Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Page 31
*Aðeins sannur vinur myndi verafullkomlega hreinskilinn
Hildur Yeoman fatahönnuður og Daníel
Björnsson myndlistarmaður eiga saman
soninn Högna Daníelsson Yeoman. Fjöl-
skyldan nýtur þess að vera saman og hafa
þau verið dugleg að flakka um heiminn. Þau
eignuðust hinsvegar nýlega tjald og stefna
að því að kynnast íslenskri náttúru betur
það sem eftir lifir sumars.
Þátturinn sem allir geta horft
á? Við eigum ekki sjónvarp en
okkur finnst gaman að fara í
bíó eða horfa á mynd saman
í tölvunni. Við höfum m.a.
verið að horfa á gömlu Bat-
man-myndirnar, Goonies,
Cry baby og Múmín-álfana.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Við erum öll
mikil matargöt, enda er Daníel frábær kokkur. Fiskur er í
miklu uppáhaldi.
Skemmtilegast að gera saman? Við elskum að fara í æv-
intýraferðir saman og skoða nýja staði, fara í sund eða
grilla með vinum okkar. Við höfum verið dugleg að ferðast til út-
landa. Svo vorum að eignast tjald og ætlum að ferðast meira um Ísland í sumar.
Borðið þið morgunmat saman? Strákarnir borða alltaf morgunmat saman
en þegar Daníel býr til eitthvað spari þá er mamman æst að taka þátt í morg-
unmatnum.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við lesum, teikn-
um, dönsum og hlustum á músík.
Hvað hafið þið gert skemmtilegt í sumar? Við fórum til Suður-Frakklands
og Ítalíu, heimsóttum vini, syntum í sjónum og skoðuðum söfn.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Ævintýraferðir
eru í miklu uppáhaldi
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
...að Ástralía er eina heimsálfan þar
sem ekki er að finna eitt einasta eldfjall?
Vissir þú...
Shrek
Náttúrubarnaskólinn er ísenn fróðleikur, skemmt-un og útivera fyrir alla
fjölskylduna,“ segir Dagrún Ósk
Jónsdóttir sem er titluð „yfirnátt-
úrubarn“ skólans. Hún segir fyrsta
sumar skólans hafa heppnast vel
fram til þessa og
markmiðið að
halda starfinu
áfram um ókomna
tíð.
„Við förum út í
náttúruna í
gönguferðir,
vinnum úr nátt-
úrunni og með
náttúruna, lærum
um jurtir og fugla, blöndum jurta-
seyði, grillum í útieldhúsi og
margt fleira,“ segir hún.
Seyði til góðrar heilsu
Aðspurð fyrir hvern skólinn sé
hugsaður segir Dagrún: „Nátt-
úrubarnaskólinn er fyrir alla, jafnt
ferðafólk og heimamenn, börn og
fullorðna. Við erum búin að fá fólk
á öllum aldri.“ Börnin segir hún
flest hafa verið á aldrinum sex til
tólf ára.
„Jurtaseyðið er úr jurtum sem
við tínum sjálf og drekkum til
góðrar heilsu, en útieldhúsið virk-
ar þannig að við grillum pulsur á
trjágreinum með brauði sem mað-
ur bakar sjálfur. Síðan er mikið
fuglalíf hérna í kring og oft mjög
skemmtilegt að fara og skoða ung-
ana. Síðan búum við til fuglahræð-
ur og gerum ýmislegt skemmti-
legt. Við erum líka búin að búa
okkur til ákveðinn viðkomustað í
gönguferðunum þar sem við stopp-
um og segjum þjóðsögur,“ segir
Dagrún aðspurð nánar út í hvað
sé gert í Náttúrubarnaskólanum.
Náttúrubarnaskólinn er með
námskeið alla fimmtudaga, sem
hefst kl. 13 og lýkur kl. 17, en þar
að auki verður síðasta helgar-
námskeið skólans í sumar haldið
dagana 22.-23. ágúst næstkomandi.
Sterk upplifun
með fuglunum
„Við höfum verið að vinna með
ákveðin þemu á fimmtudags-
námskeiðunum,“ segir Dagrún, „en
á helgarnámskeiðinu fær maður
„allan pakkann,“ ef svo má segja.
Þemun hafa meðal annars verið
fuglalíf, jurtir og galdrar.“
Dagrún segist ekki finna fyrir
fjarlægð milli barna úr borginni
og náttúrunnar, heldur meiri
áhuga á náttúrunni ef eitthvað er.
„Það kemur mér ótrúlega mikið á
óvart hvað krakkar vita mikið um
náttúruna, það virðist vera að þau
hafi mörg farið með ömmum sín-
um og öfum út í móa að tína blóð-
berg eða eitthvað í ætt við það.
Það sést kannski helst á þeim
krökkum sem hafa komið hvað
minnst út fyrir borgina að þau eru
ótrúlega spennt yfir náttúrunni.
Þeim finnst oft mjög sterk upp-
lifun að komast svona nálægt fugl-
unum, svo ég taki dæmi.“
FUGLALÍF OG JURTASEYÐI
Náttúrubörn
í allt sumar
Fyrsta sumar skólans hefur gengið vel að sögn „yfirnáttúrubarns“, en stefnt er að því að hann starfi um ókomna tíð.
Ljósmynd/Náttúrubarnaskólinn
NÁTTÚRUBARNASKÓLINN ER NÝR ÍSLENSKUR SUMARSKÓLI
Í HÓLMAVÍK ÞAR SEM BÖRN OG FULLORÐNIR LÆRA
SAMAN UM UNDUR NÁTTÚRUNNAR.
Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is
Dagrún Ósk
Jónsdóttir
Náttúran er skoðuð með tilliti til smáatriða í Náttúrubarnaskólanum. Hér er búið að skrifa flöskuskeyti.
ER EKKI ALVEG
ÖRUGGLEGA NÓG PLÁSS
Í KÆLIBOXINU?
Alvöru grillsósur sem gera gott betra.