Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 9
Þjóðmál VOR 2011 7
villuhugmyndir að það væri einmitt ýmis
legt að öfunda í öðrum löndum, svo sem ör
bylgjuofna í eldhúsum og ísskápa troð fulla
af matvælum .
Í hinni mögnuðu verðlaunabók Demicks
fléttast saman frásagnir sex flóttamanna
frá Chongjin, þriðju stærstu borg Norður
Kóreu . Þetta eru frásagnir af ólýsanlegum
hryllingi, ofbeldi og kúgun, hungursneyð og
fáránlegu óréttlæti, samviskubiti þeirra sem
komust undan og lifðu af, þrautseigju og
lífsvilja þeirra sem neituðu að gefast upp, en
umfram allt lærdómsríkar sögur úr daglegu
lífi í landi sem hingað til hefur verið sveipað
leyndarhjúpi .
Hinn 9 . apríl nk . verður gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu Ice
savesamningana . Þjóðmál hvetja lesendur
sína eindregið til að segja Nei . Það er mikils
vert að fá úr því skorið fyrir dómstólum
hvort kröfur Breta og Hollendinga séu lög
leysa, ekki bara Íslands vegna heldur vegna
skipu lags bankastarfsemi til frambúðar, sbr .
fróð legar greinar Hallgríms Th . Björns son
ar og Örvars Arnarssonar í þessu hefti (bls .
53–56 og 63–69) . Það er í rauninni með
öllu for kast a nlegt að nokkur maður, sem
vill láta taka sig alvarlega, skuli mælast til
þess að Alþingi skuldbindi þjóðina til að
greiða skuld sem ekki er ljóst hvort Íslend
ingum beri að greiða og enginn veit hvað
er há . Í hinum nýja Icesavesamningi felst
bæði mikil óvissa um skuldar fjár hæðina í
erlendri mynt (þ .e . heimtur þrotabús Lands
bankans) og gríðar leg gengis áhætta þar sem
smávægilegar gengis sveiflur krón unnar gætu
steypt þjóð inni í fjár hags legt öng þveiti .
Ef vilji er til að semja um þetta mál á
ein hvern veg ber að gera það á pólitískum
forsendum . Öllum er ljóst að málið er
af hálfu vinstri stjórnar Steingríms J . og
Jóhönnu risavaxið klúður frá upphafi . Með
því að hafna nýja Icesavesamningnum
gæfist tækifæri fyrir forsætisráðherra nýrrar
ríkisstjórnar til að taka málið upp að nýju
á pólitískum forsendum, berjast með oddi
og egg fyrir málstað Íslands á alþjóðavett
vangi og fá þannig stjórnmálamenn í Bret
landi og Hollandi til að sýna sjónarmið um
Íslendinga skilning . Það er með öllu fráleitt
að fela svo veigamikið mál alfarið í hend ur
embættismanna eða keyptra málaliða í lög
fræðistétt . Með því að segja afdráttar laust
Nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni myndi
þjóð in vísa veginn til farsællar lausnar þessa
vand ræða máls .
A ð svo mæltu óska ég lesend um gleðilegra páska – um leið og ég vek athygli
á þeirri gleðilegu staðreynd að með þessu
hefti byrjar sjöundi árgangur Þjóðmála .