Þjóðmál - 01.03.2011, Page 87
Þjóðmál VOR 2011 85
Samtök eldri Sjálfstæðismanna efndu til
með Þór Whitehead um bók hans, gat ég
ekki fundið annað en að hann væri sam
mála mér um það, að þeir einstaklingar,
sem hann hafði persónuleg kynni af og við
sögu koma í bók hans, hefðu verið hið bezta
fólk . En þau voru leiksoppar kerfis, sem þau
réðu ekkert við og skildu sennilega ekki .
Þór Whitehead sýnir fram á, að hin beinu
samskipti við Moskvu voru
miklu meiri en við höfum
gert okkur grein fyrir og
afskipti Moskvu af íslenzkum
stjórnmálum miklu meiri en
fram hafa komið . Þetta sýnir
Þór fram á, eins og fyrr segir,
með tilvísun í gögn á þann
veg, að þeir sem ætla að
halda öðru fram verða nú að
sanna sitt mál .
Það er hörmulegt að þeir
sem vissu skyldu ekki vera
tilbúnir til þess að segja frá
sög unnar vegna . Síðustu
árin, sem Ingi R . Helga son
lifði, átti ég við hann mörg og ánægju
leg samtöl um pólitík og leitaði eftir því
við hann að hann segði sögu sína á síð um
Morgunblaðsins og þá m .a . um sam skipti
Sósíalistaflokksins við Moskvu eins og
hann þekkti þau samskipti . Samtöl okkar
komust svo langt að hann sagði við mig að
ef hann tæki ákvörðun um að segja þessa
sögu mundi hann gera það á síðum Morg-
un blaðsins . En lengra komumst við ekki .
Frásögn Þórs af ofbeldinu, sem viðgekkst
í íslenzku samfélagi á fyrri hluta 20 . aldar
innar, er afar umhugsunarverð . Það ofbeldi
var hægt að hafa í frammi vegna þess hversu
veikt ríkisvaldið var . Sú frásögn hafði tvenns
konar áhrif á mig .
Ég skildi betur vinnu, sem ég tók þátt í
fyrir hálfri öld í Valhöll í Suðurgötu við að
skipuleggja varalið, sem gæti verið tiltækt, ef
á þyrfti að halda . Fyrir nokkrum árum kom
Garðar heitinn Pálsson skipherra til mín
og sýndi mér gögn um þessa vinnu, sem
hann átti í fórum sínum . Þeir ráðamenn
þjóðarinnar, sem þá voru við völd, mundu
þessa tíma og vildu vera við öllu búnir vegna
þess að spenna ríkti í samfélaginu .
En jafnframt þótti mér for vitnilegt að
sjá, að hópur ungra manna, sem kölluðu
sig þjóðernissinna, virðist
hafa skapað meira mótvægi
í þessum átökum á götum
Reykja víkur en hingað til
hefur verið viðurkennt . Í
bók Þórs segir:
„Stofnun Varaliðs verka
lýðsins og Sam taka liðs ins var
til marks um vax andi öfg
ar og ofbeldi í stjórnmála
bar áttu í Evrópu eftir upp
haf kreppunnar miklu .
Vorið 1933 mátti sjá hér
enn eitt merkið um þessa
ískyggilegu þróun með
stofnun Þjóð ernis hreyfingar
Íslendinga undir áhrifum frá þýzkum
nazistum og ítölskum fasistum . Þjóð
ernissinnar, eins og þeir kölluðu sig, voru
flestallir ungir sjálfstæðismenn . Þeir vildu
hins vegar taka upp miklu harðari baráttu
gegn kommúnistum og öðrum „marx
istaflokkum“ (Alþýðuflokki og Fram
sóknarflokki) heldur en Sjálf stæð is flokk ur
inn tíðkaði . Öfgar geta af sér öfga . Gúttó
slagurinn hafði sannfært þessa ungu menn
um, að hér vantaði kröftugt afl, sem barið
gæti kommúnista niður með þeirra eigin
að ferðum . Með þetta fyrir augum stofnuðu
þeir „fánalið“ undir Þórs hamarsmerki
(haka krossinum), klæddust grárri einkenn
is skyrtu, spenntu leðurólar um öxl að her
manna sið og sögðu „marxistum“ stríð á
hend ur .“
Hingað til hafa þessir ungu menn ekki