Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 92
90 Þjóðmál VOR 2011
þess ágætis að verða handgenginn Assange .
Vefsíðan Eyjan sagði 1 . febrúar 2010 frá frétt
í Stöð 2 þann sama dag um að sautján ára
piltur hefði verið handtekinn og yfir heyrður
í vikunni á undan og húsleit gerð heima
hjá honum vegna gruns um að hann hefði
stolið trúnaðargögnum úr tölvu Gunnars
Gunnarssonar lögmanns . Stöð 2 hefði hafn að
boði um að kaupa gögnin en svo virtist sem
þau væru uppspretta að frétta skrifum DV .
Gögnin snertu meðal annars mál efni Sjóvár
og eignarhaldsfélags ins Vafnings, bræðranna
Karls og Steingríms Wernerssona, Eiðs Smára
Guðjohnsens og fleiri .
DB segir að Assange hafi sent Kristin
og Inga til Íraks til að ræða við vitni að
atburðunum sem sýndir voru á mynd
bandinu . Þeir hafi síðar haft samband við
sig þegar hann hafi verið í einkaerindum á
Íslandi og beðið um að fá flugfargjaldið til
Bagdad endurgreitt . Assange hafi neitað að
greiða miðana og sagt að þeir gætu stofnað
sinn eigin styrktarsjóð á Íslandi .
„Collateral Murder“ fór á netið 5 . apríl 2010 .
DB segir að meira en 10 milljónir manna hafi
horft á myndbandið aðeins á YouTube .
Hinn 20 . ágúst 2010, þegar sænskur sak
sóknari gaf út ákæru á hendur Assange fyrir
að hafa gert tvær tilraunir til nauðgunar, var
DB í fríi á Íslandi með eiginkonu sinni og
stjúpsyni . Þau tóku þátt í menningarnótt í
Reykjavík en DB fór einn um kvöldið til að
hitta Kristin og Inga við Hallgrímskirkju
og ræða við þá vandann vegna ákærunnar .
Þeir fóru inn í Listasafn Einars Jónssonar,
ekki til að skoða listaverkin heldur til
að geta talað saman í friði, vissir um að
enginn elti þá . Úr safnhúsinu fóru þeir út
í garð þess og þar slóst Birgitta í hópinn .
Samkvæmt frásögn DB vissu þau ekki sitt
rjúkandi ráð . Þá hringdi farsími Kristins
sem að samtali loknu sagði þeim að ákæran
hefði verið dregin tímabundið til baka .
DB segir að Assange hafi verið smitandi
hrifinn af konum, einkum yngri en 22 ára .
Hann segist um tíma hafi haldið að eitthvað
væri byrjað að myndast á milli Assange
og Birgittu, þótt hún væri eldri en 22 .
Assange hafi einu sinni sagt sér að Birgitta
væri draumadísin sín . Hann hafi kannski
aðeins látið þau orð falla af því að honum
þótti stundum nauðsynlegt að segja eitthvað
einstaklega merkilegt . DB segist hafa talið að
Assange gæti aldrei samþykkt konu sem væri
raunverulegur jafnoki hans .
Að kvöldi 26 . ágúst 2010 efndi Assange til
netfundar með þátttöku Birgittu, Kristins
og Herberts sem síðar sendi DB afrit af því
sem sagt var . DB og tveimur tæknimönnum
WikiLeaks var bannað að taka þátt í
fundinum, enda hafði Assange rekið DB
fyrr þennan sama dag fyrir „óhollustu,
óhlýðni og upphlaup á hættutímum“ .
Skömmu síðar ræddi Birgitta við blaða
mann frá The Daily Beast og sagði þar meðal
annars að Assange ætti í „karlrembulegu
sambandi“ við konur og hún hefði ráðlagt
honum að draga sig tímabundið í hlé .
Assange brást hinn versti við þessu og taldi
sig svikinn . Hann var sannfærður um að
DB hefði fengið Birgittu til að tala á þennan
veg . Birgitta neitaði að biðjast afsökunar á
orðum sínum í The Daily Beast .
Í september 2010 slitnaði samband DB
og Assange endanlega .
Hér skal þessi ekki saga frekar rakin .
Frásögn DB og blaðamannanna ber að sama
brunni . Julian Assange er sérkennilegur
hugsjónamaður sem hefur komið sér í
mikinn vanda . Hann vill annars vegar hafa
stöðu þess sem miðlar upplýsingum, opnar
aðgang almennings að því sem stjórnvöld
eða aðrar stofnanir vilja að sé lokað, en hins
vegar vill hann sjálfur vera í sviðsljósinu
og stjórna öllu eða öllum í kringum sig .
Allt má segja um aðra en þegar að honum
sjálfum kemur þolir hann ekki að annað sé
um sig sagt en hann samþykkir .