Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.09.2015, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.9. 2015
Nei ekki þú, lesandi góður, ég er alls ekkiað halda því fram að þú sért fífl, ég ermiklu frekar að tala um sjálfan mig.Og
ég ætla að segja hvers vegna.
Ég fagna mjög almennri umræðu á internetinu,
á svokölluðum samfélagsmiðlum. Sú umræða er á
margan hátt frelsandi. Hún opnar fyrir almenn
skoðanaskipti og veitir fólki fyrirhafnarlítið að-
gang að þjóðfélagsumræðunni. Samfélagsmiðlar
eru iðulega uppspretta upplýsandi og gagnrýn-
innar umræðu og þeir sem einhverra hluta vegna
komast ekki að í öðrum fjölmiðlum með sjónarmið
sín geta nýtt sér þennan vettvang fyrir lengri
skrif og styttri. Sumir vefmiðlar bjóða upp á við-
brögð við skrifum annarra. Það getur verið gef-
andi. En líka kæfandi.Og þar er ég kominn að fyr-
irsögninni. Samfélagsmiðlarnir geta nefnilega líka
verið hamlandi og beinlínis beitt til að þagga niður
umræðu. Mörgum finnst að sá sem vogar sér út á
vettvang pólitískrar umræðu hafi gefið á sig skot-
leyfi og að þá sé allt leyfilegt. Líka að segja að við-
komandi sé fífl ef sjálfskipuð skoðanalögregla tel-
ur framlagið ekki falla að leyfilegum rétttrúnaði.
Auðvitað þurfa stjórnmálamenn og aðrir sem
taka þátt í samfélagsumræðu að þola hörð við-
brögð við skrifum sínum. Ekki síst þeir sem hafa
miklar skoðanir og skirrast jafnvel ekki við að
gagnrýna aðra harkalega. Hvers vegna skyldu
þeir ekki hljóta grimm örlög?
Svarið er að enginn á að hljóta þau örlög að
vera afgreiddur með útúrsnúningum og hnjóðs-
yrðum. Það á við – og á að eiga við á samfélags-
miðlum – ekkert síður en í öðrum fjölmiðlum, að
rökum sé beitt, að umræðan sé málefnaleg. Hörð
umræða og gagnrýnin getur verið kurteisleg og
málefnaleg. En einmitt þarna koma veikleikarnir í
ljós, þeim sem ekki ráða við málefnalega fram-
setningu er aðeins fær gífuryrðaleiðin.
Sumir stjórnmálamenn standa utan skotlínu.
Það eru þau sem hafa litlar skoðanir, annað en að
segja að margt sé í mörgu og allt þurfi skoðunar
við; umræða sé góð og þá alls konar umræða og að
flest sé til farsældar ef við bara spjöllum sem
mest saman á netinu góða. Netið verður þannig
markmið í sjálfu sér. Stór hluti þjóðarinnar telur
netið meira að segja vera sjálfan kjarna stjórn-
málanna ef marka má skoðanakannanir.
Auðvitað er það sjónarmið að vilja fylkja sér um
tæknilegt samskiptaform og auðvitað má segja að
umræða um ekki neitt á hinum eftirsótta miðli sé
skaðlaus og óþarfi að amast við henni.
Verra er þegar reynt er að kæfa þá sem þar
vilja taka þátt og hafa eitthvað bitastætt fram að
færa , tillögur og gagnrýni. Allt of oft gerist það
að slíkir aðilar verða fyrir holskeflu svívirðinga og
óbótaskamma, einfaldlega vegna þess hverjir þeir
eru eða hverjir þeir eru taldir vera.
Þöggunarlöggan á netinu er ekki fjölmenn en
svo illskeytt er hún og svo viss er hún í sinni sök
að hún eyðileggur það sem hún segist helst vilja
verja, opin málefnaleg skoðanaskipti. Hvernig
væri að við sameinuðumst öll um nákvæmlega
þetta: að efla málefnalega umræðu? Líka á netinu.
Þú ert fífl!
* Stór hluti þjóðarinnartelur netið meira aðsegja vera sjálfan kjarna
stjórnmálanna ef marka
má skoðanakannanir.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Bryndís Björg-
vinsdóttir rithöf-
undur vakti heims-
athygli með síðunni
Kæra Eygló Harðar
og var mikið að gera hjá henni á Fa-
cebook og víðar: „Þegar maður er
farinn að grafa upp erlendar ras-
istaspjallsíður, þar sem rasistarnir
eru að rífast um hvernig bera skuli
fram íslenska nafnið Bryndís Björg-
vinsdóttir – nafn konu sem þyrfti
að kúga meira svo hún fari ekki að
útrýma síðasta hvíta kynstofninum
með Facebook-event – þá er kom-
in tími til að fara að sofa.“
Stefán Pálsson
lét skoðun sína í ljós
á málefnum flótta-
manna: „Rökin:
„Við erum náttúr-
lega ekki með sálfræðiþjónustu,
túlka og félagsráðgjafa til að taka
við stórum hópum“ – hljóma vel í
fyrstu, en líta fram hjá því að auð-
vitað gildir svipað um alla aðra.
Halda menn að Þjóðverjar eigi á
lager áfallaröskunarteymi fyrir
mörghundruðþúsund manns?“
Hildur Sverris-
dóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, viðraði þá
hugmynd á Face-
book-síðu sinni að hugsanlega ætti
Menningarnótt að verða tekin af
fjárhagsáætlun borgarinnar og fjár-
munirnir settir í að aðstoða flótta-
menn.
Björk Vil-
helmsdóttir borg-
arfulltrúi svarar því:
„Við eigum ekki að
taka af öðrum til að
bregðast við fólki í neyð. Þannig
völdum við andúð á þeim sem „fá“
hjá þeim sem „missa“ eitthvað.
Kristín Soffía Jónsdottir benti á að
spara mætti 200 m.kr. bara við það
að hætta slá umferðareyjar. Enn
betri hugmynd. En 0,5% hækkun á
tekjuskatti myndi líka greiða allan
kostnað og vel það. En fyrst að
bjarga fólki í neyð - það er mannleg
skylda.“
Eva Einarsdóttir skrifaði athuga-
semd hjá Björk: „Mér finnst fínt að
vera opin fyrir öllum hugmyndum
en varðandi Menningarnótt þá er
það enn mikið „grasrótarstarf“
þannig að sú upphæð sem RVK
borg leggur fram margfaldast í
formi þátttöku og kostnaði,
greiddum út af öðrum en borginni
og skattgreiðendum.“
AF NETINU
Vitað er að margir meðlimir bresku
konungsfjölskyldunnar eru aðdá-
endur hinna vönduðu þátta Downton
Abbey. Vilhjálmur Bretaprins hefur
játað að horfa á þættina og hertoga-
ynjan af Cambridge hefur heimsótt
tökustaðinn. Núna er búið að greina
frá því að Elísabet Bretadrottning
sé mikill aðdáandi.
„Hún elskar að finna mistök í
þáttunum,“ sagði Brian Hoey, höf-
undur bókarinnar At Home with the
Queen, við tímaritið People.
Sagnfræðingur starfar handrits-
höfundum til hjálpar til að allt sé
eins rétt og hægt er, til dæmis faðm-
ast fólk ekki í þáttunum því að það
tíðkaðist ekki í upphafi tuttugustu
aldar. Engu að síður eiga mistök sér
stað og drottningin hefur gaman af
því að vita betur en sérfræðingar
þáttanna.
„Drottningin tók eftir því að í ein-
um þætti var breskur hermaður með
orður sem höfðu ekki verið veittar á
þessum tíma. Hann var að berjast í
fyrri heimsstyrjöldinni en bar orður
á brjósti sínu sem voru ekki veittar
fyrr en í síðari heimsstyrjöldinni,“
sagði Hoey.
Af þessu tilefni stingur tímaritið
Vanity Fair upp á því að það væri til-
valið að taka upp athugasemdir
drottningarinnar við þættina. Þeir
yrðu áreiðanlega vinsælir á DVD,
ekki síst þegar fjallað var um
hneyksli úr hennar eigin fjölskyldu.
Slík útgáfa yrði áreiðanlega vinsæl.
Cora og Lady Rose á leið að
hitta konungsfjölskylduna.Drottningin leiðréttir
Downton Abbey
Vettvangur