Morgunblaðið - 26.09.2015, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2015
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Umslagið á þessari plötu semnú verður tekin til kost-anna er eitt það flottasta
sem ég hef lengi séð. Sláandi. Og
myndin sem það prýðir fylgir
greininni. Ég varð svo hugfanginn
að ég ákvað óðar að skrifa um plöt-
una, segið síðan að umslög og
framsetning skipti ekki máli á
þessum síðustu og bestu! Dave
Rawlings, sem leiðir nefnda „vél“,
er helsti samstarfsmaður blágresis-
söngkonunnar þekktu Gillian
Welch en fyrir sex árum ákvað
hann að sinna eigin tónlist í ríkari
mæli og gaf þá út plötuna A Friend
of a Friend undir heitinu Dave
Rawlings Machine. Welch tók og
þátt þá en það er víst málum bland-
ið hvort þau séu par í platónskum
skilningi eða amorskum.
Bjarteygður
Umslagið sem tryllti pistlahöf-
und kallar fram önnur umslög,
helst þá John Wesley Harding eftir
Bob Dylan og Déjà Vu eftir Crosby,
Stills, Nash & Young. Um þær plöt-
ur, eins og þessa, leikur róm-
antískur andi í garð horfinna tíma,
þegar Bandaríkin voru í umróti um
miðja nítjándu öld eða svo, frjálsir
útlagar og bjarteygðir bændur
festu sér jarðir og létu sig dreyma
um nýtt og gefandi líf. Tónlist
Rawlings er innstillt á þetta, rétt
eins og tónlist Welch. Áður en
lengra er haldið er rétt að kynna
Welch eilítið en það var um miðjan
tíunda áratuginn sem hún steig
fram sem helsti endur-
reisnarlistamaðurinn í amerískri
þjóðlagatónlist, þá af appalasíu- og
blágresismeiði. Fyrsta plata henn-
ar bar titil við hæfi (Revival, 1996)
og hún þjófstartaði í raun „americ-
ana“-æðinu sem brast á í kjölfar
myndar Cohen-bræða, O Brother,
Where Art Thou?
Í þá gömlu
góðu daga …
Gamalt Nei lesandi góður, myndin var tekin á þessu ári, ekki árið 1865.
Fyrsta plata Rawlings minnti á
margan hátt á plötur Welch og
ekki að undra þar sem hann átti
mikinn þátt í hljóðheimi þeirra; sá
um upptökustjórn, lagasamningu,
spilerí o.s.frv. Hljómurinn fór þó
ögn meira út fyrir blágresið og
komu þar til samstarfsmenn Rawl-
ings eins og Ryan Adams, Bright
Eyes og Benmont Tench, píanóleik-
ari Toms Pettys. Vísir að einhvers
konar samtímarokki gáraði því
undir hljóðmyndinni.
Segulband
Á Nashville Obsolete er hins
vegar að finna mun strípaðri tón-
list og það má nánast segja að hún
sé svefndrungaleg. Hún byrjar að
vísu á laginu „The Weekend“ sem
minnir ekki lítið á það sem Neil Yo-
ung var að gera á Harvest. En svo
er siglt inn í dimmt kjarrið og plat-
an hvelfist í kringum hið tíu mín-
útna langa „The Trip“, smíð sem
lötrar áfram af stórkostlegri reisn,
meistarastykki svo sannarlega.
Platan var tekin upp á segulband
(nema hvað) í Woodland-hljóð-
verinu í Nashville og eru lögin öll
eftir þau Rawlings og Welch. Paul
Kowert, úr hinni frábæru Punch
Brothers (tilraunakennt blágras.
Já, ég veit!), er þá orðinn hluti af
bandinu ásamt gítarleikaranum
Willie Watson.
No Depression, breskt tímarit/
vefsíða sem sérhæfir sig í amerík-
ana-tónlistinni, spjallaði við Rawl-
ings vegna plötunnar og þar lýsir
hann henni sem mun heilsteyptara
verki en því fyrsta, sem hafi verið
meira eins og safn af efni frá fimm
ólíkum plötum, uppsöfnuð lög frá
ýmsum tímum. Nú var hins vegar
lagt af stað með einþykka áætlun í
tættum gallabuxnavösunum og
uppskeran eftir því.
» Á Nashville Obsol-ete er hins vegar að
finna mun strípaðri tón-
list og það má nánast
segja að hún sé svefn-
drungaleg.
Dave Rawlings Machine gefur út Nashville Obsolete
Tón-unnusti Gillian Welch stígur fram fyrir skjöldu
Þann arf vér bestan fengum nefnist
sýning á íslenskum biblíuútgáfum
sem opnuð verður í Þjóðarbókhlöð-
unni í dag kl. 13. Sýningin er sam-
starfsverkefni Landsbókasafns Ís-
lands – Háskólabókasafns og Hins
íslenska biblíufélags. Þar getur að
líta allar útgáfur Biblíunnar á ís-
lensku allt frá hinni fyrstu árið 1584.
Hið íslenska biblíufélag er elsta
starfandi félag á landinu og fagnar
200 ára afmæli árið 2015.
Stjórnandi sýningarinnar er Dögg
Harðardóttir, varaforseti Hins ís-
lenska biblíufélags. Við opnun sýn-
ingarinnar flytur sr. Sigurður Æg-
isson erindi um biblíuþýðingar og sr.
Hreinn Hákonarson erindi um
Konstantín von Tischendorf, biblíu-
og handritasérfræðing, auk þess
sem Þórunn Harðardóttir víóluleik-
ari spilar fyrir sýningargesti.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, ritar innganginn að sýning-
arskránni. „Með því að bera saman
textana frá einni útgáfu til annarrar
kynnumst við vel þróun tungumáls
okkar í meira en fjórar aldir og ger-
um okkur betur grein fyrir málfari í
daglegu lífi kynslóðanna,“ segir
Agnes og heldur áfram: „Sem trúar-
rit hafa textar Biblíunnar reynst
óþrjótandi uppspretta, veitt huggun
í sorg og uppörvun í önnum dag-
anna. Margir textanna hafa fyrir
sannindi sín og fyrirheit, visku og
meitlað málfar unnið sér sess í huga
og sál ungra sem aldinna. Tilvitnanir
í texta hinnar helgu bókar eiga við á
öllum stundum lífsins og margir eru
víðþekktir. […] Einlæg er sú von
mín að þessi sýning megi verða öll-
um sem hana sækja hvatning til lest-
urs Biblíunnar.“
Sýning með íslenskum
biblíuútgáfum opnuð
Sýning í tilefni 200
ára afmælis Hins ís-
lenska biblíufélags
Morgunblaðið/Kristinn
Dýrgripir Á sýningunni í Þjóðarbókhlöðunni getur að líta allar útgáfur
Biblíunnar á íslensku allt frá hinni fyrstu árið 1584 og til dagsins í dag.
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Fös 23/10 kl. 19:00
Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k
Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Lau 17/10 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Sun 18/10 kl. 20:00 aukas.
Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Sun 11/10 kl. 20:00 aukas. Sun 25/10 kl. 20:00 aukas.
Aðeins þessar sýningar!
At (Nýja sviðið)
Mið 30/9 kl. 20:00 6.k. Fim 8/10 kl. 20:00 Fim 15/10 kl. 20:00
Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Fös 9/10 kl. 20:00 Lau 17/10 kl. 20:00
Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Lau 10/10 kl. 20:00
Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k.
Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k.
Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k.
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Fim 1/10 kl. 20:00 1.k. Fim 8/10 kl. 20:00 5.k. Fim 22/10 kl. 20:00 9.k
Fös 2/10 kl. 20:00 2 k. Fös 9/10 kl. 20:00 6.k. Lau 31/10 kl. 20:00 10.k
Lau 3/10 kl. 20:00 3.k. Sun 11/10 kl. 20:00 7.k. Þri 3/11 kl. 20:00
Sun 4/10 kl. 20:00 4.k. Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Fim 5/11 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00
Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00
Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k.
Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Sun 27/9 kl. 20:00 5.k. Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas.
Allra síðustu sýningar!
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn
Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas.
Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn
Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn
Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn
Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn
Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn
Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn
Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 24/10 kl. 19:30 22.sýn
Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 23.sýn
Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 19.sýn
Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 20.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Heimkoman (Stóra sviðið)
Lau 10/10 kl. 19:30 Frums. Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn
Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 10.sýn
Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 11.sýn
Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Lau 26/9 kl. 19:30 Lau 3/10 kl. 18:00
Mið 30/9 kl. 19:30 Sun 4/10 kl. 19:30
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 10/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 13:30
Lau 10/10 kl. 15:00 Lau 17/10 kl. 15:00
Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna.
DAVID FARR
HARÐINDIN
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/