Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 72
70 Þjóðmál VOR 2011
Hjörtur J . Guðmundsson
Eiga íslenskir hægri menn
samleið með ESB?
Sú staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei stutt inngöngu Íslands í
Evrópusambandið eða forvera þess hefur
vafalítið verið mörgum stuðningsmönnum
inngöngu þyrnir í augum . Þá ekki sízt
vegna þeirrar sterku stöðu sem flokkurinn
hefur haft í íslenzkum stjórnmálum allar
götur frá því að hann var stofnaður árið
1929 . Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur
verið nefnd sjálfstæðisstefnan en hún hefur
frá upphafi meðal annars grundvallast á
því stjónarmiði að öll mál Íslands ættu að
fullu að vera í höndum Íslendinga og að
varðveita yrði og tryggja sjálfstæði og frelsi
landsins .1 Það segir sig því sjálft að innganga
í Evrópusambandið yrði seint í samræmi
við sjálfsstæðisstefnuna .
Ýmislegt hefur þó verið reynt í gegnum
tíðina til þess að telja sjálfstæðismönnum
trú um að sambandið ætti samleið með
hægrisinnuðum sjónarmiðum . Í raun er
sú saga nokkurn veginn jafn löng og saga
svokallaðs Evrópusamruna . Þannig rifjaði
Björn S . Stefánsson, búnaðarfræðingur,
nýverið upp atburði í grein í Bændablaðinu
frá árunum 19611963 sem hann tók þátt
í . Þá var rætt um það í stjórnkerfinu hvernig
tengslum Íslands við önnur Evrópuríki
skyldi háttað og voru Einar Benediktsson,
1 Einar Laxness: Íslandssaga l-ö. Reykjavík, 1977 .
síðar sendiherra, og Jónas Haralz,
hagfræðingur og þáverandi ráðuneytisstjóri,
talsmenn þess að Ísland gengi alla leið inn í
Efnahagsbandalag Evrópu forvera Evrópu
sambandsins .
Síðan segir í grein Björns: „Síðar, á árinu
1963, var málið lagt til hliðar . Það var
eftir að verðandi forsætisráðherra, Bjarni
Benediktsson, setti sig inn í Rómarsáttmálann
um Efnahagsbandalagið og þóttist sjá, að
stefnt væri að stofnun ríkis . Hann taldi
ekki koma til greina, að Ísland yrði með
í slíku ríki . Bjarni varð ungur sérstakur
kunnáttumaður í stjórnskipunarrétti og var
þá prófessor í lögum .“2
Hér á eftir verður fjallað í grófum drátt um
um ýmis þau atriði sem hafa verður í huga
þegar þeirri spurningu er velt upp hvort
Evrópusambandið eigi samleið með hægri
sinnaðri hugmyndafræði og sjálf stæðis
stefnunni og um leið spurning unni um það
hvort Ísland eigi að ganga í sambandið .
Bandaríki Evrópu?
Ljóst er að Evrópusambandið er í dag komið langleiðina í þá átt að verða að
einu ríki og hefur á suma mælikvarða þegar
2 Björn S . Stefánsson: „Ísland og EBE gömul saga rifjuð
upp“ . Bændablaðið 13 . janúar, 2011 . bls . 10 .