Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Blaðsíða 11
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005 – 11
Í gegnum árin hefur HTM verið í
samstarfi við sambærilegar stofnanir á
hinum norðurlöndunum. Þetta sam-
starf fer meðal annars fram með þátt-
töku í norrænum þróunarverkefnum.
Til dæmis eru þrír iðjuþjálfar HTM
tengdir samnorrænum verkefnum eins
og er. Einnig hefur HTM verið sam-
starfsaðili að tveimur norrænum ráð-
stefnum, Sit-symposium, ráðstefna um
setlausnir (www.sitsite.net) og Nat-C,
ráðstefna um hjálpartæki (www.nat-
c.org).
Forstöðumaður HTM á sæti í nor-
rænni nefnd ásamt forstöðumönnum
sambærilegra hjálpartækjastofnanna á
hinum norðurlöndunum. Má þar
nefna NUH – Nordiskt utveck-
lingscenter för handikapphjälpmedel
(Norræn þróunarmiðstöð hjálpar-
tækja).
Framtíðarstefna HTM er að geta
mætt breytilegum þörfum þjóðfélags-
ins innan þess ramma sem er settur
með reglugerðum ásamt því að hafa
áhrif á mögulegar breytingar á reglu-
gerðunum þar sem starfsfólk HTM eru
talsmenn skjólstæðinganna innan
kerfisins.
Leiðrétting
Ritnefnd vill biðja Guðrúnu
Pálmadóttur lektor, við Háskólann
á Akureyri, innilegrar afsökunar á
þeim mistökum sem áttu sér stað í
síðasta blaði. Þar var birt rann-
sóknargrein eftir hana undir rangri
fyrirsögn. Rétt fyrirsögn er "Að
gagnreyna eigin störf og stétt" en
ekki "Að gagnrýna eigin störf og
stétt".
Með vinsemd og virðingu,
Ritnefnd Iðjuþjálfans
Heilbrigðisstofnunin Akranesi
Droplaugastaðir
Plastiðjan Bjarg
Viltu njóta öryggis í framtíðinni?
Allianz er öruggur viðbótarlífeyrissparnaður!
Magnús Axelsson ráðgjafi
sími: 862-4468
netfang: max@allianz.is