Morgunblaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, lögg. fastsali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fastsali.
Markarflöt - Garðabæ
Glæsilegt 315 fermetra einbýlishús að meðtöldum
42,0 fermetra bílskúr á virkilega fallegum
og rólegum útsýnisstað innarlega á Markarflöt í
Garðabæ.
Að innan er eignin nýlega endurnýjuð á afar
vandaðan og smekklegan máta og er í góðu
ástandi. Allar lagnir innan hússins hafa verið
endurnýjaðar nýlega. Að utan er eignin í góðu
ástandi.
Eignin skiptist m.a. í rúmgóðar og bjartar stofur
með útgengi á verandir til suðurs og vesturs,
glæsilegt eldhús, þrjú til fjögur barnaherbergi og
þrjú baðherbergi auk rúmgóðrar hjónasvítu með
sér baðherbergi og fataherbergi auk útgengis á
verönd.
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
PARHÚS á tveimur hæðum með innbyggða bílgeymslu. Stærð alls
241,1 fm. Gróin og falleg lóð. Innkeyrsla að húsinu er lögð
steinhellum með hita.
Hagasel - 109 Rvk - Parhús
Allar nánari uppl. gefur Ólafur
í s: 896-4090 eða olafur@kjoreign.is
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
brids@mbl.is
Bridsfélag Suðurnesja
og Muninn
Vetrarstarfið hefst nk. miðviku-
dag með eins kvölds tvímenningi og
hefst spilamennskan kl. 19.
Ef fram heldur sem horfir má
vænta breytinga á starfsemi klúbb-
anna, sem verða kynntar skráðum
félagsmönnum síðar í vetur.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Fimmtudaginn 24. september var
spilaður tvímenningur á 12 borðum
hjá bridsdeild FEB í Reykjavík
Efstu pör í N/S
Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgas. 267
Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 249
Sigurður Lárusson – Logi Þormóðss. 237
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 235
A/V
Jón H. Jónsson – Bergljót Gunnarsd. 280
Elín Guðmanns.- Friðgerður Benedikts. 247
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 244
Svanh. Gunnarsd. – Magnús Lárusson 226
Spilað er í Síðumúla 37
25 pör hjá eldri borgurum
í Reykjavík
Mánudaginn 21. september mættu
25 pör í tvímenning hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Efstu pör í N/S:
Kristján Guðmss. – Kristín Guðmundsd. 348
Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 326
Hallgrímur Jónss.- Örn Isebarn 323
Sigurður Lárusson – Logi Þormóðss. 314
A/V:
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 345
Bjarni Þórarinss. – Gunnar Jónsson 345
Jón H. Jónss. – Bergljót Gunnarsd. 329
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 321
Spilað er í Síðumúla 37.
Rólegt í
Gullsmára
Það var rólegheitabrids í Kópvog-
inum sl. fimmtudag. Spilað var á 10
borðum. Úrslit í N/S:
Pétur Antonsson - Guðlaugur Nielsen 208
Sigtryggur Ellertss. - Rúnar Sigurðss. 195
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 194
A/V:
Ágúst Vilhelmsson - Kári Jónsson 215
Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 187
Reynir Bjarnason - Sigurður Gíslason 176
Spilað var á 11 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 17. september.
Úrslit í N/S:
Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 240
Samúel Guðmundss. - Jón Hanness. 230
Hermann Guðms. - Magnús Marteinss. 197
Ari Þórðarson - Sigurður Björnss. 186
A/V
Guðbjörg Gíslad. - Sigurður Sigurðss. 195
Ásgeir Gunnarss. - Einar Kristinss. 184
Sigurður Njálss. - Pétur Jónsson 182
Ragnar Ásmundss. - Sveinn Sigurjss. 177
Guðm.Pálsson - Sveinn Símonars. 177
Margir eru búnir
hæla Degi B. Egg-
ertssyni í hástert fyr-
ir það fáheyrða hug-
rekki og gáfnamerki
að hafa dregið idjóta-
samþykkt sína og
meirihlutans til baka
og viðurkenna stór-
felld mistök sín og
biðjast afsökunar á
dómgreindarleysi
sínu, fúski og rugli.
(Ég hef reyndar hvergi séð hann
biðjast afsökunar). Það er ekki á
hverjum degi sem stjórnmálamenn
sýna þann hetjuskap að viðurkenna
aulaskap sinn. Sumir vinstrimenn
húðskamma hann reyndar fyrir að
hafa dregið rugl sitt til baka og
vilja að hann klúðri hlutunum
ennþá meira en orðið er með þeim
rökum að bágur efnahagur lands-
ins eigi að víkja fyrir mannrétt-
indum, eins og það sé í verkahring
smáborgarstjóra að bjarga heim-
inum, en svo eru aðrir vinstrimenn
niðrá jörðinni sem segja að hann
sé „maður af meiru“ og „maður að
meyru“ fyrir að hafa séð að sér.
Þeir virðast aldrei ætla að geta
lært að koma þessum einfalda
frasa skammlaust frá sér.
Dagur brýtur blað – og lög
Sú góða dama, Katrín Júl-
íusdóttir, varaformaður Samfylk-
ingarinnar, gengur svo langt að
segja að Dagur hafi hvorki meira
né minna en „brotið blað í íslenskri
pólitík með því að viðurkenna að
honum og meirihlutanum hafi orðið
á mistök...“ og segir: „Þetta er það
sem við höfum verið að kalla eftir.“
Já. Akkúrat. Svona viljum við
hafa stjórnmálamennina. Þeir eiga
að klúðra hlutunum big time,
reyna svo að klóra sig útúr vand-
anum, hlaupa úr einu lygahorninu í
annað og neyðast svo til að við-
urkenna þjóðhættulega glópsku
sína og stjarnfræðilegt dómgreind-
arleysi og muldra svo afsökunar-
beiðni oní hálsmálið og málið dautt.
Svona eiga menn að vera. „Þetta
er það sem við höfum verið að
kalla eftir.“ Lútum höfði í auðmýkt
og færum Degi gull, reykelsi og
myrru.
Jón Gnarr var alveg með’etta
Ég efast samt um að Dagur hafi
„brotið blað í íslenskri pólitík“ með
því að viðurkenna ax-
arsköft sín og handa-
bakavinnubrögð. Ég
man nú ekki betur en
að fyrirrennari hans
og fyrirmynd, Jón
Gnarr, hafi fátt annað
gert sem borgarstjóri
en að viðurkenna mis-
tök og biðjast afsök-
unar. Þetta var full
time job. Ef eitthvað
var gert þá voru það
mistök og þau voru
viðurkennd og beðist
afsökunar. Svona
gekk þetta árið um kring. Mistök,
þau viðurkennd, beðist afsökunar.
Þetta var Dags-skipunin.
Vanhæfni er
vanmetinn kostur
Gnarrinn var hreinskiptinn og
var alltaf fyrstur manna til að við-
urkenna að hann vissi minna en
ekkert um málefni borgarinnar og
að hann hefði ekki hugmynd um
hvort hann væri að koma eða fara.
Er hægt að hugsa sér betri eig-
inleika sem geta prýtt borg-
arstjóra? Þetta er það sem þarf í
djobbið. Vanhæfni og hreinskilni:
Að viðurkenna að það sé ekki til sá
hlutur innan borgarkerfisins sem
maður hafi minnsta skilning á.
Maður sá hann ekki öðruvísi í
sjónvarpinu en að biðjast afsök-
unar á einhverju klúðri og við-
urkenna að hann hefði ekkert vit á
þessu og hefði ekki sett sig inní
málin því hann væri með athygl-
isbrest og gæti ekki haldið sér
vakandi á fundum sökum leiðinda
og vissi í raun ekkert hvað hann
væri að gera þarna. Svona eiga
borgarstjórar að vera. Og þess-
vegna var hann svona vinsæll og
dáður sem borgarstjóri. Hann við-
urkenndi nefnilega að hann væri
úti að aka í öllum málum og vissi
ekkert í sinn haus. Og þessvegna
urðu þeir svona góðir vinir, hann
og Dagur. Þeir áttu svo margt
sameiginlegt.
Moskva og moska
Það var einmitt Jón Gnarr sem
átti þá hugmynd að fara með smá-
borgarstjóraembættið í útrás og
slíta sambandinu við Moskvu fyrir
að brjóta á réttindum samkyn-
hneigðra. Hann sendi umvönd-
unarbréf til Moskvu en var ekki
svarað. Lengra náði það ekki.
Ekki veit ég hversvegna hann
sendi ekki svipað bréf til Sádi-
Arabíu, Írans og annarra músl-
imaríkja en þessi hugmynd hans
var semsé kveikjan að þeirri van-
hugsuðu ruglsamþykkt sem núver-
andi meirihluti var að draga til
baka.
Þó að Jón hafi ekki náð að slíta
sambandinu við Moskvu fyrir að
brjóta á réttindum samkyn-
hneigðra þá bættu hann og Dagur
úr því með því að gefa islamistum
lóð undir mosku en einsog allir
vita þá eru samkynhneigðir í há-
vegum hafðir meðal islamista. Að-
eins femínistar og geitur eru
hærra skrifaðar.
Kröfuharka vinstrimanna
Kröfurnar sem vinstrimenn gera
til borgarstjóra síns, hvort sem
hann heitir Jón Gnarr, Dagur Bé,
Hómer Simpson eða whatever, eru
mjög, mjög miklar, hvort sem fólk
trúir því eða ekki. Næstum því of-
urmannlegar. Þær ganga útá það
að hann kunni að viðurkenna allt
sitt klúður, glópsku, dómgreind-
arleysi, fíflsku, fúsk og fáfræði, og
kunni jafnvel líka að biðjast afsök-
unar á afglöpum sínum í starfi. Ef
hann kann þetta tvennt, og jafnvel
ekkert annað, þá er hann virkilega
góður og mikilhæfur borgarstjóri í
þeirra augum. Mikill leiðtogi og
stjórnvitringur. Jafnvel hetja.
Vel meint klúður
Ef mistökin eru vel meint þá
eru þau ókei. Ruglið þarf að vera
„sett fram af góðum hug,“ einsog
Dagur orðaði það. Það er nefnilega
hugurinn á bak við klúðrið og
heimskuna sem skiptir máli. Svo
þegar maður er búinn að fokka
öllu upp þá á maður að segja eins-
og Saxi læknir: „Æjæ, þarna skar
ég aðeins of djúpt. Ég er búinn að
stórskemma skurðarborðið. En
þetta var ekki mér að kenna. Sjúk-
lingurinn hreyfði sig of mikið,
enda ódeyfður. Afhverju horfa allir
svona á mig? Ókei þá, ég gerði
smá mistök. En þið hefðuð örugg-
lega ekki gert þetta betur. Það er
alltaf auðvelt að vera vitur eftirá.
Afhverju horfa allir ennþá svona á
mig? Jæja þá, sorrí, ef ykkur líður
betur með það.“
Svona á að gera þetta. Þetta er
það sem stjórnmálamaður þarf að
kunna: Að klúðra hlutunum, játa
klúðrið og biðjast afsökunar á
klúðrinu. That’s it.
Dagur er búinn að gera þetta
þrennt samviskusamlega og því
eru alveg hverfandi líkur á því að
hann muni segja af sér.
Svo skal böl bæta að benda
á eitthvað annað
Ef maður færi fram á það með
eftirfylgni að hann pakkaði saman
þá myndu rök vinstrisinnaða góða
og gáfaða fólksins með réttu skoð-
anirnar vera eitthvað á þessa leið
á bloggsíðum og kommentakerfum
samfélagsmiðlanna, einsog æv-
inlega í öllum málum:
„Hei þú þadna fávitynn þynn,
voru sjallar eyttkvað betry þegar
þeyr voru í meyrihluta í borgynni,
ha? Svaraðu því hellítis rasystinn
þynn. Ertu búinn að gleima Hönnu
Byrnu? Og var það ekky Davýð
Oddson sem samþygti að troða
okkur í Ýrakstríðið? Ha? Var það
eyttkvað betra? Það ætti nú bara
að leggja Sjallaflokkin nyður.
Krystni er sko ekkert betry en
ýslam ef þú heldur það djös údd-
lendingahatarynn þynn, eða ertu
kansky búinn að gleima krozzferð-
onum og öllu þvý? Ha? Akkuru má
ekky hleipa 50.000 flóttamönnum
til lansins? Þetta er bara fólk eins
og við. Sástu ekky mindyna af
druknaða sírlenska stráknum í
fjörunny? Ha? Fynst þér það ekki
næg ástæða tyl að Evróba opny
landamæry sýn uppá gátt og bjóði
5 miljónnyr flóttamanna vel-
kommna frá Myðausturlöndum og
Afrýku og Öfganistan og Alban-
ýju? Ha? Þú ert bara fullur af
mannvonsku. Þú ert bara badna-
morðyngi. Það er málið. Ertu eink-
ver sjalli djösins nasystinn þynn?
Eða ertu kansky giðingarottu-
sleikja með íslamófóbíu hellítys ra-
systadjöfullynn þynn? Ha? Eða
ertu kansky í frammsókn-
arfloknum? Þý hlítur að vera sona
þjóðrembusvín sem kant þjósöng-
inn og Öxar við Árna og alt það og
elskar Ýsland. Vynnuru á Údvarpi
Sögu eða kvað? Þyð eruð bara
óumburðarlint og fordómafult
pakk og vont fólk með ógisslegar
skoðannyr og það ætti að drepa
ikkur öll.“
Jæja. Það er alltaf blessuð blíð-
an.
Mikið er ég nú feginn að vera
almennilegt illmenni með rangar
skoðanir á öllum hlutum.
Er hetjuskapur að
viðurkenna aulaskap sinn?
Eftir Sverri
Stormsker
» Svo þegar maður er
búinn að fokka öllu
upp þá á maður að segja
einsog Saxi læknir:
„Æjæ, þarna skar ég að-
eins of djúpt. Ég er bú-
inn að stórskemma
skurðarborðið.“
Sverrir
Stormsker
Höfundur er tónlistarmaður
og rithöfundur.