Þjóðmál - 01.03.2011, Blaðsíða 63
Þjóðmál VOR 2011 61
taldi meginhlutverk ríkisins vera að tryggja
rétt einstaklinga til lífs, frelsis og eigna .
Eins og áður segir ólst Ayn Rand upp
í Rússlandi og varð vitni að valdatöku
kommúnista . Reynslan af lífi undir
alræðisvaldi og ógnarstjórn fékk hana til
hugleiða stjórnskipan sem tryggði vald drei
fingu og frelsi . Rand sótti fyrirlestra austur
ríska hagfræðingsins Ludwig von Mises í New
York og var sammála honum um að laissez
faire kapítalismi væri það fyrirkomulag sem
best tryggði fólk til lengdar gegn ofríki og
kúgun . Að auki taldi hún að engin önnur
stjórnskipan samræmdist siðfræði hennar og
hugsjónum . Hún taldi þó kapítalisma von
lausan án trausts gjaldmiðils, helst á gullfæti,
og vildi taka hart á hvers kyns svikum .
Ekki ætti að koma á óvart að fagurfræði
er Ayn Rand hugleikin, enda lengi vel
aðalstarf hennar að skrifa skáldsögur . Hún
skilgreinir list sem endursköpun á völdum
þáttum veruleikans samkvæmt grund
vallar gildisdómum (e . metaphysical value
judgements) listamannsins, en slík dóm
greind ristir dýpra en siðferðið og endur
speglar lífsskilning (e . sense of life) við
komandi listamanns, það er að segja hvað
honum finnst í raun mikilvægt og satt um
tilvistina og eðli fólks . Listin gerir fólki
kleift að skilja óhlutstæð hugtök í gegnum
hlutstæð fyrirbæri: listaverkið nær með
persónum, atburðarás, tónum, litum og svo
framvegis, að varpa ljósi á hugtök . – Segja
má að merkingin sé sýnd en ekki sögð .2
Ayn Rand notar heitið rómantísk raun
sæis stefna um listspeki sína . Hugtakið
rómantík í bókmenntum hefur verið notað
2 Færa má rök fyrir því að rithöfundar á borð Halldór
Kiljan Laxness hafi haft mun meiri áhrif á íslensk stjórnmál
heldur en fræðimenn . Skýringin er sú að hugmynd sem
er sýnd með listsköpun er mun áhrifameiri og líklegri til
að snerta tilfinningalíf fólks, heldur en hugmynd sem er
útskýrð í fræðigrein . – Þess má geta, varðandi Laxness, að
hann reyndi fyrir sér sem handritshöfundur í Los Angeles á
sama tíma og Ayn Rand .
á mjög ólíkan hátt . Rómantík Rands snýst
ekki um tilfinningasemi og dulspeki, eins
og hefur gjarnan verið raunin með róm
antíska listamenn, heldur um mikilvægi
fyrir mynda og gilda . Rómantíkin, eins og
hún notar hugtakið, byggist á þeirri afstöðu
að maðurinn hafi frjálsan vilja og geti verið
ljóðskáld síns eigin lífs . Hún vildi þó að
fyrirmyndirnar og gildin, sem listin skapaði,
hefðu tengingu við heiminn eins og hann
birtist okkur, raunveruleikann, og því talaði
hún um rómantíska raunsæisstefnu.
Ayn Rand hefur verið sökuð um að hafa
dulklætt áróður í bókmenntaform . Henni
til varnar má spyrja hvort að einhvers
konar hugmyndir séu ekki iðulega að baki
listsköpun; skýrasta dæmið er auðvitað
dæmisagan, sem hingað til hefur ekki þótt
ámælisverð bókmenntagrein . – Sjálf hafnar
Rand gagnrýninni með þeim rökum að
bækur hennar endurspegli fyrst og fremst
áðurnefndan lífsskilning, sem sé frum
spekilegur, tilfinningalegur og handan við
það sem kalla mætti áróður .
En slík grunnviðhorf geta auðvitað líka
smitast með lestri bóka . Lífsskilningur Ayn
Rands sjálfrar mótaðist nokkuð af Aristó
telesi og Nietzsche . – Sá síðarnefndi velti
fyrir sér gildi gildanna í Af Sifjafræði siðferð-
isins og komst þannig að orði:
Hafa þau hingað til hamlað manninum eða
ýtt undir að hann dafni? Eru þau merki um
armæðu, andleysi, hnignun lífsins? Eða er þessu
öfugt farið; sýna þau fyllinguna, kraftinn, vilja
lífsins, hugrekki þess, sjálfstraust og framtíð?3
Sú manneskja sem skilur þau grund vallar
sjónarmið sem takast á í þessari til vitn un,
3 Úr formála Nietzsches að Af Sifjafræði siðferðisins (þ . Zur
Genealogie der Moral, e . On the Genealogy of Morality) .
Bókin var nýlega gefin út í lærdómsritröð Hins íslenska
bókmenntafélags, í íslenskri þýðingu Róberts Jacks og með
góðum formála eftir Róbert H . Haraldsson . Hér notast ég
þó við mína eigin þýðingu á textabrotinu .