Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 41
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 að að feta í fótspor móður sinnar. „Ég ætlaði að gera allt eins og mamma, að eignast fyrsta barnið 25 ára og eiga sex börn, síð- asta um fertugt. Ég næstum því náði því markmiði um fertugt, með sex börn alls, fjóra syni og tvær fósturdætur. En þá kom einn laumufarþegi þegar ég var 41 árs,“ seg- ir Sólný og hlær. Fimmti drengurinn, Hilm- ir, er með Downs-heilkenni. „Það var alls ekki á dagskrá að eiga fleiri börn en Fjölnir var þá bara eins árs og mikið eyrnabarn og hafði lítið sofið frá fæðingu. En Hilmir tók sjálfstæða ákvörðun um að fæðast inn í þessa fjölskyldu. Ég held að hann hafi setið á himnum og horft niður og hugsað: vá, fjör- ið þarna, þangað vil ég fara,“ segir Sólný og brosir að þessu en viðurkennir að heimurinn hafi farið á hvolf þegar hann fæddist. Eðlilegt í hnakkaþykktarmælingu Hilmir fæddist í Reykjavík 19. júní árið 2011 og þau hjónin voru send inn á hreiður með litla hnoðrann og allt virtist í lagi. „Þetta var fallegasta barn sem ég hafði séð og ég sá ekkert athugavert og ljósmóðirin gerði engar athugasemdir. Síðar um nóttina fór Svenna að gruna að hann væri með Downs-heilkenni og nefndi það við mig. Ég horfði á hann og skildi ekki hvað hann var að meina. Ég hafði farið í hnakkaþykktarmælingu og þetta hvarflaði ekki að mér,“ segir hún. „Samt leið mér aldrei vel á meðgöngu og fann eitthvað á mér,“ segir hún. Sólný segir að fólk hafi stundum spurt sig hvað hún hefði gert ef hún hefði fengi þær niðurstöður úr hnakkaþykktarmælingunni að hún gengi með barn með þennan auka- litning. „Ég svara þá fólki að það er ómögu- legt fyrir mig að svara þessu, en ég er í dag fegin að hafa ekki þurft að standa frammi fyrir þeirri ákvörðun. Ég er bara glöð og þakklát í dag að hafa fengið hann, hann breytti lífi mínu til hins betra, það er bara þannig. Maður fer að horfa allt öðruvísi á heiminn, þó það hljómi kannski klisjukennt,“ segir hún. Hélt að heimurinn væri hruninn Eftir að grunurinn kviknaði að hann væri með Downs fóru þau með hann á vökudeild og biðu eftir niðurstöðum lækna. Hilmir fæddist með vanþroskaðan barka og átti erf- itt með öndun en þau voru tíu daga þar. Eft- ir fimm daga var staðfest að drengurinn væri með Downs-heilkenni. „Þegar ég fékk niðurstöðurnar fékk ég áfall. Ég vissi ekkert um Downs-heilkenni og hélt að heimurinn væri hruninn,“ segir Sólný. Þá tók við langt ferli og fyrstu mánuðirnir voru erfiðir. „Það er auðvitað misjafnt hvernig fólk bregst við að eignast fatlað barn en fyrir mig var þetta áfall. Ég var að ala upp fjóra orkumikla drengi og mamma mín var á þessum tíma mjög veik af Alz- heimers,“ segir Sólný. Hún segir föður sínum hafa brugðið þegar Hilmir fæddist og var fyrst í afneitun. „Hann kom á spítalann og sagði bara: hvaða rugl er þetta í þessum læknum, þetta er fal- Sólný er glöð og þakklát fyrir synina fimm. Hér má sjá frá vinstri Sighvat 14 ára, Guðjón 20 ára, Fjölni fimm ára, Sólnýju með Hilmi fjögurra ára í fang- inu og Pálmar sem er tólf. * Stundum þegarég vaknaði ámorgnana horfði ég bara á hann og hugs- aði: hvaða barn er þetta? Ég er alveg hreinskilin með það að það tók mig tíma að læra að elska hann. 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.