Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 34
Tíska *Tískukvendið Victoria, sem betur er þekkt undir heitinu „Inthe frow“, svipti í vikunni hulunni af nýrri og uppfærðriheimasíðu sinni, www.inthefrow.com. Síðunnar hafði veriðbeðið með nokkurri eftirvæntingu en breska stúlkan meðfjólubláa hárið hefur verið á hraðri siglingu í tískuheimuminternetsins síðustu mánuði. Auk þess að reka heimasíðusína setur Victoria inn myndbönd á YouTube, myndir á Insta-
gram og tístir á Twitter, alls staðar sem „In the frow“. Það er
vel þess virði að athuga stíl þessarar duglegu konu nánar.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Sú kaótík fellur seint undir skilgreindan stíl – ég klæði mig eftir skapi,
tilfinningum, veðri eða tilefni. Gjarnan tek ég það sem er efst í hrúgunni
eða minnst krumpað.
Hvaða þekkta andlit finnst þér hafa flottan stíl?
Elísabet Englandsdrottning er alltaf óaðfinnanleg til fara. Hreint til
fyrirmyndar. Nema þegar hún er með fjólubláa augnskuggann, það get ég
ekki skrifað undir. Herramenn á borð við A$AP Rocky og Mads Mikkels-
en eru svo engu síðri en drottningin þegar kemur að klæðaburði.
Hvað hefur þú í huga þegar þú skoðar eða kaupir ný föt?
Ég er ömurlega hvatvís í innkaupum, þá sjaldan að ég sé flík sem mér
finnst falleg á ég til að kaupa hana án tafar. Í seinni tíð heillast ég meira
af vönduðum, endingargóðum efnum og fallegum sniðum.
Hvert er uppáhaldstrendið þitt þessa dagana?
Converse-skór við allt. Raunar alls ekki trend, en ég sé ekkert því til
fyrirstöðu að klæðast lágum strigaskóm við síðkjóla, leðurbuxur og pils.
Áttu uppáhaldsflík?
Já, það er án nokkurs vafa jógasamfestingur sem var keyptur í bestu
búð á Íslandi – Álnavörubúðinni í Hveragerði. Þessi hólkvíði alladín-
samfestingur finnst mér bæði gullfallegur og hann er líka þægilegri en
mjúkur móðurfaðmur. Hef eiginlega ekki farið úr honum síðan ég fékk
hann.
Hvað stenstu ekki að kaupa þótt þú eigir nóg af því?
Boli með alls kyns popptilvísunum. Á áreiðanlega 100 boli með myndum
af Tomma og Jenna, Star Wars, Megasi, kettinum með höttinn, Sesame
street, Clockwork orange og alls konar svona bulli. Já og New York dolls-
bol sem ég hef aldrei farið í. Alveg hreint til skammar.
Hvað er á óskalistanum?
Núna langar mig ofsalega mikið í gullfallega
peysu sem mamma mín hefur verið að prjóna
handa mér síðustu ca. 8 mánuði. Hún er
úr gráum silkilopa og ég er handviss um
að hún verður meistaraverk eins og allt sem
mamma prjónar.
Manstu eftir einhverjum tískugildrum sem þú
hefur fallið í?
Já, óteljandi mörgum. Það var nákvæmlega
ekkert gott við að bera utan á sér flennistór
tíunda áratugar vörumerki á borð við FILA og
CARHARTT. Á sama tíma var ég mikið
að vinna með 100% pólýester og nylon í
fatnaði, sem betur fer fuðraði það allt
upp á mettíma þegar eldur kom upp í
húsinu okkar. Í vissum skilningi
mikill hreinsunareldur.
Hvaða flík sérðu mest
eftir að hafa keypt?
Sé eftir því að hafa
keypt pelsa, loðfeldi og
loðhúfur. Sá seinna
ljósið hvað varðar hrotta-
skapinn í feldiðnaði,
seldi allt loðið og dettur
ekki í hug að kaupa
slíkt framar. Enda eng-
in ástæða til þegar svo ná-
kvæmar og flottar eftirlík-
ingar eru til sem engin
dýr þurfa að þjást fyrir.
KLÆÐIR SIG Í ÞAÐ SEM MINNST ER KRUMPAÐ
Útvarpskonan Guðrún
Sóley Gestsdóttir segist
hafa kaótík – ekki stíl.
Morgunblaðið/Eggert
Hætt að kaupa
loðfeldi
ÚTVARPSKONAN GUÐRÚN SÓLEY GESTSDÓTTIR ER
UMSJÓNARMAÐUR MORGUNÚTGÁFUNNAR Á RÁS 1
OG 2. UPPÁHALDSFLÍKIN HENNAR ER JÓGASAMFESTINGUR
ÚR ÁLNAVÖRUBÚÐINNI Í HVERAGERÐI OG HÚN SÉR
EKKERT AÐ ÞVÍ AÐ NOTA CONVERSE VIÐ ALLT.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Elísabet Eng-
landsdrottning
hefur sannarlega
fágaðan stíl.
Guðrún seldi loðfeldina sína og
hyggst ekki kaupa slíkt aftur.
FILA var eitt af vinsælum fata-
merkjum tíunda áratugarins -
þykir víst mátulega smart í dag.
Útvarpskonan er
veik fyrir bolum með
popptilvísunum.
Ný heimasíða In the frow opnuð í vikunni