Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 49

Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 49
 Þjóðmál VOR 2011 47 . sjávarútveg og því eru þessi mörk sem áður voru nefnd vel við hæfi .15 Hér fyrir ofan er sagt að sjávarútvegurinn búi ekki við lágan fjármagnskostnað, en síðar í skýrslunni, þegar skýrsluhöfundar telja upp þær forsendur sem þeir gáfu sér við mat á skuldastöðunni, segir: Gert er ráð fyrir að fjármagnskostnaður ís­ lensks sjávarútvegs fari hækkandi . Við áætlum að raunvextir lána atvinnugreinarinnar sé nú um 2% . Við gerum ráð fyrir að raunvextirnir verði komnir í 7% eftir sjö ár og verði það áfram árin þar á eftir . [ . . .] Íslenskur sjávar­ útvegur hefur líkt og annað íslenskt atvinnulíf búið við mjög lágan fjármagnskostnað . Atvinnugreinin hefur tekið erlend lán með breytilegum vöxtuum . Þessir vextir eru nú í lágmarki og líklegt að þeir fari hækkandi .16 Hér er fjármagnskostnaður orðinn lágur . Höfundar treystu sér ekki til að spá fyrir um gengi í þessum forsendum og héldu því óbreyttu, en þeir treysta sér hins vegar til um að spá fyrir um vexti . Þeim finnst líklegt að vextir eigi eftir að hækka, og ef þeir hækka á heimsvísu er vel mögulegt að þeir hækki jafnframt hér á landi . Við það styrkist gengi krónunnar jafnan . Einnig má benda á að með virkri áhættustýringu er vel hægt að festa gengi með skiptasamningum . Höfundar taka það ekki með í forsendum sínum, þó vitað sé að afleiðusamningar eru þó nokkur stærð í bókum stærri sjávarútvegsfyrirtækja . Minni afli, meiri hagræðing, meiri gróði Ástæðan fyrir því að kvótakerfinu var komið á fót árið 1984 var ofveiði greinarinnar . Mikill samdráttur hefur enda 15 Áhrif innköllunar aflaheimilda á stöðu íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja. 26 . bls . 16 S .r . 29 . bls . orðið á aflabrögðum, en árið 1991 var þorskafli Íslendinga 306 þúsund tonn .17 Árið 2008 var veiði á þorski ekki nema 151 þúsund tonn . Því er ljóst að kvótakerfið hefur haft tilætluð áhrif, ofveiði er ekki lengur staðreynd .18 En þrátt fyrir þennan mikla samdrátt í afla hafa verðmæti útfluttra sjávarafurða ekki lotið sömu þróun . Verðhækkanir að nafnvirði og betri fram leiðslu stýring hafa náð að vega upp minnkun á aflanum .19 Þannig hefur mikil fækkun starfa orðið frá árinu 1991, þegar um 14 .200 mann störfuðu við íslenskan sjávarútveg, 6 .200 við fiskveiðar og 8 .000 við fiskvinnslu .20 Þetta jafngilti 10,4% af íslensku vinnuafli . Hámarki var náð árin 1995–1996 þegar 16 .000 manns störfuðu í greininni . Árið 2008 var fjöldi starfa kominn niður í 7 .300 manns, eða 4,1% af íslensku vinnuafli . Á umræddu tímabili hefur því heildarvinnuafl í sjávarútvegi dregist saman um 49%, 61% stafar af fækkun í fiskvinnslu en 32% vegna fækkunar sjómanna . Af framansögðu er ljóst að mikil fram­ leiðniaukning hefur orðið í greininni . Afli hefur minnkað um þriðjung í þorskígildum, en á meðan hefur störfum fækkað um helming . Árið 1991 var aflinn 112 tonn af þorskígildum á hvert starf við veiðar en árið 2008 var aflinn 111 tonn af þorskígildum á hvert starf við veiðar . Framleiðniaukningin hefur þannig öll orðið í vinnslu, enda hefur starfsfólki fækkað umtalsvert mikið meira þar heldur en við veiðarnar .21 Árið 1991 17 S .r . 6 . bls . 18 Reyndar hefur veiði á ýsu aukist, en veiði á bæði karfa og ufsa hefur minnkað . Íslenskur sjávarútvegur hefur ekki náð að bæta sér upp minni þorskafla með veiðum á öðrum botnfisktegundum hvað magn varðar . 19 Áhrif innköllunar aflaheimilda á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. 10 . bls . 20 S .r . 11 . bls . 21 Skýrsluhöfundar spyrja sig hvort ekki séu möguleikar á hagræðingu við veiðarnar . Ljóst er að svo er, enda er sjálfvirkni mjög takmörkuð um borð í íslenskum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.