Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 40
Viðtal
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015
Þ
að er engin lognmolla í Mána-
hrauninu í Grindavík þar sem
Sólný Pálsdóttir ljósmyndari býr
ásamt eiginmanni og fimm son-
um. Ég hef það á tilfinningunni
að það hafi aldrei verið mikið logn í kringum
þessa glaðlyndu fimm barna móður, sjálf ein
af sex systkinum. Hún reynir eftir fremsta
megni að koma sonunum í spariföt fyrir
myndatökuna og það gengur á ýmsu. Þeir
týnast út um allt hús, þessir litlu klæða sig
jafnharðan úr fötunum og elstu vilja ráða
sjálfir hverju þeir klæðast. „Einn, tveir, þrír,
fjórir, fimm,“ telur Sólný þegar hún reynir
að koma þeim saman út í hraunið fyrir aftan
hús. Er ekki erfitt að koma öllum í sparifötin
á aðfangadag? spyr blaðamaður. „Jú, við
borðuðum einu sinni á náttfötunum,“ svarar
Sveinn Ari Guðjónsson, faðir þeirra, og bros-
ir. Eftir að hafa náð að smella myndum af
mömmunni með alla drengina sína fimm
fáum við ró til að spjalla.
Söngelskur systkinahópur
Sólný er yngst af sex systkinum en 15 ár
eru á milli elsta og yngsta. Hún er dóttir út-
gerðarhjónanna Páls H. Pálssonar og Mar-
grétar Sighvatsdóttur. Þau stofnuðu útgerð-
arfélagið Vísi áður en Sólný fæddist og
fluttu þá úr Keflavík til Grindavíkur þar sem
Sólný er fædd og uppalin. „Ég svo mikill
Grindvíkingur að ég fæddist þar í heimahúsi
hjá yndislegri konu sem nú er látin, Rósa
Ljósa, og þegar mamma var að eiga mig
söng Raggi Bjarna í útvarpinu: „Magga, við
skulum eignast átta krakka“ og mamma
sagði mér alltaf þessa sögu á hverjum af-
mælisdegi mínum,“ segir Sólný og brosir að
minningunni.
Móðir hennar var mjög söngelsk og það
var mikil tónlist á heimilinu, börnin spiluðu
flest á hljóðfæri og sungu mikið. „Það var
alltaf fullt hús og mikið fjör. Mér fannst æð-
islega gaman að eiga þessi eldri systkini, ég
var langyngst og dálítið dekruð. Bræður
mínir fóru ungir á sjóinn og sigldu stundum
til Englands þegar ég var lítil og komu alltaf
færandi hendi með dúkkur og alls konar fín-
irí. Ég átti mjög góða æsku, en ég er sex ár-
um yngri en systir mín,“ segir hún.
Enn í dag er mikill samgangur á milli
systkinanna en fimm af sex búa enn í
Grindavík. Þau hittast gjarnan og syngja
saman og hafa gefið út tvo geisladiska, Lög-
in hans pabba og Lögin hennar mömmu en
þau eru saman í fjölskyldubandinu Bakkalá-
bandið. Síðasta sjómannadag héldu þau
minningartónleika um foreldra sína en þau
hefðu átt 60 ára brúðkaupsafmæli þennan
dag. Tónleikarnir voru haldnir í kirkjunni í
Grindavík fyrir fullu húsi. Sólný er með fal-
lega söngrödd sem hún hefur erft frá móður
sinni.
Óperusöngkona heima í stofu
Margét móðir hennar var heimavinnandi en
vann einnig ýmis störf hjá Vísi en aðal-
áhugamálið var tónlist. Þegar fjölskyldan
settist að í Grindavík var enginn tónlistar-
skóli í bænum og segir Sólný að móðir sín
hafi átti mikinn þátt í uppbyggingu tónlistar-
lífs í Grindavík. Hún hafði fallega söngrödd
og dreymdi um óperusöngsferil en lét sér
nægja að efla tónlistarlíf Grindvíkinga og ala
upp sex börn, enda í nógu að snúast. „Það
var alltaf draumurinn hennar en var bara
ekkert í boði, hún var auðvitað að ala upp
sex börn og byggja upp fyrirtæki,“ segir
Sólný. Mamma hennar spilaði á harmonikku
og píanó og lærði söng hjá Maríu Markan og
var í mörgum kórum. „Mamma leysti öll mál
við píanóið, ef eitthvað kom upp á settist hún
bara við píanóið. Þetta var stundum eins og
tónlistarskóli heima af því hún tók líka
krakka í kennslu á píanó og svo stofnaði hún
litla sönghópa,“ segir Sólný. „Mér finnst svo
fallegt við mömmu að hún náði að nýta allt
sem hún hafði, fyrst hún gat ekki orðið fræg
óperusöngkona úti í heimi var hún það bara
heima í stofu,“ segir hún.
Skemmtilegast á ferðalögum
Sólný fékk gott uppeldi frá ástríkum for-
eldrum en faðir hennar vann hörðum hönd-
um við fyrirtækið sitt, Vísi. „Mamma og
pabbi voru ólík en það var gott að alast upp
hjá þeim báðum. Pabbi var harður og vinnu-
samur. Hann var maður andstæðna. Svolítið
harður en átti líka mjúka hlið,“ segir Sólný,
en pabbi hennar hafði misst föður sinn í sjó-
slysi þegar hann var ellefu ára og mótaðist
mikið af því.
Sólný segir pabba sinn hafi lifað fyrir að
byggja upp gott fyrirtæki og hafi verið mjög
metnaðarfullur. Hann hafi unnið mjög mikið
og rekið bæði landvinnslu og gert út báta.
„Vinnan var númer eitt, tvö og þrjú, en fjöl-
skyldan var það líka. Yfir vertíðina var unnið
myrkranna á milli og svo á vorin var pakkað
niður og farið í ferðalög. Bestu stundirnar
með pabba voru á ferðalögum. Við áttum lít-
ið hjólhýsi og fórum oft vestur en pabbi var
frá Þingeyri. Þá kom barnið fram í honum.
Ég held að hann hafi markerast mikið af því
að missa pabba sinn svona ungur. Hann var
strax ákveðinn í því að verða skipstjóri og
setti markið mjög hátt. Hann var mikill
keppnismaður og ég sé eftir á að hann var
frumkvöðull að miklu leyti, þó hann hafi ver-
ið íhaldssamur,“ segir hún en faðir hennar
lést í febrúar á þessu ári. Sólný segir að
barnabörnin hafi dregið fram í honum mjúka
manninn og þá hafi hann sýnt tilfinningar.
Það átti eftir að sannast best þegar síðasta
barnabarnið, Hilmir, kom í heiminn.
Stór fjölskylda alltaf á dagskrá
Við stígum nú fram til nútímans en Sólný er
sjálf rík að börnum. Hún og maðurinn henn-
ar Sveinn eiga saman fimm syni á aldrinum
fjögurra ára til tvítugs þannig að það er líf
og fjör á hennar heimili, eins og forðum
daga á æskuheimilinu. Sveinn átti tvær dæt-
ur fyrir þannig að börnin eru sjö talsins.
„Ég ætlaði alltaf að eiga mörg börn,“ segir
Sólný. „Ég er eins og áður sagði yngst af
sex en maðurinn minn er líka úr barnmargri
fjölskyldu en hann er yngstur af fimm syst-
kinum og eini strákurinn, þannig að við vor-
um bæði ákveðin í að eiga stóra fjölskyldu.
Og hann var búinn að leggja sitt af mörkum
þegar við byrjuðum saman en hann átti þá
tvær yndislegar dætur þannig að við héldum
bara áfram,“ segir hún og brosir.
Sólný ákvað að flytja úr Grindavík á ung-
lingsárum og fór í Menntaskólann á Egils-
stöðum en þar kynntist hún manni sínum.
Þau hjónin kynntust í gegnum tónlistina en
Sólný söng í hljómsveit í menntó en Sveinn
var þar bassaleikari. Tónlistin hefur alltaf
tengt þau hjón saman en mikið er spilað og
sungið á heimilinu. Eftir menntaskóla lá leið-
in í kennaraháskólann og svo var haldið
heim á ný til Grindavíkur þar sem hún
kenndi við grunnskólann. Þegar Vísir keypti
fyrirtæki á Djúpavogi fluttu þau þangað, en
Sveinn vinnur hjá fjölskyldufyrirtækinu. Þau
bjuggu þar í sex ár en fluttu svo aftur til
Grindavíkur.
Fimmti sonur kom óvænt
Sólný og Sveinn eignuðust synina Guðjón,
Sighvat, Pálmar og Fjölni og allt fór nánast
eftir planinu en Sólný segir að hún hafi ætl-
Skrifað
í skýin
ÞAU ERU FJÖLBREYTT VERKEFNIN SEM SÓLNÝ PÁLSDÓTTIR FÆST VIÐ
Í LÍFINU. ÞEGAR HÚN ÁTTI ORÐIÐ FJÓRA SYNI OG TVÆR STJÚPDÆTUR
KOM LAUMUFARÞEGI SEM BREYTTI ÖLLU, EN YNGSTI SONURINN, HILMIR,
ER MEÐ DOWNS-HEILKENNI. HÚN TRÚIR AÐ HANN HAFI ÁTT AÐ
FÆÐAST OG SEGIR INNIHALDSRÍKT AÐ ALA HANN UPP EN VIÐURKENNIR
AÐ HAFA VERIÐ VERULEGA BRUGÐIÐ. HÚN RÆÐIR UM ÁFÖLLIN Í LÍFINU
AF EINLÆGNI, UM LÍFIÐ MEÐ FÖTLUÐU BARNI, UM ANDLEGT GJALDÞROT,
FORELDRAMISSI OG ÁKVÖRÐUN UM AÐ BREYTA LÍFI SÍNU.
Ljósmyndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is