Þjóðmál - 01.03.2011, Page 60
58 Þjóðmál VOR 2011
einstaklingur í stað þess að láta almenn
ingsálitið móta sig og hverfa inn í fjöldann .
Uppsprettan er fyrst og fremst persónuleg
bók, en Undirstaðan er hins vegar félagsleg að
grunni til: hún geymir ógleymanlega fléttu
sem varðar samfélagið allt og hópa innan
þess . Hetjan í Undirstöðunni er John Galt .
Hann er eðlisfræðingur og hugsuður, sem er
tákngervingur þess afls sem mannshugurinn er .
Segja má að meginþema bókarinnar sé arðrán
á hugviti . Í hugmyndasögunni hefur mörgum
verið tíðrætt um „arðrán“ tengt líkamlegri
vinnu, en sömu hugmyndasmiðir hafa iðulega
verið þögulir um arðrán tengt andlegu streði,
jafnvel þótt hið fyrrnefnda byggist á frjálsum
samningum, nema um þrælahald sé að ræða,
en hið síðarnefnda ekki .
Varðandi hugvitið er mikilvægt að hafa
eftirfarandi í huga: Mannkynið er dýrateg und
sem hefur ekki líkamlega margt til brunns að
bera í lífsbaráttunni . Miðað við mörg rándýr
erum við veikburða, hlaup um hægt, erum
berskjölduð gagnvart veðri og vindum, og
svo framvegis . En frá náttúr unnar hendi
höfum við vitsmuni, sem gera okkur kleift
að komast af og gott betur . Án skynsamlegrar
hugsunar væri mannkynið ef til vill enn
á gresjum Afríku í harðri fæðubaráttu við
aðrar skepnur, eða jafnvel farið sömu leið
og megnið af þeim dýrategundum sem
hafa lifað á jörðinni og hreinlega dáið út . –
Skynsemin og afurðir hennar, uppfinningar,
verkkunnátta og framleiðsla, hafa ekki aðeins
umbreytt mannlífinu heldur í raun gert það
mögulegt: hugvitið er ekki aðeins forsenda
framfara heldur forsenda lífs mannsins á
jörðinni, alla vega þess mannlífs sem hefur
merkingu og gildi .
Ayn Rand greinir á milli tvennskonar
erkitýpa: áðurnefndra skapara, sem skapa
verðmæti, og fólks sem lifir einhverskonar
sníkjulífi og tekur verðmæti (e . looters) . –
Þorpararnir í Undirstöðunni eru af síðar
nefndu gerðinni, það er að segja fólk sem
arð rænir hina fyrrnefndu og lifir þannig
á þeim, ýmist með beinni valdbeitingu
ríkisins eða með sálfræðihernaði í formi
þvældra „siðalögmála“ . Þorpararnir eru
einnig þeir sem grafa undan skynseminni,
annaðhvort með hugmyndum um að raun
veruleikinn sé ekki skiljanlegur eða með
því að svipta fólk því andlega frelsi sem
skynsemisverur þarfnast . Í báðum tilvikum
er ráðist á undirstöðu mannlífsins .
Rand er meðal vinsælustu kvenhöfunda
sögunnar og konur skipa stórt hlutverk í
bókum hennar . Eftirminnilegar kvenhetjur,
eins og Dominique Francon í Uppsprettunni
og Dagny Taggart í Undirstöðunni, hafa ekki
síst stuðlað að vinsældum bókanna . Þær eru
gáfaðar, sterkar og hrífandi .
Viðhorf sögupersónanna til ástar og
kynlífs hefur vakið athygli . Rand áleit ást
og kynlíf vera heimspekilega mikilvæg
fyrirbæri . Hún taldi eiginlega ást snúast
um þau gildi sem karl eða kona sér í maka
sínum, en að kynlíf væri einskonar óður
til sjálfs síns og veraldarinnar og fögnuður
yfir lífinu og tilverunni . En í skáldsögum
hennar hafa sumar kynlífslýsingar valdið
heilabrotum og þykja nokkuð kræfar . Slíkar
senur eru þó aukaatriði í bókunum; segja
má að hápunkturinn sé magnaðar ræður
sem sögupersónurnar flytja . Ræðurnar eru
beittar og áhrifaríkar, hvort sem maður er
sammála þeim eða ekki .
Viðtökur Uppsprettunnar og Undirstöð-
unnar meðal gagnrýnenda voru blendnar á
sínum tíma . Þær fengu báðar frekar dræma
dóma og litla umfjöllun í fjölmiðlum . Hins
vegar spurðust þær fljótt út á meðal fólks
og urðu metsölubækur . Frá upphafi hafa
um 30 milljón eintök selst af bókum Rands
og tæp milljón eintaka selst nú á hverju
ári, auk þess sem nokkur hundruð þúsund
eintök eru árlega gefin háskólanemendum
í Bandaríkjunum . Salan hefur aukist síðan
efnahagskreppan reið yfir; líklega vegna þess