérfræðingar að hann verði flokk- aður sem slíkur. Þegar ein- staklingur hefur brugðist við streit- unni með áti, er ekki ólíklegt að magn fituvefjar aukist – sem aftur hefur þau áhrif að boð hans til heil- ans magnast. Hér er því um að ræða hvimleiða hringrás sem erfitt getur verið að losna út úr. Sem fyrr er vitneskjan þó besta vopnið og gott að vera meðvitaður um áhrif streitu á matarvenjur. Einnig má hafa það í huga að góður göngutúr getur verið mjög streitulosandi. Áhrif fituvefjar á streitu Fituvefur seytir frá sér efnum sem virka á heilann og hafa áhrif á streitu. Morgunblaðið/ÞÖK Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Full búð af flottum flísum Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæðaflokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Salvör Rafnsdóttir íþróttakona og læknanemi. Morgunblaðið/Þórður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.