Þjóðmál - 01.03.2011, Page 79

Þjóðmál - 01.03.2011, Page 79
 Þjóðmál VOR 2011 77 Bjarni Jónsson Viðreisn – víðtækar umbætur Íslenzka hagkerfið reyndist standa illa að vígi árið 2008, þegar harðnaði á daln­ um . Ástæðurnar voru tröllvaxið bankakerfi og óeðlilega hátt gengi krónunnar m .v . við­ skiptajöfnuð . Um þverbak keyrði, þegar stórbankinn Lehman Brothers varð gjaldþrota 15 . september 2008 . Við þetta magnaðist tortryggni á milli fjármála stofn ana um allan heim, því að enginn vissi, hvar eitraðir vafningar lágu, og þorði enginn að lána öðrum af ótta við að glata fé sínu í gjaldþroti skuldunautar . Þetta ástand hlaut að koma illa niður á íslenzka bankakerfinu, en stærð þess nam u .þ .b . tífaldri landsframleiðslu, sem var einsdæmi í heiminum .1 Þessi mikli vöxtur hafði orðið í efnahagsumhverfi, sem var dæmigert fyrir hagbólumyndun . Lágir vextir á alþjóða mörkuðum ýttu undir mikla neyzlu almennings og fjárfestingar fyrirtækja, og útlán bankanna uxu hratt . Þessi spenna leiddi til síhækkandi verðs eigna af öllu tagi . Þar að auki reyndust allir helztu bankar landsins og margir erlendir bankar vera illa haldnir af innanmeini, þó að þeim hafi tekizt að leyna því með undraverðum hætti í endurskoðuðum reikningsuppgjörum sín­ um . Við þessar aðstæður fengu íslenzku bank arnir ekki staðizt lokun lánalína, og því fór sem fór . Það var lán í óláni, að við stjórnvöl þjóð ar­ skútunnar árið 2008 var fólk, sem bar gæfu til að taka margar affarasælar ákvarðanir í mikilli tímaþröng . Þar ber hæst „íslenzku leiðina“, sem fólgin er í því að láta lánadrottna bankanna taka skellinn, en slá skjaldborg um innlenda innlánsreikninga .1 Erlendir innlánsreikningar voru látnir hafa forgang í þrotabúin erlendis, en ríkissjóður Íslands var ekki látinn taka á sig fjárhagsskuldbindingar, eins og gert var t .d . á Írlandi, þar sem bankakerfið var líka orðið mjög stórt í hagbólukerfi . Þetta er megineinkenni hinnar „íslenzku leiðar“ Geirs Hilmars Haarde, þá­ verandi forsætisráðherra, og manna hans, og er hún ólík leið Evrópusambandsins (ESB), sem leiddi til svo mikillar skuldsetningar margra ríkja, að hagkerfi þeirra eru að sligast undan byrðunum, og hin sameiginlega mynt lætur nú stórlega á sjá og er jafnvel ekki hugað líf í óbreyttri mynd . Segja má, að evran sé nú í gjörgæzlu og ríkisstjórnin í Berlín ráði framtíð hinnar sameiginlegu myntar . Þjóðverjar leyfðu ekki hagbólukerfi að myndast hjá sér, heldur hertu sultarólina tímabilið 1999­2009 í kjölfar þensluskeiðs eftir endursameiningu Þýzkalands 1989 og njóta fyrir vikið mjög sterkrar samkeppnistöðu á útflutningsmörkuðum nú . Ríkisstjórn Geirs Hilmars og bankastjórn Seðlabankans lék góðan varnarleik í nauð­ vörn og lagði góðan grunn að nýrri sókn með samningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.