Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 34
32 Þjóðmál VOR 2011
7. október 2010. Már Guðmundsson
hringir í GSMsíma Heiðars Guðjónssonar
og tjáir honum í örstuttu samtali að
samningurinn um sölu Sjóvár sé fullbúinn
á borðinu hjá sér . Hann treysti sér hins
vegar ekki til að undirrita hann því að
honum hafi verið tjáð að hugsanlega
kunni útgáfa skuldabréfa Ursus að brjóta
í bága við reglur Seðlabankans . Már segir
að Kínamúrar innan bankans valdi því að
þetta sé fyrst núna á borði hans þrátt fyrir
fréttina í Viðskiptablaðinu 19 . ágúst . Má er
tjáð að eini tilgangur útgáfunnar hafi verið
að uppfylla skilyrði svo hægt væri að kaupa
Sjóvá, engin lög, reglur eða leiðbeiningar
hafi verið brotnar . Már biður Heiðar að hafa
samband við undirmann sinn, Jón Karlsson
í Gjaldeyriseftirliti, þótt Már sé yfirmaður
Gjaldeyriseftirlitsins . Hringt er án árangurs
í Jón á símatíma gjaldeyriseftirlits á milli 9
og 12 . Heiðar sendir tölvupóst en fær engin
svör .
8. október 2010. Ritari Gjald eyris eftirlits
segir Heiðari Guðjónssyni að hann geti haft
samband við Sigríði Logadóttur, aðal lög
fræð ing Seðla bankans . Heiðar hringir strax
í hana og sendir sama tölvupóst og send ur
hafði verið Jóni Karlssyni . Heiðar full yrð ir
að ekkert sé athugavert við útgáfu skulda
bréfa Ursus og óskar skýringa . Sigríður
segir að reglur Seðlabankans um gjald
eyris viðskipti séu óttalegt torf en telur að
kannski sé þarna átt við ákveðin ákvæði, án
þess að skýra þau nánar .
15. október 2010. Heiðar lætur Sigríði
Loga dóttur og Hauk Benediktsson, fram
kvæmda stjóra ESÍ, vita af því að honum
hafi hvorki orðið ágengt við að fá samtal
við Má Guðmundsson né fengið svör frá
honum .
15. október 2010. Már Guðmundsson
hringir beint í lögfræðing kaupendahópsins,
Birgi Tjörva Pétursson, og talar við hann í
20 mínútur . Már segir þrjá kosti í stöðunni .
(1) Að samningar takist að óbreyttu, sem
hann taldi ólíklegt, (2) að hætt verði við
ferlið eða (3) að samningar takist við hópinn
án Heiðars og Ursus, sem væri líklegast til
að klára málið .
16. október 2010. Heiðar Guðjónsson
sendir Má tölvupóst og undrast að hann skuli
ekki vilja ræða við sig en hafi samt rætt í 20
mínútur við lögfræðing kaupendahópsins
þar sem lagt var til að honum yrði hent út
úr ferlinu, svo að ganga mætti frá sölunni .
17. október 2010. Heiðar Guðjónsson
sendir Má tölvupóst og segist treysta lögum
og reglum landsins, vilji Már brjóta gegn
þeim hljóti hann að taka afleiðingunum,
missi trúverðugleika Seðlabankans og
greiðslu skaðabóta . Jafnframt segir Heiðar
að hann verði á landinu frá og með miðviku
dags morgni 20 . október .
22. október 2010. Heiðar Guðjónsson,
Reim ar Pétursson hrl . og Birgir Tjörvi
Péturs son, lögmaður kaupendahópsins,
koma til fundar í Seðlabankanum klukk
an 14 .30 en á fundinum eru Már, Sigríður
Logadóttir og Arnór Sighvatsson aðstoðar
seðlabankastjóri . Þennan sama dag rann
út frestur kaupendahópsins til ESÍ um að
undirrita samning um Sjóvá .
Á fundinum, sem haldinn er á föstudegi,
segir Már að yrði meintu gjaldeyrisbroti
Ursus ekki vísað til lögreglu á næsta mánu
degi eða þriðjudegi væri hægt að ganga frá
Sjóvárkaupunum .
Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður
gerir Má grein fyrir því að hann sé að brjóta
af sér sem stjórnvald ef hann geri Heiðari
ekki formlega grein fyrir hugsanlegum
brotum og veiti honum andmælarétt . Jafn