Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Side 44
V
ið hófum að flytja inn vín til Ís-
lands árið 1966 og á næsta ári
verða því liðin 50 ár frá því saga
okkar og Íslands hófst,“ segir
Miguel Torres, forstjóri vínr-
isans Bodegas Torres, þegar hann sest niður
með blaðamanni í huggulegri setustofu í Ice-
landair Hotel Reykjavík Marina. „Við erum
því eflaust í hópi þeirra vörumerkja sem
lengst hafa verið hér í sölu. Ég má til með að
kíkja hingað aftur að ári til að fagna þeim
tímamótum, það er ljóst.“
Það liggur vel á hr. Torres enda er hann
nýkominn úr langri gönguferð í Land-
mannalaugum og gerir ekki minnstu tilraun
til að leyna því að hann naut útverunnar fram
í fingurgóma. „Landslagið er stórkostlegt,
veðrið var ferlegt – I loved it!“ segir hann
brosandi þegar hann er inntur eftir því hvern-
ig honum líkaði. Þeir sem komið hafa til
heimavallar Miguel Torres – sem er kata-
lónska stórborgin Barcelona – vita sem er að
þar er veður jafnan hægt og hlýtt. Tilbreyt-
ingin sem Torres upplifði, í logni sem er iðu-
lega á hraðferð, er honum bersýnilega að
skapi.
Gæði á gömlum grunni
Nafnið Torres hefur verið viðloðandi víngerð
á Spáni síðan á 17. öld en heimildir sýna að
forfeður Miguel Torres sinntu þá þegar vín-
rækt í Penedès, suðvestur af Barcelona, og
seldu hluta framleiðslunnar, sem var öll held-
ur smá í sniðum í árdaga. Bodegas Torres var
svo stofnsett árið 1870 af þeim Jaime og
Miguel Torres í bænum Vilafranca í Penedès.
Vínræktarsvæðið taldi ekki nema um hálfan
hektara í upphafi rekstursins en þeir Torres-
bræður voru ekki bara lunknir vínbændur
heldur einnig slyngir kaupmenn. Þeir sáu
snemma tækifærin sem fólust í útflutningi og
allar götur síðan hefur sú aðferðafræði verið í
öndvegi hjá Bodegas Torres. Í dag eru vínin
frá Torres seld í meira en 150 löndum um
heim allan. Hálfi hektarinn sem vínekran taldi
í upphafi hefur blásið út í 2.432 hektara; 2.000
eru á Spáni, 400 í Chile (Torres voru fyrstir
allra að hefja vínrækt í Chile) og 32 eru í
Kaliforníu, nánar tiltekið í Sonoma og Russi-
an River Valley.
Velta fyrirtækinsins nam 240 milljónum
evra – um 35,5 milljörðum íslenskra króna –
árið 2014 – og umsvifin aukast ár frá ári.
Samt er Bodegas Torres ennþá þétt fjöl-
skyldufyrirtæki sem hefur fólkið sitt í fyr-
irrúmi, lætur einskis ófreistað að auka sjálf-
bærni í rekstri og leitar í hvívetna allra leiða
til að skila afurðum sínum með sem umhverf-
isvænstum hætti. Þá leggur Torres-fjöl-
skyldan áherslu á samfélagslega ábyrgð í
starfsemi sinni á hverjum stað. Allt eru þetta
þættir sem venjulega eru látnir mæta afgangi
til að hámarka arðsemina, en viðmælandi
minn segir þetta þvert á móti auka í senn hag
og veg Bodegas Torres.
Krúnudjásnið 40 ára: Mas la Plana
Í ár fagnar vínhús Torres þeim tímamótum
að 40 ár eru frá því að ein af þeirra mikil-
vægustu afurðum, flaggskipið Mas La Plana,
kom fyrst fyrir sjónir vínáhugamanna. 2010
árgangur vínsins er sumsé sá fertugasti, svo
öllum tölum sé haldið til haga. Óhætt er að
segja að umrætt vín hafi haft afgerandi áhrif
á sögu Bodegas Torres, eins og Miguel Torr-
es rekur.
„Sé horft til baka höfum við alltaf átt okkar
spænsku þrúgur, svosem Garnacha (víðast
hvar þekktari undir nafninu Grenache) og
Cariñena (Carignan), og svo framvegis. Mark-
mið föður míns, Miguel A. Torres, á áttunda
áratugnum var samt alltaf að fram-
leiða fínt vín í efri verðflokki. Fram-
leiðsla vína á Spáni í þá daga var
nefnilega ekki sami bransinn og
hann er í dag. Hann hugsaði með
sér, að fyrst Bodegas Torres gæti
framleitt fyrirtaksvín úr
Cabernet-Sauvignon þrúgunni ann-
ars staðar í heiminum, hví þá ekki
heima á Spáni? Þar með mætti
sýna heiminum að vel væri ger-
legt að framleiða framúrskar-
andi vín á Spáni.“
Blaðamanni kemur í hug at-
riði úr ríflega 30 ára gamalli
kvikmynd sem sýnir glöggt
hvaða álit almenningur hafði
heilt yfir á spænskum vínum.
Myndin er Educating Rita frá
1983 og atriðið sem um ræðir
er þegar Rita, hárgreiðslu-
dama sem afræður að skrá
sig í öldungadeild og ljúka
prófum, hittir fyrir kennarann
sinn í kjölfar þess að hafa
ekki mætt í matarboð til
hans. Hún afsakar sig og seg-
ist einfaldlega ekki hafa kom-
ist, í rauninni vegna þess hún
taldi sig utanveltu meðal há-
menntaðra gestanna, púkalega klædd og með
óspennandi vín meðferðis. Prófessorinn er
vonsvikinn og segir hana vel hafa átt erindi í
hópinn og litlu hefði skipt þó hún hefði mætt
alls ótilhöfð með eitthvert spánskt sokkavatn
á flösku. Rita lútir höfði skömmustuleg. „Það
var reyndar spánskt.“
Hneykslið í París 1979
Síðan hefur mikið vatn – og vín – runnið til
sjávar. „Á sjöunda og áttunda áratugnum
vissi fólk almennt sáralítið um vín frá
Spáni, ólíkt því sem er í dag. Hvaða leið er
betri til að koma Spáni á
kortið en með því að
kynna til sögunnar fram-
úrskarandi vín frá Spáni?
Faðir minn sannfærði föð-
ur sinn um að leyfa sér að
gróðursetja Cabernet-
Sauvignon í vínekrunni
Mas La Plana í Penedès
og afi minn féllst á það
með semingi, þó ekki hefði
hann mikla trú á uppá-
tækinu. Þetta var um
miðjan sjöunda áratuginn
og fyrsti árgangurinn af
víninu var tilbúinn árið
1970. Afi minn var enn
ekki sannfærður um
ágæti vínsins og sagði
það einfaldlega ekki nógu gott, þó pabbi væri
viss um að það væri gott. Um þetta rifust
þeir gegnum árin uns amma tók af skarið, því
henni var farið að leiðast þófið og þrefið í
þeim feðgum. Hún lagði til að heimsins virt-
ustu vínsmakkarar fengju að kveða upp sinn
dóm með því að skrá vínið til þátttöku í Vín-
ólympíuleikum sem Gault-Millau vínhand-
bókin stóð fyrir í París árið 1979.“ Í keppn-
inni í París voru mörg nafntoguðustu vín
heimsins á boðstólum í blind-smökkun og
samkvæmt venju var búist við að einhver
Frakkinn hreppti hnossið. Þegar uppi var
staðið var það þó hvorki Château Latour né
Château Haut-Brion sem fékk hæstu einkunn
heldur Mas La Plana Gran Coronas Black
Label 1970. Vínheimurinn greip andann á lofti
enda hrikti þarna ærlega í stoðum hásætis
hinna frönsku eðalvína sem höfðu borið æg-
Spánskur
vínrisi með
eldramma
Íslandstaug
BODEGAS TORRES ER STÆRSTA VÍNGERÐ SPÁNAR OG ÞAR Á BÆ FAGNA
MENN ÞVÍ AÐ FYRIRTÆKIÐ VAR NÝLEGA VALIÐ „THE WORLD’S MOST
ADMIRED WINE BRAND,“ ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ. FORSTJÓRI FYRIRTÆKISINS
HEIMSÓTTI ÍSLAND Í VIKUNNI SEM LEIÐ OG SEGIR HÉR MEÐAL ANNARS
AF STARFSEMINNI OG STERKRI TENGINGU TORRES VIÐ ÍSLAND.
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Flaggskipið
svartklædda,
Mas la Plana
Mas La Plana vínekran er um 29 hektarar og er við ættaróðal Torres fjölskyldunnar.
Samnefnt öndvegisvín er gert eingöngu úr þrúgum sem þar vaxa og engu öðru.
Celeste er bragð-
mikið en flauels-
mjúkur tempranillo.
Vínmenning
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015