Þjóðmál - 01.03.2011, Side 93
Þjóðmál VOR 2011 91
Óráðin framtíð WikiLeaks –
Tekur Kristinn við af Assange?
Framtíð WikiLeaks er óráðin vegna óvissunnar um sekt eða sakleysi Julians Assange . Laugardaginn
5 . mars birti Dylan Welch blaðamaður við The
Sydney Morning Herald frásögn af því þegar hann
hitti Kristin Hrafnsson, talsmann vefsíðunnar, í
Frontlineklúbbnum í London . Welch lýsti Kristni
sem „öðrum frægasta starfsmanni“ WikiLeaks . Welch
segir að Kristinn hafi verið spurður hvort hann
verði aðalritstjóri WikiLeaks verði Assange dæmdur
í fangesli . „Ég mun ekki sækjast eftir því,“ er svarið,
klippt og skorið .
Fær einhver annar stöðuna? „Hugsanlega .“
Kristni er lýst sem fyrrverandi rannsóknar blaða
manni með 20 ára reynslu og þríverðlaunuðum sem
blaðamanni ársins á Íslandi . Hann sé ekki fús að spá,
einkum þar sem hann sé nú opinber talsmaður einna
for vitnilegasta félagskapar heims gegn viðteknum
venjum .
Kristinn segist vera gamaldags blaðamaður, hann
vilji heldur halda sér til hlés en verða fréttin sjálfur .
Hann lýsir WikiLeaks sem hugmynd sem muni lifa,
vefsíðan hafi öðlast eigið líf . Birt ing á
skeytum bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi þegar
haft óbein áhrif í MiðAusturlöndum, þess vegna sjái
heimurinn nú eitthvað nýtt í fjölmiðlun sem rétt sé að
fara af stað . Segist Kristinn mjög stoltur af því að vera
þátttakandi í þessari þróun .
Kristinn rekur kynni sín af WikiLeaks til þess tíma
þegar lánabók Kaupþings birtist á netinu í ágúst
2009 en þá hafi hann verið fréttamaður á RÚV og
fylgst með því þegar bankinn gerði örvæntingarfulla
tilraun til að ná lánabókinni af netinu . Bandarískir
lögfræðingar hefðu ekki fundið neinn til að lögsækja
en hins vegar hefði verið sett lögbann á birtingu
upplýsinga úr bókinni .
„Það virtist ógjörningur að komast inn fyrir múra
WikiLeaks . Það var ekki unnt að fjarlægja efni þaðan,
jafnvel þótt hefðbundnum fjölmiðlum væri bannað
að segja frá því,“ segir Kristinn .
Hann segist einnig hafa hrifist af því að vefsíðan
hafi náð allri lánabókinni á sama tíma og honum
hefði eftir margra mánaða vinnu aðeins tekist að þefa
uppi smábrot af henni .
Hann segist hafa hitt Assange á Íslandi, sem hafi
á þeim tíma verið að íhuga að setjast að á landinu .
Skömmu síðar hafi hann tekið að sér aukavinnu fyrir
WikiLeaks og aðstoðað við að setja saman mynd um
skotárás Bandaríkjamanna í Bagdad . Hann hafi meðal
annars farið til Bagdad til að ræða við fjölskyldur
fórnarlamba árásarinnar og efnið hafi verið flutt á
RÚV og WikiLeaks .
Á hinn bóginn hafi dræm viðbrögð við efninu –
frá því hafi varla verið sagt – aðeins staðfest vantraust
hans í garð hefðbundinna miðla . Skömmu síðar hafi
hann yfirgefið RÚV og snúið sér alfarið að störfum í
þágu WikiLeaks . Hann hafi þá talið WikiLeaks nýja
tegund af blaðamennsku þótt margir aðrir fréttamenn
væru annarrar skoðunar .
Hann segir að WikiLeaks hafi líklega tapað milljón
um dollara í desember 2010 þegar Visa, MasterCard
og PayPal lokuðu reikningum vefsíðunnar . Síðustu 24
klukkustundir fyrir lokun hafi runnið 130 þúsund
evrur inn á reikning síðunnar frá gefendum sem
notuðu Visa eða MasterCard .
Ástralski blaðamaður segir að þrátt fyrir and streymi
og fúkyrði sé Kristinn reiðastur yfir lokun reikn ing
anna . „Myndum við þola það ef Visa tæki upp á því
að loka á The New York Times?“ spyr Kristinn og sýnir
fyrstu merki um tilfinningahita .
„Menn geta enn stutt Ku Klux Klan með greiðslukorti
en ekki WikiLeaks . Menn geta keypt klámefni á
netinu með því að nota Visa eða MasterCard en þeir
geta ekki stutt WikiLeaks – félagsskap sem ekki hefur
verið sakaður um neitt . Þetta er óþolandi .“
Það léttist á honum brúnin þegar hann er spurður
hvort hann hafi áhyggjur af því að störfum hans við
venjulega fjölmiðla kunni að vera lokið fyrir fullt og
allt .
„Mig grunar að hefði ég ekki farið til starfa
með WikiLeaks hefði ég nú þegar sagt skilið við
blaðamennsku, hún dró mig svo niður .“
Hvað mundi hann þá fara að gera? „Ég mundi
líklega fá mér bát og róa til fiskjar við Ísland . Ná í
síðasta þorskinn okkar,“ segir hann með sjaldséðu