Morgunblaðið - 26.09.2015, Side 34

Morgunblaðið - 26.09.2015, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015 ✝ Dóra BjörkGústafsdóttir fæddist 10. október 1970. Hún lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 13. september 2015. Dóra Björk var dóttir Guðnýjar Ingigerðar Ósk- arsdóttur, f. 4.10. 1948, og Gústafs Adolfs Andr- éssonar, f. 21.1. 1946. Fóst- urfaðir hennar var Einar Stein- grímsson, f. 22.12. 1951. Eiginmaður Dóru er Jón Ólaf- ur Daníelsson, f. 31.3. 1967. Börn Dóru Bjarkar eru Daníel Freyr Jónsson, f. 24.5. 1994, Tanja Rut Jóns- dóttir, f. 28.5. 1996, Guðný Ósk Jóns- dóttir, f. 27.10. 2001, og Einar Þór Jónsson, f. 21.3. 2004, og barna- barnið Svava Björk Daníelsdóttir, f. 18.12. 2012. Systk- ini Dóru Bjarkar eru Gústaf Adolf Gústafsson, f. 31.1. 1974, Guðrún Erla Gúst- afsdóttir, f. 18.2. 1972, og Dóra Hrönn Gústafsdóttir, f. 26.8. 1970. Útförin fer fram frá Landa- kirkju í dag, 26. september 2015, kl. 13. Elsku Dóra mín. Það eru nokkur atriði sem mér eru efst í huga á lífsleið okkar. Dagarnir fjórir þegar börnin okk- ar fæddust, dagurinn sem Svava Björk kom í heiminn og við litum á hvort annað og gátum ekki annað en hlegið af hamingju, enda orðin amma og afi þótt okkur hafi fund- ist við aðeins of ung í það. Síðan dagurinn okkar fyrir svo stuttu, sjálfur brúðkaupsdagurinn, en þá hafði ég beðið eftir því að fá þig upp að altarinu í 15 ár því þú ját- aðist mér jú, á gamlársdag árið 2000. Elsku Dóra mín, þakka þér líka fyrir uppeldið á börnunum okkar fjórum, þau eru vel upp alin og miklir mannvinir eins og þú. Elsku Dóra mín, ég mun alltaf sakna þín og hlakka til að hitta þig aftur. Ástarkveðja, Jón Óli. Elsku mamma, við viljum senda þér eina sameiginlega minningar- grein því okkur líður alltaf best þegar við erum öll saman. Við vilj- um líka segja þér meira í bréfun- um sem við sendum þér í kistuna þína fallegu. Takk, elsku mamma, fyrir að vera alltaf til staðar fyrir okkur þegar við þurftum á þér að halda. Þú gast alltaf hjálpað okkur og þú virtist eiga endalausan tíma fyrir okkur. Þú varst svo hlý og góð og manni leið svo vel nálægt þér. Það er svo margs að minnast í lífi okk- ar en það er okkur mjög ofarlega í huga þegar þú og pabbi fóruð með okkur öll til Tenerife, bæði þegar við fórum með Heimi og fjölskyldu og einnig þegar við fórum með Gunnu og fjölskyldu. Það sem gerði þessar ferðir svo einstakar var að þarna náðum við öll að vera saman án þess að vera trufluð og pabbi þurfti ekki að vera í vinnu. Það var svo ótrúlegt hvað þú náðir að sinna okkur öllum á þinn ein- staka hátt þrátt fyrir að vera ekki með þann þrótt sem fólk á að hafa. Við munum alltaf sakna húmors- ins góða þegar þú náðir að æsa okkur upp á þinn einstaka hátt og fékkst okkur til að trúa ótrúleg- ustu hlutum áður en þú leiðréttir það á þinn einstaka hátt. Þegar við höfðum áhyggjur af lífinu þá komst þú með þína hlýju og öryggi og allt varð gott á ný. Þú lést okk- ur aldrei finna það að þú værir veik. Þú varst algjör hetja, þú varst kletturinn óbifanlegi í lífi okkar. Elsku mamma okkar, hvíldu þig vel og góða ferð. Við hlökkum svo mikið til að hitta þig aftur. Ástarkveðja, Daníel Freyr, Tanja Rut, Guðný Ósk og Einar Þór. Elsku amma mín, þakka þér fyrir að passa mig og ofdekra mig þegar ég þurfti á að halda. Ég veit að afi var ekki alltaf sáttur þegar þú varst að ofdekra mig en ég og þú vitum að hann er bara gamall og pínulítið vitlaus karl. Ég hlakka svo mikið til þegar ég verð eldri og get farið að bera fallegu skartgrip- ina þína og nota aðra fallega hluti sem þú átt. Þú veist að ég mun alltaf elska þig og ég veit að þú munt alltaf elska mig. Elsku amma, ég hlakka svo mikið til þegar við hittumst aftur og þú ferð að ofdekra mig á ný. Ástarkveðja, Svava Björk. Elsku systir. Nú er hetjulegri baráttu þinni við þennan illvíga sjúkdóm lokið. Í níu ár háðir þú þetta stríð sem því miður hafði betur að lokum. Það sem þú ert búin að standa þig vel í þessu veikindum þínum, aldrei heyrði ég kvart eða kvein frá þér. Síð- ustu vikur varst það þú sem tos- aðir okkur upp úr hyldýpinu og hughreystir á erfiðum tímum þeg- ar ljóst var að ekki varð við neitt ráðið. Þú ert hetja, svo mikil hetja, að geta alltaf séð það já- kvæða og verið kát og glöð þrátt fyrir þessi ömurlegu veikindi þín í öll þessi ár. Ég kveð þig með miklum sökn- uði en jafnframt svo þakklátur fyrir allar góðar minningar sem ég á um þig og okkur sem ég mun ætíð geyma vel í hjarta mér. Ég er svo stoltur af hversu falleg og góð sál þú varst elsku, elsku Dóra mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Svo ótal fallegar minningar um þig, kæra systir, leita nú á hug- ann. Mér þykir alveg óendanlega vænt um þig og hlakka til að hitta þig aftur á öðrum stað þegar minn tími kemur, á meðan skal ég gera allt sem ég get til að passa upp á gersemarnar þínar. Elska þig og sakna þín. Hvíldu í friði. Þinn bróðir, Gústaf (Gústi). Elsku, fallega, stóra systir, Dóra Björk, hefur kvatt þennan heim eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm, baráttu sem stóð í níu ár. Hún var sannkölluð hetja þessi elska og alltaf var hún jákvæð og dugleg í sinni baráttu. Elsku systir, það var svo gott að leita til þín með alla hluti, þú varst svo hjálpsöm og blíð, vildir allt fyrir alla gera, sannur engill. Elsku systir, við vorum ekki bara systur heldur líka bestu vinkonur alla tíð. Ég get ekki lýst því hvað ég á eftir að sakna þín mikið, elsku systir mín, nú þegar ég hugsa til baka rifjast upp endalausar hlýj- ar minningar sem fá mig til að brosa í gegnum tárin. Minningar sem svo gott er að eiga og rifja upp til að lýsa og ylja sér við. Við vorum öll svo náin, fjölskyldurnar náðu svo vel saman, krakkarnir allir á sama reki og gaman að vera til. Við gerðum svo margt saman, elsku systir. Elsku systir mín, þú verður alltaf til staðar í hjarta mínu, fal- legi engillinn minn. Ég vildi óska þess að þú hefðir fengið meiri tíma með okkur öllum en nú ert þú komin á annan stað þar sem þú þjónar fallegu og mikilvægu hlut- verki. Við hittumst seinna, elsku besta systir mín, ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið alla ævi því enginn getur komið í þinn stað, ég elska þig endalaust, fal- legust. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér. Skrítið stundum hvernig lífið er. Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig, þarf ég bara að sitja og hugsa um þig þar er eins og að losni úr læðingi lausnir, öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér. Og ég veit að þú munt elska mig og geyma mig og gæta hjá þér. Þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf geta huggað mig. Það er eins og þú sért hér hjá mér og leiðir um mig veg. Þegar tími minn á jörðu hér liðinn er og þá ég burtu fer, þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir.) Elsku systir, ég skal hjálpa til við að passa alla gullmolana þína. Sakna þín, þín systir. Guðrún Erla Gústafsdóttir. Elsku, elsku, Dóra mín. Orð fá því ekki lýst hversu sárt það er að skrifa um þig þessa minningargrein, elsku engill. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur og það er svo sárt að vita að við eigum ekki eftir að hitta þig aftur og sjá fallega brosið þitt eða stríðnisglottið. Fyrir tæpum 24 árum var ég svo lánsöm að kynnast þér þegar ég kom inn í fjölskylduna ykkar, þá feimin 16 ára stelpuskjáta. Feimnin var fljót að hverfa þegar ég var farin að venja komur mín- ar á Smáragötuna enda ekki ann- að hægt því mikið líf og fjör var á ykkur systkinunum á þessum tíma og voru partíin ófá hjá ykkur á neðri hæðinni. Það sem ykkur datt í hug og er ég nokkuð viss um að þú áttir oft frumkvæðið enda stuðbolti og stríðnispúki fram í fingurgóma og hefur ekki átt erfitt með að ná yngri systk- inunum með þér í það sem þér datt í hug. Partístandið gekk yfir og alvara lífsins tók við og börnin bættust við hvert af öðru, 16 börn hjá ykkur fjórum systkinunum á 15 árum, já gullin okkar eru mörg og yndisleg og þau munum við passa vel. Þú varst með eindæmum hjálpsöm, blíð og góð en alveg hrikalega stríðin og hefur þú lík- lega hlegið mikið í allri leitinni sem var gerð að umslögunum góðu nokkrum dögum eftir að þú kvaddir, hvernig datt þér í hug að fela þetta þarna? Þetta var samt svo líkt þér. Við erum búin að brosa og hlæja mikið að þessu. Fyrir krakkana okkar var aldrei neitt mál að fá að gista hjá Dóru, alveg sama hvort þú varst í meðferð eða ekki. Alltaf var pláss fyrir auka gemlinga á heimilið, þú elskaðir að hafa krakkana hjá þér og þau elskuðu að fá að gista. Ég er svo glöð að þú hafir fengið að upplifa ömmuhlutverk- ið, Dóra mín, og gat hún litla dásamlega Svava Björk ekki ver- ið heppnari með ömmu og átti hún sko ekki í vandræðum með að vefja þér um fingur sér. Þú varst svo mikil hetja í þess- ari baráttu við krabbameinið síð- astliðin 9 ár, tókst þessu verkefni af æðruleysi og við vonuðum svo heitt og innilega að þú myndir sigra í þessari baráttu. Í veikind- unum þínum var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þú tókst á hlutunum, reyndir allt til að læknast, já þú varst tilbúin til að ganga alla leið ef það yrði til þess að þú myndir ná bata. Þú ert búin að standa þig svo ótrú- lega vel og aldrei nokkurn tím- ann heyrði ég þig kvarta, undir lokin varstu þó orðin þreytt en samt kvartaðir þú ekki og varst tilbúin að berjast fram á síðasta dag. Þú ert hetja og það er fjöl- skyldan þín líka, þau hafa staðið sig svo ótrúlega vel síðustu mán- uði. Við munum gera allt, allt sem hægt er til þau komist heil út úr þessum harmleik, Dóra mín. Ég er svo endalaust þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig að í þessi ár, elsku engill. Ég veit þú vakir yfir okk- ur, leiðir okkur og verndar. Góða ferð á nýjan stað og ég veit að þar sem þú ert núna hefur verið vel tekið á móti þér og nú líður þér aftur vel. Við sjáumst svo aftur þegar minn tími kemur. Megi Guð styrkja, hugga og umvefja hlýju fjölskyldu og vini Dóru á þessum sorgartímum. Elska þig. Þín mágkona, Guðný. Með þakklæti og virðingu langar mig með að minnast elskulegar mágkonu minnar, Dóru Bjarkar Gústafsdóttur, með nokkrum orðum. Það er sumarkvöld í Vestmannaeyjum árið 1993 og leið mín liggur til Eyja, þar kynnist ég konunni minni og í kjölfarið að sjálfsögðu Dóru Björk mágkonu minni. Þegar litið er til baka þessi rúm- lega 20 ár rifjast upp endalausar minningar og margar gleði- stundir sem við fjölskyldurnar áttum saman á þessum tíma bæði innanlands sem utan. Þær systur voru jú ekki bara systur heldur voru þær bestu vinkonur sem þýddi að þær urðu helst allt- af að vita hvor af annarri. Dóra Björk var einstök í alla staði, hún var hjartahlý með ein- dæmum, hugsaði vel um sig og sína, var róleg og hlédræg, með hnitmiðaðan húmor og góða nær- veru. Einn af kostum hennar, sem kannski ekki allir vissu af, var að henni þótti afskaplega gaman að koma okkur á óvart á sinn einstaka hátt, en í henni leyndist skemmtilegur „stríðnis- púki“ sem fékk oft að njóta sín í góðra vina hópi. Fyrir níu árum greindist Dóra Björk með ristilkrabbamein. Í baráttu við þennan illvíga sjúk- dóm lét hún ekki slá sig út af lag- inu, barðist eins og hetja allan þennan tíma með bjartsýni og æðruleysi að vopni. Dóra var ekkert að tala of mikið um sín veikindi heldur hélt sínu striki eins og sannur baráttujaxl. En nú ertu, elskuleg mág- kona, farin á annan stað til að sinna mikilvægum störfum og þeim munt þú sinna af kostgæfni eins og þér einni er lagið. Á þess- um stað munt þú taka á móti okkur öllum þegar fram líða stundir eins og þinn ástkæri eig- inmaður og yndislegu börn tala um. Elsku Jón Óli, Daníel Freyr, Svava Björk, Tanja Rut, Guðný Ósk og Einar Þór, það verða fagnaðarfundir. Dóra Björk Gústafsdóttir Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda MEÐ VIRÐINGU OG KÆRLEIK Í 66 ÁR Útfarar- og lögfræðiþjónusta www.útför.is Elsku sonur okkar, bróðir og mágur, DAVÍÐ ÞÓR EGILSSON, lést af slysförum 19. september síðastliðinn. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarathöfn sem fer fram í Fella- og Hólakirkju mánudaginn 28. september kl. 17. Útförin fer fram í kyrrþey. . Arnheiður M. Þórarinsdóttir Jón Þ. Steinþórsson, Egill Geirsson, Linda Björg Arnheiðardóttir, Ægir Freyr Stefánsson, Hildur Birna Egilsdóttir, Jose MBA, Herdís María Jónsdóttir, Elísa Dagrún Jónsdóttir og aðrir ástvinir. Ástkær móðir mín, amma okkar, langamma og langalangamma, RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR, Dvalarheimilinu Blesastöðum (áður Strikinu 8, Garðabæ), lést á Landspítalanum mánudaginn 21. september. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 1. október klukkan 13. . Ásdís Einarsdóttir og aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR frá Firði á Seyðisfirði, Giljaseli 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 24. september. Minningarathöfn fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 1. október klukkan 17. Útför fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 3. október klukkan 14. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. . Haraldur Einar Leifsson, Katrín Helgadóttir, Sigurbjörg Þóra Leifsdóttir, Bjarki Viðarsson, Ólafur Þór Leifsson, Stefán Jón Sigurðsson og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR Í. ÁMUNDASON löggiltur endurskoðandi, lést á heimili sínu, Dalbraut 14, Reykjavík, þann 16. september 2015. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Bestu þakkir og kveðjur færum við vinum, vandamönnum, Brynjari lækni, dagdeild 11C og Karitas heimahjúkrun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Karitas heimahjúkrun og aðrar líknarstofnanir. . Jóhanna Óskarsdóttir, Finnur Ísfeld Sigurðsson, Málfríður Vilmundardóttir, Sigríður Lóa Sigurðardóttir, Ævar Örn Ævarsson, Jóhanna Sif, Ámundi Örn Ísfeld, Ólafía Ósk, María Lóa, Sigurður Ísfeld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.