Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Síða 51
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Már Jónsson, prófessor í sagn-
fræði við Háskóla Íslands, hefur
tekið saman í bók nákvæmar
skrár fyrir eignir 96 einstaklinga
sem bjuggu á Íslandi á tímabilinu
1722-1820.
Þeirra á meðal voru holds-
veikur niðursetningur, feðgar
sem drukknuðu, rektorsfrú í
Reykjavík og örbjarga pipar-
sveinn.
Lögboðið var að skrá eignir ný-
látins fólks og sinntu hreppstjórar
því starfi með stakri prýði. Allt
var skráð, frá götóttum höttum
til slitinna næturgagna.
Bókin er hvort tveggja í senn
fræðandi og þrælfyndin aflestrar
og býður manni að íhuga hversu
gott maður hefur það miðað við
forfeður sína.
Sterbúsins
fémunir fram-
töldust þessir
Tilnefningar til Man Booker-verð-
launanna 2015 hafa verið gerðar heyr-
inkunnar. Það voru 156 bækur sem
kepptust um tilnefningar og 13 komust
í fyrstu úttekt. Þetta er í annað sinn
sem verðlaunin eru veitt til höfunda af
öllum uppruna svo fremi sem þeir skrifi
á ensku, en áður voru verðlaunin ein-
skorðuð við höfunda frá Bretlandi og
Írlandi.
Á listanum eru Bill Clegg fyrir Did
You Ever Have a Family; Anne Enright
fyrir The Green Road; Marilynne Rob-
inson fyrir Lila; Anne Tyler fyrir A Spo-
ol of Blue Thread; Andrew O’Hagan
fyrir The Illuminations; Marlon James
fyrir A Brief History of Seven Killings;
Tom McCarthy fyrir Satin Island; Sunj-
eev Sahota fyrir The Year of the Runa-
ways; Laila Lalami fyrir The Moor’s Account; Hanya Yanagihara fyrir A Little Life; Chigozie
Obioma fyrir The Fishermen; Anurada Roy fyrir Sleeping on Jupiter og Anna Smaill fyrir The
Chimes. Úrslitin verða tilkynnt 13. október næstkomandi.
MAN BOOKER 2015
1) Fjölskylda Williams Shakespeare
var ansi róttæk á sínum tíma. Einn
ættingja hans í móðurlegg, William
Arden, var handtekinn og líflátinn fyr-
ir þá sök að hafa lagt á ráðin gegn El-
ísabetu drottningu fyrstu.
2) Dóttir Shakespeare, Susanna,
var getin utan hjónabands, þrátt fyrir
nokkuð strangkristilegar venjur í Eng-
landi á þeim dögum. Eiginkona Shake-
speare, Anne Hathaway (alnafni leik-
konunnar sem prýðir myndina hér til
hliðar), var komin þrjá mánuði á leið
þegar þau gengu í það heilaga. Hún
var þá 26 ára gömul. 3) Ævisagnarit-
arar Shakespeare hafa ekki hugmynd um hvað hann gerði á árunum 1585-1592. Raunar veit
það enginn annar heldur. 4) Faðir Shakespeare fékk greitt fyrir að drekka bjór. Starfsheitið var
„ölsmakkari“ og fól í sér að hann rannsakaði gæði brauðs og maltdrykkja. 5) Ekkert upp-
runalegt Shakespeare-handrit hefur varðveist. 6) Shakespeare er ættlaus. Öll hans börn létust
barnlaus. 7) Í Stratford, sem var heimabær Shakespeare, þekktist hann ekki sem skáld né leik-
skáld heldur sem virðulegur kaupsýslumaður og leigusali.
HIN HLIÐIN
Anne Hathaway lék t.d. ensku skáldkonuna Jane Austin í
kvikmynd Julians Jarrold, Becoming Jane, árið 2007.
Frú Ráðherra - konur á ráðherra-
stól er tæplega 400 blaðsíðna rit sem
Edda Jónsdóttir og Sigrún Stef-
ánsdóttir tóku saman í tilefni af 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna á Ís-
landi.
Í bókinni segja 20 ráðherrar, meðal
annars Siv Friðleifsdóttir, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir sögu sína og
veita þannig lesendum innsýn í líf sitt,
jafnframt því sem þær deila reynslu-
sögum sínum af íslenskum stjórnmálum.
Frásögn kvennanna er einlæg og opinská. Þær segja frá
mörgu sem hefur ekki komist í almenna umræðu áður; frá
mótunarárum, viðhorfum til leiðtogahlutverks og öðru fróð-
legu.
Frú ráðherra
Frú ráðherra Siv Friðleifsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Þórunn Svein-
bjarnardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Edda Jónsdóttir, Sól-
veig Pétursdóttir, Þorgerður Katrín.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Háskólaútgáfan
stendur
í stykkinu
RJÓMINN FLEYTTUR
HÁSKÓLAÚTGÁFAN HEFUR ÁRUM
SAMAN STAÐIÐ SÍNA PLIKT Í ÚTGÁFU
MERKILEGRA BÓKA. ÞAÐ SEM AF ER
ÁRI HEFUR HVER GERSEMIN AF ANN-
ARRI KOMIÐ ÚT Á HENNAR VEGUM.
HÉR MÁ LÍTA REYKINN AF RÉTTUNUM.
Íslenskar alþýðusögur á okk-
ar tímum er safn þjóðsagna
sem Konrad Maurer safnaði
saman á ferðalagi sínu um landið
árið 1858 og gaf út á þýsku.
Safnið kemur nú út í þýðingu
Steinars Matthíassonar á vegum
Háskólaútgáfunnar í ritstjórn
Rósu Þorsteinsdóttur. Maurer
hafði mikil áhrif á þjóðsagnasöfn-
un hérlendis. Til að mynda var
hann hvatamaður að því að Jón
Árnason og Magnús Grímsson
héldu áfram söfnun sinni.
Alþýðusögur
Páll Skúlason hemspek-
ingur og fyrrum rektor Há-
skóla Íslands hafði nýlokið
við að búa bókina til
prentunar þegar hann lést í
apríl, fyrr á þessu ári.
Greinarnar sem birtast í
bókinni falla í þrjá flokka:
Stjórnmál og samfélag, til-
lfinningar og trú, siðfræði
og siðmenntun. Í flokk-
unum þremur yfirvegar Páll
meðal annars stöðu fjöl-
miðla, möguleika framtíð-
arríkisins, trúna, ellina,
siðareglur og tilgang
menntunar. Í formála bókar
segir Páll að viðleitni hans
snúist um að „semja erindi
sem fólki finnst vonandi
skemmtilegt og fræðandi
að lesa.“
Pælingar III
BÓKSALA 22.-28. JÚLÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Konan í lestinniPaula Hawkins
2 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
3 Sagas of the IcelandersÝmsir höfundar
4 Independent PeopleHalldór Laxness
5 Iceland in a BagÝmsir höfundar
6 HamingjuvegurLiza Marklund
7 Marotta’s Tropical WonderlandMillie Marotta
8 NicelandKristján Ingi Einarsson
9 Secret GardenJohanna Basford
10 DavíðsstjörnurKristina Ohlsson
Kiljur
1 Konan í lestinniPaula Hawkins
2 HamingjuvegurLiza Marklund
3 DavíðsstjörnurKristina Ohlsson
4 Blóð í snjónumJo Nesbø
5 Ljós af hafiM.L.Stedman
6 Einn plús einnJojo Moyes
7 Tapað fundiðÁrelía Eydís Guðmundsdóttir
8 Auga fyrir augaRoslund & Hellström
9 RótlausDorothy Koomson
10 NáðarstundHannah Kent