Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Síða 6
6 – IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005
stöðugildum. Hjá HTM starfa nú átta
iðjuþjálfar, þar af er einn forstöðumað-
ur, þrír sjúkraþjálfarar, ellefu trygginga-
fulltrúar, fimm tæknimenn, þar af einn
rafeindafræðingur og tveir vélfræðing-
ar, og einn viðskiptafræðingur. Frá
1999 er HTM deild innan sjúkratrygg-
ingasviðs TR, en meginsvið TR eru
þrjú, sjúkratryggingasvið, lífeyristrygg-
ingasvið og fjármála- og rekstrarsvið.
HTM er staðsett í Kópavogi í um 1500
fm húsnæði og veitir þjónustu fyrir allt
landið.
Samkvæmt reglugerð um hjálpar-
tæki þá eru það þeir sem eru sjúkra-
tryggðir og búa í heimahúsum sem eiga
rétt á hjálpartækjum frá TR og því er
skjólstæðingahópur HTM þeir sem
þurfa á hjálpartækjum að halda til
lengri tíma og búa heima.
Við uppbyggingu HTM og mótun
reglna um hjálpartæki hefur reynt á
víðtæka stefnumörkun. Tekið er mið af
megináherslum endurhæfingarinnar
þ.e. teymisvinnu og virka þátttöku not-
enda hjálpartækja í verkferlinu svo og
hefur hugmyndafræði og gildi iðju-
þjálfunar verið höfð að leiðarljósi.
Gildi færni og einstaklingsmiðaðrar
nálgunar þar sem tekið er tillit til heild-
araðstæðna einstaklingsins og um-
hverfis hans hefur verið og er ríkjandi í
allri stefnumótun starfseminnar. End-
urspeglar núverandi reglugerð um
hjálpartæki m.a. þessa sýn að miklu
leyti.
Heilbrigðisþjónustan hefur tekið
miklum breytingum á sl. 10 árum og
vaxandi áhersla er á búsetu fatlaðra og
aldraðra í heimahúsum. TR hefur reynt
að fylgja þessari þróun eftir með því að
mæta breyttum þörfum notenda.
Auknar kröfur til HTM og miklar og sí-
felldar tækninýjungar kalla á aukna
þekkingu og leit að lausnum til að
mæta þessum breyttu þörfum. Það hef-
ur haft í för með sér stöðugar breyting-
ar og þróun starfseminnar. Vöxtur
HTM og mikil aukning umsókna hefur
haft þau áhrif að starfsemi HTM hefur
á köflum einkennst af því að hafa rétt
undan að fylgja eftir þessari miklu
aukningu. Þetta hefur haft áhrif á þró-
un HTM á ákveðnum sviðum s.s.
fræðslustarfsemi og þróunarvinnu sem
tengist meðal annars þjónustu við
landsbyggðina. Þessu til skýringar má
sjá í töflu hvað umsóknum hefur fjölg-
að gífurlega svo og fjármagn til mála-
flokksins á síðustu árum.
Í 200 umsókna slembiúrtaki 2004
kemur í ljós að umsóknir koma að
stærstum hluta frá notendunum sjálf-
um, aðstandendum þeirra og læknum
og því næst frá iðjuþjálfum og sjúkra-
þjálfurum. Á mynd 1 má sjá hlutfalls-
lega skiptingu á hverjir sækja um
hjálpartæki til TR á árinu 2004.
Norræn samvinna hefur verið hluti
af starfsemi HTM frá upphafi og þátt-
taka í norrænum samstarfs- og þróun-
arverkefnum hefur sífellt verið liður í
starfseminni. Þétt tenglanet er við syst-
urstofnanir hinna norrænu landanna
og norrænar stofnanir á sviði hjálpar-
tækja og málefna fatlaðra.
Í blaðinu eru nokkrar greinar sem
lýsa mismundandi verkefnum og hlut-
verkum starfsmanna hjá HTM. Það má
segja að störf iðjuþjálfa og sjúkraþjálf-
ara hjá HTM séu fjölbreytt og að
mörgu leyti óhefðbundin miðað við
störf þessara fagstétta hér á landi. Sam-
starfsstofnanir annars staðar á Norður-
löndunum hafa á að skipa iðjuþjálfum
í miklu meira mæli en hér er sem sinna
álíka störfum.
Með víðtækri starfssemi HTM m.a.
við ráðgjöf, fræðslu, afgreiðslu hjálpar-
tækjaumsókna, þátttöku í þróunar-
vinnu á ýmsum sviðum hjálpartækja,
viðgerðir og sérsmíði safnast breið og
einnig sérhæfð þekking á sviði hjálpar-
tækja sem iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar
og aðrir starfsmenn nýta til hagsbóta
fyrir viðskiptavini miðstöðvarinnar.
Með þessari þekkingu og samstarfi við
fjölmarga aðila s.s. notendur, notenda-
félög, fagaðila, seljendur, framleiðend-
ur, mennta- og heilbrigðisstofnanir og
systurstofnanir annars staðar á Norð-
urlöndunum, þá nýtist þekkingin til
framdráttar fyrir málaflokkinn með
það að markmiði að það skili sér í betri
hjálpartækjum og betri þjónustu. HTM
hefur í vaxandi mæli boðið upp á
fræðslu um hjálpartæki og bætt upp-
1999 2000 2001 2002 2003 2004
Fjöldi umsókna 16.198 19.728 23.926 24.228 26.199 27.603
Milljónir kr. 740 820 972 1.180 1.414 1.446
Tafla 1 – Fjöldi umsókna um hjálpartæki og útgjöld TR til málaflokksins.
Hjúkrunarfræðingur
1%
Notandi /
aðstandandi
34%
Læknir 33%
Iðjuþjálfi
17%
Sjúkraþjálfari 15%
Hverjir sækja um á árinu 2004
Mynd 1 – Hlutfallsleg skipting á hverjir sækja um hjálpartæki til TR.
Það má segja að störf iðjuþjálfa og
sjúkraþjálfara hjá HTM séu fjölbreytt
og að mörgu leyti óhefðbundin miðað
við störf þessara fagstétta hér á
landi.