Þjóðmál - 01.03.2011, Page 77
Þjóðmál VOR 2011 75
sam bandsins, Günther Verheugen, gaf þá
skýringu um árið á því hversu illa gengi að
draga úr regluverki sambandsins að valda
miklir embættismenn sem störfuðu fyrir
fram kvæmdastjórnina stæðu í vegi slíkra
aðgerða vegna þess að þeir teldu þær ekki
þjóna þeirra eigin hagsmunum .19
Í heimsókn til Íslands í febrúar 2006
sagði Brian Prime, þáverandi forseti
Evrópusamtaka smáfyrirtækja, meðal
annars í samtali við Morgunblaðið að
innan Evrópusambandsins kæmust menn
ekkert áfram vegna reglugerðafargans og
bar sambandinu illa söguna þegar kom að
rekstrar umhverfi fyrirtækja . „Ef þið gangið
í Evrópusambandið þá munu íslensk
fyrirtæki fá yfir sig haug af reglugerðum
sem erfitt er að komast upp úr, ekki síst fyrir
smáfyrirtækin . Í Evrópu er sú stefna við lýði
að ef þú ert með fótbrotna manneskju þá
verður að brjóta leggina á hinum svo allir
búi við sömu fötlunina .“20
Fríverzlun
Evrópusambandið er ekki fríverzl un arbandalag heldur er það í grunninn fyrst
og fremst gamaldags tollabandalag þar sem
fríverzlun þrífst vissulega á milli þeirra ríkja
sem það mynda en svæðið er síðan varið með
háum tollamúrum gagnvart þeim sem fyrir
utan eru . Ríki Evrópusambandsins hafa síðan
samkvæmt uppskriftinni ekki rétt til þess að
semja um fríverzlun við önnur ríki utan þess
heldur hefur það vald verið framselt til stofnana
sambandsins líkt og áður er komið inn á .
Tollabandalög eru þannig í grundvallaratriðum
ólík fríverzlunarbandalögum eins og Fríverzl
un ars amtökum Evrópu (EFTA) sem Ísland
er aðili að en aðildarríki þeirra hafa fullt frelsi
19 „Commission bureaucrats are getting too powerful,
says Verheugen“ . Euobserver .com 5 . október 2006 . http://
euobserver .com/?aid=22572
20 „ESB ætti að framfylgja stefnu Íslendinga“ .
Morgunblaðið 27 . febrúar 2006 .
til þess að semja um fríverzlun við önnur ríki
annað hvort í samfloti eða á eigin vegum allt
eftir því hvað þjónar hagsmunum þeirra bezt
hverju sinni .
Íslendingar hafa á undanförnum árum
náð góðum og sífellt betri árangri í gerð
fríverzlunarsamninga við ríki og ríkja
sambönd víða um heim . Samtals hefur
Ísland í dag fríverzlunarsaminga við 16
ríki og ríkjasambönd annað hvort á eigin
vegum eða í gegnum EFTA fyrir utan þau
ríki sem eru í Evrópusambandinu og þar
með aðilar að EESsamningnum . Þá er
þess utan beðið fullgildingar á samningum
um fríverzlun við Kólumbíu, Flóaráðið
(sem í eru Barain, Kúvæt, Óman, Katar,
SádiArabía og Sameinuðu arabísku fursta
dæm in), Albaníu og Serbíu . Þá er fríversl
un ar viðræðum við Perú nýverið lokið og
einungis undirritun eftir . EFTA á enn
fremur í samningaviðræðum við Hong
Kong, Indland, Úkraínu, Taíland og Alsír
og viðræður eru í gangi við Rússland,
Indónesíu og Víetnam um mögulegar frí
versl unarviðræður .21
Á liðnum árum hefur Ísland og EFTA
farið fram úr Evrópusambandinu í gerð
frí verzlunarsamninga og má sem dæmi
nefna að sambandið er nú fyrst að ganga
frá slíkum samningi við SuðurKóreu
en fríverzlunarsamningur á milli Suður
Kóreu og EFTA tók gildi árið 2006 .
Þá er Evrópusambandið í viðræðum
við Kanada en fríverzlun var komi á á
milli EFTA og Kanada árið 2009 .22 Allir
þessir samningar féllu úr gildi ef Ísland
gengi í Evrópusambandið sem og aðrir
viðskiptasamningar við ríki utan þess og
við tækju samningar sem sambandið hefði
21 „Fríverslunarsamningar EFTA við lönd utan ESB“ .
Utanríkisráðuneytið . http://www .utanrikisraduneyti .is/
samningar/friverslunarsamningar//nr/365
22 „Fríverslunarsamningar Íslands“ . Utanríkisráðuneytið .
http://www .utanrikisraduneyti .is/samningar/
friverslunarsamningar/