Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Síða 24

Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Síða 24
24 – IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005 staklingum í rafskutlum erfiðara að komast um. Myndirnar voru teknar af einstaklingi sem notar rafskutlu. Einnig kynnti Ásbjörg stuttlega hvern- ig verklegu æfingarnar myndu fara fram. Eftir fyrirlestrana var tími fyrir spurningar og umræður. Þar komu fram margar góðar spurningar t.d. um tryggingamál tengda rafskutlum, hvort nota megi reiðhjólahjálma, hver eigi að meta það ef færni viðkomandi hrakar og viðkomandi getur ekki lengur keyrt rafskutlu. Verklegar æfingar á fræðsludegi um rafskutlur Eftir hádegi á fræðsludeginum lagði hópurinn af stað á rafskutlunum sínum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þar er bílabraut fyrir smábíla með umferð- arljósum, stöðvunarskyldu og bið- skyldumerki þannig að umhverfið varð nokkuð raunverulegt. Þátttakendur tóku þátt í æfingum eftir fyrirmælum frá iðjuþjálfum. Æfingarnar voru út- búnar með það í huga að reyna á skipulagningu, athygli, minni og rúm- og afstöðuskyn. Iðjuþjálfar mældu frammistöðu hvers og eins á sérútbún- um blöðum. Það voru þrjár fyrirfram ákveðnar leiðir farnar þar sem reyndi á hæfni við að bakka, keyra þröngar göt- ur, keyra eftir beinni línu, stoppa tíma- lega þegar bolta var hent yfir götuna og fleira. Mælingin fór þannig fram að taldar voru þær villur sem einstakling- urinn gerði t.d ef hann virti ekki stöðv- unarskyldu, umferðarljós og fleira. Einnig var skráð niður t.d hvort við- komandi var rólegur eða stressaður og hvort hann þurfti aðstoð við að klára verkefnið. Einstaklingunum gekk mis- jafnlega vel að keyra enda fólk með mismunandi reynslu. Helstu athuga- semdir voru að einstaklingarnir voru óöruggir, væru ekki með umferðar- merkin á hreinu og náðu ekki alltaf að stoppa nægilega fljótt. Í lokinn voru almennar umræður um hvernig þátttakendum fannst þeim sjálfum ganga og hvernig dagurinn hafði nýst þeim og hvort þeir vildu halda áfram að vinna saman. Allir voru sammála um að þetta hefði verið skemmtilegur hópur og góður dagur. Þátttakendur sýndu áhuga á því að stofna hóp þar sem farið yrði í lengri ferðir um bæinn og óskuðu einnig eftir meiri fræðslu hvað varðar viðgerðir, viðhald og umferðarfræðslu. Forkönnun (pilot study) Tilgangur forkönnunarinnar var að kanna daglega notkun, þjálfun, þekk- ingu, færni og viðhorfi einstaklinga sem nota rafskutlur. Spurningalistinn var sendur til níu einstaklinga sem eru skráðir í Þjónustumiðstöð Sjálfsbjarg- arheimilisins og nota rafskutlur. Átta einstaklingar tóku þátt í rannsókninni og var svarhlutfallið 89%. Þegar spurningalistinn var hannað- ur var unnið út frá fjórum megin rann- sóknarspurningum. 1. Til hvaða athafna nota einstakling- ar í Þjónustumiðstöðinni rafskutl- urnar og hversu mikið nota þeir hana?

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.