Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 26
Götugrill í Garðabæ Í LITLUM BOTNLANGA Í MÝRUNUM Í GARÐABÆ BÚA FJÓRAR FJÖLSKYLDUR. BLÁSIÐ VAR TIL GÖTUVEISLU Í VIKUNNI ÞAR SEM SNÆDDIR VORU GÓMSÆTIR RÉTTIR OG GRANNATENGSLIN STYRKT. Texti og myndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Þ að viðraði vel til veisluhalda þegar nágrannarnir í botn- langa í Löngumýrinni ákváðu að hittast og kynnast betur yfir góðum mat og drykk. Fjölskyld- urnar fjórar skiptu með sér verkum og komu tvær með aðalrétt, ein sá um forrétti og önnur kom með eftir- rétti og salat. Sigríður Anna E. Nikulásdóttir og Jón Hörður Jóns- son lögðu til pall og grill og tóku vel á móti gestunum en þau höfðu dekkað borð og skreytt með fal- legum blómum. Granninn á móti, Einar Gíslason, stóð vaktina á grill- inu með Jóni en á grillinu voru fylltar beikonvafðar svínalundir sem kona Einars, Hanna Ólafsdóttir, hafði útbúið. Á grillinu voru líka ostafylltir kjúklingaleggir, einnig vafðir með beikoni. Í forrétt var bleikjuþrenna í boði Önnu og Jóns en bleikjan hafði Jón veitt nýlega. Sif Beckers-Gunnsteinsdóttir og mað- ur hennar Thomas Beckers komu færandi hendi með fallega ostaköku skreytta með kíví, ávexti með kók- osbollum sem síðar voru grillaðir og gott salat. Veislan færðist inn vegna bleytu Nú var allt til reiðu og var sest að snæðingi. Sólin skein og hafist var handa við að heitreykja bleikjuna og skála fyrir góðum grönnum. Yngsti nágranninn, Ýmir Helgi, átti eins árs afmælisdag og lék á als oddi. Þegar allir höfðu borðað yfir sig af grillmat og góðgæti dró fyrir sólu. Fallegur regnbogi sveif yfir Garða- bænum og stórir dropar féllu. Veislugestum var boðið í skjól inn í stofu hjá Sigríði Önnu og Jóni þar sem eftirréttirnir voru bornir fram. Grannar kvöddust glaðir með þeim orðum að þetta skyldi endurtekið sem fyrst. Stungið var upp á jóla- hittingi og götuveislan skyldi hér eftir vera árlegur viðburður. Morgunblaðið/Ásdís Ýmir Helgi Skúlason var kátur í örmum móður sinnar Auðar Önnu Jónsdóttur en hann fagnaði eins árs afmæli þennan dag. GÓÐIR GRANNAR HALDA VEISLU Stemningin var góð á pallinum og nutu gestirnar matarins í dásamlegu veðri.  Hjónin Jón og Sigríður Anna standa einbeitt við grillið. Matur og drykkir Próteinríkur matur í kroppinn *Líkaminn þarfnast próteins til að dafna og erþað stundum kallað byggingarefni líkamans.Prótein eru orkugjafar og eru fjórar hitaein-ingar í hverju grammi. Þau byggja upp vöðva,endurnýja frumur og styrkja ónæmiskerfið.Best er að fá prótein úr fiski, kjöti, mjólk-urmat, eggjum og baunum. Til þess að grenna sig er gott að borða hlutfallslega meira af próteinum en öðrum orkugjöfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.