Þjóðmál - 01.03.2011, Page 32
30 Þjóðmál VOR 2011
an 18 mánaða eða við sölu Sjóvár . Krafan
var óverð tryggð og vaxtalaus en tryggð með
73% eignarhlut SAT eignar halds félags í
SA tryggingum . Þó er eignar halds félaginu
óheim ilt að selja hlutina fyrir lægra verð en
kaup verð án samþykkis fjár mála ráðu neyt
isins .
Skilanefnd Glitnis er reiðubúin að leggja
fram um 2,8 milljarða kr . til SAT og Ís
lands banki um 1,5 milljarða kr .
16. september 2009. SAT eignarhalds félag
kaupir hlut Glitnis í nýja félaginu og á því
90,7% hlut í SA tryggingum .
22. september 2009. Fjármálaeftirlitið heim
il ar yfirfærslu vátryggingastofna SjóvárAl
mennra trygginga hf . til SA trygg inga hf .
(SAT) að fengnu starfsleyfi þess félags, dags .
21 . september 2009 . SA trygg ingar hf .
munu yfirtaka, frá og með 1 . júní 2009, öll
réttindi og skyldur sem vátrygg inga stofn
inum fylgja . Hluthafar SA trygg inga hf .
eru Íslandsbanki hf . og SAT eignarhalds
félag hf . Eigendahlutföllin eru þannig að
Íslandsbanki á 9,3% en SAT 90,7% . SAT
er í eign Glitnis, en Seðlabankinn er sagður
hafa handveð í bréfum félagsins .
1. október 2009. Starfsemi nýs trygginga
félags hefst formlega . Tryggingastofnar eldra
félags færðir í nýtt félag .
10. nóvember 2009. Tilkynnt um ráðningu
nýs forstjóra Sjóvár, Lárusar S . Ásgeirssonar,
þar sem Hörður Arnarson hverfur til starfa
hjá Landsvirkjun eftir rúmlega 5 mánaða
starf . Lárus var áður undirmaður Harðar
hjá Marel og hafði mest unnið við sölumál
hjá félaginu .
31. desember 2009. Viðskipti vegna Sjóv
ár flytjast frá ríkissjóði til Eignasafns Seðla
banka Íslands (ESÍ) .
16. janúar 2010. Opið útboð hefst hjá Ís
landsbanka á Sjóvá, öllum opið sem upp
fylla skilyrði um fjárhagslega getu . 12 aðilar
skila inn tilboði í fyrstu umferð, í byrjun
febrúar 2010 .
14. mars 2010. Formlegar viðræður hefjast
við hóp undir forystu Heiðars Guðjóns son
ar . Kaupendahópurinn býður 80% hærra
verð en aðrir í opnu útboði Íslandsbanka á
Sjóvá . Alls sex tilboðsgjafar komust í aðra
umferð og skiluðu þeir tilboði í mars .
27. mars 2010. Kaupendahópi Heiðars
Guð jónssonar boðið til undirritunar á skrif
stofum Íslandsbanka . Skilanefnd Glitnis
stöðvar framgang málsins .
5. maí 2010. Kaupendahópnum boðið til
fundar með skilanefnd Glitnis, Ís lands
banka og ESÍ, þar sem viðskiptaáætlun
kaupenda er kynnt . Nokkrum dögum síðar
reynir Lárus S . Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár,
að fá Fram taks sjóðinn og lífeyrissjóði að
kaupum á félag inu, þvert á hagsmuni hlut
hafa og þrátt fyrir opið útboðsferli . Kaup
endahópurinn sendir formlega kvörtu n til
Íslandsbanka .
16. júní 2010. Ursus, félag að fullu í eigu
Heiðars Guðjónssonar, efnir til skulda
bréfaútboðs og gefur út bréf fyrir 480
milljónir króna . Tilgangurinn er að sækja
félag inu meira fé svo að Fjármálaeftirlitið
(FME) meti það nógu sterkt til að standa
að kaup unum að Sjóvá . Heildarhlutur
Heiðars í tilboðinu nam rúmum 3
milljörðum kr .
23. júní 2010. Áreiðanleikakönnun hefst
á Sjóvá, tryggingafræðileg, fjárhagsleg og
lögfræðileg .
10. júlí 2010. ESÍ og Íslandsbanki undirrita