Þjóðmál - 01.03.2011, Page 41
Þjóðmál VOR 2011 39
hafi í árslok 2010 fengið allar upplýsingar
um málið, þ .m .t . þær sem þagnarskylda
nái til . Hann hafi tjáð Seðlabankanum að
hann geri engar athugasemdir við máls
meðferðina . Hann hafi einnig lýst yfir
því á fundi viðskiptanefndar en einhverra
hluta vegna hafi það vantað í frásagnir af
fund inum . Þá hafi umboðsmaður Alþingis
stjórnsýsluþátt málsins til skoðunar og
muni fá frá Seðlabankanum allar þær upp
lýsingar sem hann biðji um í samræmi
við ákvæði í lögum um hans embætti .
Bankinn segir kjarna málsins að í söluferli
Sjóvár og tengdum atvikum hafi engar
meiri háttar ákvarðanir verið teknar sem
telja megi á einhvern hátt óeðlilegar . Á
engan hátt hafi verið ámælisvert af seðla
bankastjóra að upplýsa viðskiptanefnd
ekki um þau mál sem samkvæmt lögum
ríki þagnarskylda um . Það myndi henta
Seðla bankanum ágætlega ef hann hefði
getað upplýst nefndina að fullu um málið
þar sem það hefði eytt tortryggni og
forðað bankanum frá óþægilegri umræðu .
Þagnarskylduákvæði seðlabankalaga séu
ekki sett til að forða Seðlabankanum frá
eftir liti heldur til að vernda viðskiptamenn
bankans og þá sem hann kunni að hafa
til skoðunar vegna margvíslegra verkefna
sinna .
*
Fullyrða má að einsdæmi sé í sögu Seðla banka Íslands að bankinn hafi talið
nauðsynlegt að birta yfirlýsingu eins og
þá sem hér er getið til að verja banka stjóra
gegn kröfu á Alþingi um að banka stjórinn
víki sæti . Yfirlýsingin sýnir að Már Guð
mundsson lætur ekki við það sitja vegna
sölunnar á Sjóvá að hafa að engu óskir
Heiðars Guðjónssonar um að upplýsa um
þá málavöxtu, hann grípur til yfirlætis
gagn vart þingmönnum .
Fyrsta krafa til seðlabanka um víða
veröld snýst um traust byggt á vandvirkni .
Í yfir lýsingu Seðlabanka Íslands frá 3 .
febrúar 2011 segir að söluferlið á Sjóvá
hafi hafist í árs byrjun 2010 og staðið
óslitið þar til SF1 kom til sögunnar . Hinn
23 . nóvember 2010 var hins vegar haldinn
hluthafafundur í Sjóvá og félaginu kosin
ný stjórn . Í tilkynn ingu frá fundinum
sagði að stjórnin hefði slitið sölu ferli vegna
félagsins en mundi kanna áhuga fjárfesta á
félaginu .
Traust í garð seðlabanka byggist ekki að eins
á því að rétt sé farið með staðreyndir heldur
einnig hinu, hvernig staðið er að því af hálfu
stjórn enda þeirra að svara því sem til bankans
er beint . Við söluna á Sjóvá hefur Már
Guð mundsson seðlabankastjóri brugðist
þessu trausti . Afstaða hans og stuðningur
Jó hönnu Sigurðardóttur og Steingríms J .
Sig fús sonar við seðlabankastjórann í þessu
einka væðingarmáli sýna að orð og fyrirheit
um gegn sætt ferli eru að engu höfð, þegar
á reynir .
Loks hafa gjaldeyrishöftin orðið til þess að
skapa færi á valdníðslu innan stjórnsýslunnar
sem seðlabankastjórinn nýtir sér og vill fá
frið til að nýta sér í skjóli bankaleyndar .
Stjórnarhættir Más Guðmundssonar eru
skref aftur til tíma sem menn héldu að
væri liðinn . Þeir eru svartur blettur á heiðri
Seðlabanka Íslands og lýsa hroka í garð
almennra borgara í landinu og umbjóðenda
þeirra á Alþingi .
Þ