Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 39
raunverulega virk þótti óhjákvæmilegt að allir gætu kynnt sér álagningu, sem aðrir fengu en þeir, stæði vilji eða „réttlætiskennd“ til þess. Þessi kæruheimild var felld úr lögum árið 1962. Þá var tekið fram, að eftir sem áður gætu menn komið upplýsingum um þriðja aðila áleiðis til skattsins. Það virðast einmitt vera þau sjónarmið sem yfir- völd telja sig verja hvað sem sjónarmiðum um per- sónuvernd líður. Ekki hefur verið upplýst hversu oft trúverðugar ábendingar hafa borist til skattsins eftir skoðun ein- hvers á álagninu náunga síns, né hvað skatturinn hefur haft upp úr krafsinu með aðstoð slíkra sjálf- boðaliða. Margt til fyrirmyndar Nú er raunar svo komið að skatturinn telur fram fyr- ir þorra framteljenda, þ.e. annarra en fyrirtækja og lögaðila. Það er afskaplega þægileg og virðingarverð þjónusta hjá skattyfirvöldum og dæmi um framsýni og frumkvæði. Þessi nýbreytni dregur úr villuhættu og kemur í veg fyrir tvíverknað og sparar framtelj- endum fé og fyrirhöfn. Langflestir almennir framteljendur töldu fram með þeim hætti að þeir færðu tölur af miðum frá vinnuveitendum, (um laun, frádrátt vegna lífeyris, dagpeninga, bílastyrk) frá sveitarfélaginu um fast- eignir og lóðamat, upplýsingar um farartæki, árs- yfirlit (eða innfærslu í bók) frá banka eða sparisjóði yfir á eyðublöð skattsins. Margir kviðu fyrir þessu verki. Óttuðust sennilega helst að ráða ekki nægi- lega vel við það. Kynnu að færa upplýsinar í rangan dálk eða reit, fara rangt með tölur, leggja þær vit- laust saman og þar fram eftir götunum. Það myndaðist stundum biðröð við lúgu Skattsins þegar framtalinu var skilað á síðustu metrunum. Nú sér Skatturinn einfaldlega um þetta og spyr framteljandann, sem auðvitað ber endanlega ábyrgð, hvort hann hafi nokkru við færsluna að bæta. Fjölmargir gætu öfundað þessa þjóð af svo nútíma- legu og skilvirku skattkerfi. Kapphlaup um kynningu Nú eru nokkrir fjölmiðlar sem leggja dag við nótt að birta útdrátt úr álagningarskránni og hafa af því fjár- hagslegan ávinning. Ekkert er ljótt við það, né ólög- legt. Val á einstaklingum sem birtar eru upplýsingar um er þó geðþótta val, þótt það lúti ákveðnum lög- málum og ekki efni til að álíta að neitt illt búi að baki. En ýmsir hafa efasemdir um að með þessu sé gert gagn, jafnvel þvert á móti. Þeir sem lenda í þessu vali fjölmiðlanna, sem við þetta fást, eru gjarnan flokkaðir niður eftir atvinnu- greinum. Áberandi er að lendi menn einhvern tíma inn á „listanum“ er ólíklegt að þeir sleppi þaðan nokkru sinni lifandi út. Iðulega er hlutfall „fræga fólksins“ tiltölulega hátt. En það eru fleiri ástæður en val og flokkun sem benda til að ólíklegt sé að uppljóstrarar „með ríka réttlætiskennd“ geti lagt skattinum lið eftir lestur þessara lista. Stærstur hluti „listamannanna“ eru launamenn. Fjölmennastir eru opinberir starfsmenn, starfsmenn ríkis, sveitarfélaga, starfsmenn hreinna ríkisfyrir- tækja eins sjúkrastofnana og seðlabanka og allt þar á milli og opinberra fyrirtækja sem komin eru með ohf. aftan við nafnið sitt. Þess utan eru svo launamenn sérvalinna fyrir- tækja. Upplýsingar um þesssa hópa skera ekki í augu, enda óbreyttar ár eftir ár, á meðan viðkomandi gegnir sama starfinu. Sæta aðeins launabreytingum skv. almennum kjarasamningum eða kjaraúr- skurðum. Hinir En þarna er einnig nokkur hópur manna, stundum pínulítið frægra, sem fúsum hjálparhellum skattsins gæti þótt hafa grunsamlega lágar tekjur. Þarna eru þeir sem taka laun sem verktakar eða skipta greiðslum til sín á form, svo sem arð, bein laun, bíla- styrk og eftir atvikum hlunnindi. Framtaldar launa- tekjur eru oft aðeins hluti, stundum aðeins brot, af raunverulegum ráðstöfunartekjum viðkomandi. Allt er það löglegt og ekki ástæða til að gera það tor- tryggilegt. En annað er verra. Lesendur tekjublaðanna bera hiklaust laun strípuðu launþeganna við framtalin laun síðartalda hópsins. Með birtingu sem leiðir til slíks samanburðar er verið að rugla fólk í ríminu en ekki upplýsa það. Hafi einhver í þessu 1.000-3.000 manna úrtaki tekjublaðanna reynt að sleppa betur frá álagningu en lög leyfa eru mestar líkur á því, að skatturinn sjálfur reki augun í það, en ekki einhver annar. Þannig að meint réttlætisrök birtingar álagningar eru því létt- væg. Hengdir á snúru Nú orðið eru það fáeinir fjölmiðlar sem í raun ákveða hverjir sæti hinni opinberu birtingu. Fáir aðrir nýta sér opinbera framlagningu á álagningarskrá. Allir fjölmiðlar verða að viðurkenna að stór hluti efnis þeirra er ekki endilega eitthvað sem almenn- ingur getur alls ekki verið án. Fróðleiksfýsn og heil- brigð forvitni um lífið og tilveruna gerir fólk að góð- um lesendum blaða til dæmis. Það er ekki verið að setja út á tekjublöðin. Vafa- laust er að þau uppfylla eftirspurn sem er til staðar. En það eru ekki rökin sem notuð eru þegar ákveð- ið er að ganga á svig við sjónarmið um persónuvernd og friðhelgi. Það má samþykkja að þeir, sem til að mynda hafa sóst eftir því að fá að gegna mikilvægu embætti í þágu almennings, hljóti að sætta sig við að búa við eitthvað þrengri persónuvernd en almennt gerist. Það er þegar viðurkennt t.d. með því að afmarkaðar upp- lýsingar um fjármál þingmanna liggja opinberlega fyrir. Þar ætti þó að vekja mesta athygli hve stór hluti þeirra býr við tiltölulega bága fjárhagslega afkomu. Fróðlegt væri að fá upplýst hvort einhver þekki dæmi þess að birting upplýsinga um fjárhagsleg málefni þingmanna hafi komið að gagni. Það er ekki útilokað. Fyrir sjö árum eða svo fluttu allmargir þingmenn, undir forystu Sigurðar Kára Kristjánssonar, frum- varp til laga um að fella niður heimildir um opinbera birtingu skattaákvarðana. Það náði ekki fram að ganga. En það vekur athygli að í hópi flutnings- manna voru þrír ráðherrar núverandi ríkisstjórnar. Fróðlegt verður að sjá hvaða þýðingu það hefur. Bæjarstjóri gefur í skyn Þegar hin árvissa álagning var birt í vikunni notaði bæjarstjóri Reykjanesbæjar það tækifæri til að vekja á sér athygli. Það tókst prýðilega og fjölmiðlar vitnuðu í grein hans og tóku við hann viðtöl. Bæjarstjórinn virtist telja að mikið væri um skattalegar „druslur“ í Reykjanesbæ. Varla hefði hann látið til sín taka með slíkum hætti nema að hann teldi að hans bæjarfélag skæri sig úr. Bæjarstjórinn nefndi að augljóst væri að ýmsir þeir, sem augljóslega hefðu rúm fjárráð, kæmu sér undan að greiða útsvar til bæjarins. Hann fór enn nánar út í þá sálma og sagði svo að þeir sem þarna ættu í hlut vildu þó njóta þjónustu ekki síður en þeir sem stæðu í skilum með sitt. Fróðlegt er fyrir fólk að kynna sér ummæli bæjar- stjórans. Ekki gat farið á milli mála að hann vélaði um aðila sem hann þekkti vel til. Fastlega má því gera ráð fyrir að bæjarstjórinn geri skattyfirvöldum án tafar fulla grein fyrir mál- inu. Ekki vill hann að heiðarlegir menn liggi undir grun, sem hann hefur vakið upp? Á hinn bóginn var óheppilegt að bæjarstjórinn nefndi til sögunnar að til væri fólk sem ekki greiddi fullt útsvar en vildi þó fá óskerta þjónustu, eins og þar með væri augljóst að um svikahrappa væri að ræða. Fyrirkomulagið við útsvarið er þannig í öllum sveitarfélögum, að margir íbúar greiða ekkert útsvar vegna ákvæða um tekjumörk og persónufrádrátt. Þeir íbúar sveitarfélagsins, sem greiða beina skatta til ríkisins, en það gerir minnihluti þjóð- arinnar, greiðir um leið útsvarið fyrir nefndan hóp. Því að tekjuöflunarlög tryggja að sveitarfélögin fái sitt, hvað sem tautar eða raular. Og þannig vill svo til, sem ekki er að undra, að ein- mitt þeir sem leggja ekkert útsvar til sveitarfélags- ins, eru gjarnan áberandi þegar kemur að því að deila út beinni eða óbeinni fjárhagslegri fyrirgreiðslu úr sveitarsjóði. Það kemur stundum á óvart hversu fáum er sú staðreynd ljós. Morgunblaðið/Styrmir Kári 2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.