Þjóðmál - 01.03.2011, Page 70

Þjóðmál - 01.03.2011, Page 70
68 Þjóðmál VOR 2011 fyrir gjaldeyrishöft . Þetta er risastórt mál sem þarf að hafa í huga við ákvörðun um samþykkt málsins . Öll umræða um að létta á gjaldeyrishöftum er því blekking . Grein­ ingar deildirnar þegja . Stóri bróðir er vandamál R íkisstjórnin lýsti því yfir við hrunið að innistæður væru tryggðar . Sú yfir­ lýsing hefur verið staðfest af ráðherrum síðustu tvö árin . Lagaheimildin er engin . Því er engin ríkistrygging innlána . Óskýrt er því í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hver það er sem tryggir þessar innistæður en hún er svohljóðandi: Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 6 .10 .2008: Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og spari­ sjóð um og útibúum þeirra hér á landi verða [innsk: hvenær?] tryggðar [innsk: af hverjum?] að fullu . Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra spari fjár ­ eigenda og fyrirtækja sem trygg ing inn­ stæðu deildar Tryggingasjóðs inn stæðu­ eig enda tekur til . Reykjavík, 6. október 2008 Hér skal bent á að hin svokallaða mis­ mun un innstæðueigenda eftir þjóðerni á rætur að rekja til þessarar yfirlýsingar, ekki neyðar laganna eða þeirra úrvinnslu þegar nýju bankarnir tóku yfir innistæður . Það er þægilegt að tryggja innistæður, það eina sem þarf að gera er að dæla peningum í fjármálastofnanir og hafa áhyggjur af afdrifum þessa fjármagns í þarnæstu kosningum . Reikningurinn til skattgreiðenda mun koma síðar . Það er hins vegar mjög erfitt að tryggja ekki innistæður, fólk tæmir bankana, þeir hefðu fallið allir sem einn og í framhaldinu hefði greiðslukerfi landsins hrunið . Stjórnmálamenn og fjármálakerfið taka alltaf þá ákvörðun sem hentar best til skamms tíma, samanber lánveitingu Evrópuríkjanna til Grikklands á hærri vöxtum í stað þess að viðurkenna getuleysi Grikkja til að standa við skuldbindingar sínar . Neyðarlögin gerðu það hins vegar að verkum að kröfum innistæðueigenda var veittur forgangur í bú bankanna og á örskömmum tíma voru þrír nýir bankar starfandi, fjármagnaðir með innistæðum og með forgang í eignir gömlu bankanna . Þurfti ríkistryggingu innistæðna í þessu ljósi? Þarf núverandi fjármálaráðherra að framlengja þessa yfirlýsingu hvað eftir annað? Er verið að veita fé í bankakerfið í dag til að ekki reyni á þessa tryggingu? Vandamálið er að það er rökrétt fyrir stjórnvöld, greiningardeildir bankanna og aðra sem ættu að hafa eftirlit með fjármálamarkaðinum að loka augunum, halda sér fast í borðstokkinn og fara með bænirnar sínar . Valdið til Seðlabankans Gylfi Zoëga skrifaði nýlega ritgerð í Tímarit um viðskipti og efnahagsmál . Gylfi er prófess or í hagfræði við Háskóla Íslands og er nefndar maður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands . Það er fagnaðarefni þegar menn setja fram hugmyndir sínar á skýran og greinargóðan hátt í stuttu máli . Algengt er að um lítið sé fjallað í miklum, þurrum texta . Ber að hrósa Gylfa fyrir það . En gera þarf athugasemd þegar augljósir ókostir hugmynda eru ekki reifaðir, kostirnir eingöngu dásamaðir . Áfall Gylfa Gylfi telur að tvö kerfi séu líklegust til að standa af sér áföll 1) króna í skjóli gjaldeyrishafta og 2) evra með aðild að Evrópusambandinu .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.