Þjóðmál - 01.03.2011, Page 11
Þjóðmál VOR 2011 9
kosninga til stjórnlagaþings . Hún sagði af
sér 28 . janúar 2011 .
Jóhanna Sigurðardóttir skipaði Ágúst Geir
Ágústsson, skrifstofustjóra í forsætis ráðu
neytinu og helsta lögfræði ráðgjafa sinn, for
mann hóps sem falið var að greina stöð una
eftir ákvörðun hæstaréttar og meta hvaða leið
væri vænlegust til þess að ljúka því verkefni að
endurskoða stjórnarskrána . Starfs hópurinn
var auk Ágústs Geirs skip aður einum fulltrúa
frá hverjum þing flokki .
Hinn 28 . febrúar 2010 fluttu þrír al
þing ismenn úr jafnmörgum flokkum, VG,
Hreyfingu og Samfylkingu, tillögu til þings
ályktunar um að forseti alþingis, að höfðu
samráði við forsætisnefnd þingsins, skipi
25 manna stjórnlagaráð til að taka við og
fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar og gera
tillögur um breytingar á stjórnarskránni .
Lagt er til að þeim sé boðið sæti í ráðinu sem
landskjörstjórn úthlutaði sæti í kosningu til
stjórnlagaþings 27 . nóvember 2010 en að
öðrum kosti þeim sem næstir séu í röðinni,
þó þannig að kynjahlutföll raskist ekki . Skal
ráðið skila tillögum sínum til alþingis í formi
frumvarps til stjórnarskipunarlaga fyrir
lok júní 2011 . Forseta alþingis ber að sjá
stjórnlagaráði fyrir starfsaðstöðu, starfsliði
og nauðsynlegri sérfræðiaðstoð . Kostnaður
vegna stjórnlagaráðs greiðist úr ríkissjóði
samkvæmt nánari ákvörðun alþingis .
Eftir klúðrið í stjórnlagaþings kosn ing
un um hafa ríkisstjórnarflokkarnir með að
stoð þingmanna úr stjórnarandstöðunni
markvisst leitast við að fara á svig við
ákvörðun hæstaréttar . Þegar þetta er skrifað
er óljóst, hvort meirihluti þingmanna vill
taka þátt í þeim ljóta leik .
II .
Yfir stjórnarskrármálinu svífur einsýni og frekja Jóhönnu Sigurðardóttur .
Strax eftir að hún varð forsætisráðherra,
1 . febrúar 2009, gerði hún samning
við Framsóknarflokk inn, sem veitti
minnihlutastjórn hennar stuðn ing, um
að kallað yrði saman stjórn laga þing .
Áróðurinn byggðist þá á þeim fals rökum
að hrun íslenska bankakerfisins mætti á
einhvern hátt rekja til galla á stjórn ar
skránni . Talið var mestu skipta að svipta
alþingi stjórnarskrárvaldinu .
Jóhanna hélt markvisst þannig á stjórnar
skrármálinu, eftir að hún komst til valda,
að Sjálfstæðisflokknum væri haldið frá því .
Hún braut hefðina um að unnið skyldi að
breytingum á stjórnarskránni í anda sam
stöðu allra flokka . Markmiðið með þessum
vinnubrögðum var öðrum þræði að ýta
undir þá skoðun, að sjálfstæðismenn og
þeir einir bæru ábyrgð á hruni bankanna
og afleiðingum þess . Innan Sam fylk ingar
innar, sem stóð að ríkisstjórn með Sjálf
stæðis flokknum síðustu misseri fyrir hrun,
þótti mönnum þetta hentug leið til að
skapa skarpari skil en ella milli sín og sjálf
stæðismanna .
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Fram
sóknarflokksins, valdist til forystu í nefnd
þingsins sem fjallaði um stjórnarskrármálið .
Valgerður gegndi embætti viðskiptaráð
herra á uppgangsárum útrásarvíkinga og út
þenslu árum einkavæddu bankanna . Undir
hana féllu stofnanir sem höfðu eftirlit með
samkeppni og fjármálastarfsemi . Eftir að
hún hvarf úr ríkisstjórn með sjálfstæðis
mönn um vorið 2007 reyndi hún hvað eftir
annað að koma á þá höggi, oft í hálf kveðn
um vísum . Í nefndar starfi hef ég aldrei
kynnst sam bæri legum þjösnaskap for manns
við með ferð máls og ég kynntist þarna .
Valgerður beitti öllum brögðum til að úti
loka að sam eigin legur flötur fyndist milli
fulltrúa ólíkra flokka . Þegar ásetningur
hennar varð ljós svaraði ég af hörku .
Þá furðaði mig hve langt sérfróðir menn,
sem störfuðu með stjórnarmeirihlutanum,