Morgunblaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 15
Náttúrulækningafélag Íslands
Laugavegi 7 - 101 Reykjavík - Sími: 552 8191 - www.nlfi.is
Ályktanir 35. landsþings
NLFÍ 19. september 2015
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Erfðabreyttar lífverur – ræktun
erfðabreyttra plantna á Íslandi
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að banna
með öllu útiræktun á erfðabreyttum lífverum og
undirbúa að Ísland verði sem fyrst lýst land án
erfðabreyttra lífvera.
Erfðabreyttar lífverur - innihaldslýsingar
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til þess að tryggja
með auknu eftirliti og eftirfylgni að innflytjendur
og framleiðendur hlíti ákvæðum reglugerðar um
merkingar á matvælum sem framleidd eru úr
erfðabreyttum lífverum og afurðum þeirra.
Lífrænt vottuð framleiðsla
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að móta stefnu
um eflingu lífrænnar framleiðslu á Íslandi og að
taka upp skipulegan stuðning við lífræna aðlögun í
landbúnaði.
Vísindalegum rannsóknum fjölgar sem sýna fram
á að lífrænar aðferðir auka langtíma hagkvæmni í
framleiðslu, hafa jákvæð áhrif á lífríki og umhverfi,
auka næringarefnainnihald matvæla og stuðla að
bættu heilsufari.
Matvara með lífræna vottun er án erfðabreyttra
afurða.
Börn og unglingar
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að gera öllum
leik- grunn- og framhaldsskólum kleift að kenna
leiðina til heilbrigðis. Heilsueflandi samfélag er lykill
að árangri.
Hæfileg hreyfing, nægur svefn, hvíld, hollt mataræði
og jákvæð félagsleg gildi eru lykill að velferð þessa
hóps.
Viðbættur sykur og unnin kolvetni
Landsþing NLFÍ varar við miklu framboði á vörum
með viðbættum sykri og unnum kolvetnum.
Landsþingið hvetur söluaðila til að fjarlægja sælgæti
frá afgreiðslukössum og draga úr auglýsingum
matvara sem ríkar eru af viðbættum sykri og unnum
kolvetnum. Framfylgja þarf undantekningalaust
reglum um merkingar á umbúðum matvæla um
magn viðbætts sykurs.
Áfengi og önnur vímuefni
Landsþing NLFÍ hvetur til aukinnar fræðslu í
grunn- og framhaldsskólum um skaðsemi áfengis og
annarra vímuefna. Landsþingið skorar á stjórnvöld
að fylgja eftir banni við áfengisauglýsingum og
herða viðurlög á brotum gegn þeim.
Tóbak
Landsþing NLFÍ fagnar þeim árangri sem náðst
hefur í tóbaksvörnum á Íslandi og hvetur stjórnvöld
til að taka skrefið til fulls og banna reykingar á
almannafæri.
Hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar
Landsþing NLFÍ hvetur til aukinnar samþættingar
hefðbundinna lækninga og viðbótarmeðferða. Með
viðbótarmeðferð er átt við meðferð sem ekki hefur
verið talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu
en sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að
nýtist samhliða hefðbundinni meðferð eða sem
sjálfstæð meðferð.
Umhverfi
Landsþing NLFÍ minnir á að hreint náttúrulegt
umhverfi er mikilvægur þáttur í lífi og heilsu fólks.
Landsþing NLFÍ hvetur stjórnvöld til að standa vörð
um ósnortin víðerni í náttúru Íslands.