Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Side 32
Ágrip úr B.Sc. verkefnum iðjuþjálfa í
sérskipulögðu námi frá Háskólanum
á Akureyri 2005
Samanburðarrannsókn á matstækj-
unum Assessment of Motor and
Process Skills (AMPS) og Modified
Barthel Index (MBI)
Höfundar: Anna Ingileif Erlendsdóttir,
Auður Hafsteinsdóttir og Jóhanna Rósa Kol-
beins.
Leiðbeinandi: Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir.
Tilgangur rannsóknarinnar er að fá úr því
skorið hvort ályktun sem dregin er af matsnið-
urstöðum Assessment of Motor and Process
Skills (AMPS) sé samhljóma matsniðurstöðum
úr Modified Barthel Index (MBI) og hvort þær
gefi sambærilega mynd af færni skjólstæðinga.
Vænta má að niðurstöður úr þessari rannsókn
auki skilning á ólíkum matstækjum og nota-
gildi þeirra. Einn liður í starfi iðjuþjálfa er að
meta færni skjólstæðinga við eigin umsjá,
þjálfa þá og aðlaga umhverfið að þeirra þörf-
um. Mat iðjuþjálfa er mikilvægt innlegg í vist-
unarmat aldraðra, ásamt því að ákveða íhlutun
og áætla þjónustuþörf viðkomandi. Mikilvægt
er fyrir iðjuþjálfa að nota matstæki sem gefa
skýra niðurstöðu og nýtast til áframhaldandi
íhlutunar.
Upplýsingar koma sér ekki eingöngu vel fyr-
ir iðjuþjálfa heldur einnig aðrar fagstéttir sem
koma að málefnum skjólstæðinganna. Mat-
stækin eru ólík í uppbyggingu og hugmynda-
fræði. Þau taka mislangan tíma í fyrirlögn og
úrvinnslu. Matstækin eru ýmist iðjumiðuð og
sérhönnuð fyrir iðjuþjálfa eða þverfagleg.
Rannsóknin byggir á megindlegri rannsóknar-
aðferð og notað var hentugleikaúrtak. Úrtakið
var 30 einstaklingar, 67 ára og eldri, 20
inniliggjandi á LSH og 10 heimilismenn á
Droplaugarstöðum. Þeir voru valdir úr þeim
hópi einstaklinga sem þurftu mat samkvæmt
beiðni læknis og höfðu ekki verið greindir með
elliglöp.Við framkvæmd matsins var beitt
áhorfi og fyllt út í eyðublöð beggja matstækj-
anna. Niðurstöður verða bornar saman með til-
liti til þess hvort samhljómur sé á milli mat-
stækjanna.
Áhrif kennslu í orkusparandi að-
ferðum á framkvæmd athafna og
mæði fólks með langvinna lungna-
teppu
Höfundar: Júlíana Hansdóttir og Bára Sig-
urðardóttir.
Leiðbeinandi: Guðrún Pálmadóttir.
Meginmarkmið rannsóknarinnar er tvíþætt.
Í fyrsta lagi er verið að skoða tengslin milli
vinnuaðferða og súrefnismettun sjúklinga með
langvinna lungnateppu (LLT) og í öðru lagi að
kanna árangur verklegrar kennslu á fram-
kvæmdarfærni skjólstæðingsins við daglegar
athafnir. Því er leitað svara við eftirfarandi
rannsóknarspurningum:
• Hvaða áhrif hafa orkusparandi aðferðir á
súrefnismettun í blóði?
• Hver eru áhrif kennslu í orkusparandi að-
ferðum á framkvæmd athafna?
Rannsóknin er megindleg hálftilraun þar
sem skoðuð eru áhrif frumbreytunnar kennsla í
orkusparnaði á fylgibreyturnar framkvæmd at-
hafna og súrefnismettun. Þátttakendur eru 20
einstaklingar sem leggjast inn til lungnaendur-
hæfingar á Reykjalundi, eru með LLT og upp-
lifa a.m.k. talsverða mæði við einhverjar at-
hafnir daglegs lífs. Mæði er metin með „Mat á
andnauð“ sem er íslensk þýðing á spurningar-
listanum „Shortness of Breath Questionnaire
(SOBQ)“ og er athöfnin sem einstaklingurinn á
að framkvæma valin af þessum lista. Þátttak-
endur eru metnir tvisvar sinnum við að fram-
kvæma athöfnina, fyrst án kennslu í orkuspar-
andi vinnuaðferðum og öndunartækni og síðan
eftir munnlega og verklega kennslu. Fram-
kvæmdin er tekin upp á myndband sem síðan
er greint m.t.t. beitingu orkusparandi vinnuað-
ferða og öndunartæki. Súrefnismettunarmæl-
ing fer fram á meðan á framkvæmd stendur.
Vegna smæðar og vals á úrtaki er ekki hægt
að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar.
Rannsóknin ætti samt að gefa vísbendingar um
árangur orkusparandi vinnuaðferða og öndun-
artækni í lungnaendurhæfingu á mæði og súr-
32 – IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005