Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 50
48 Þjóðmál VETUR 2010 Þjóðmál VETUR 2006 48
forsætisráðherra vorið 1942 . Einkabílstjóri
hans, Arreboe Clausen, var tekinn fyrir
ölv un við akstur ráðherrabílsins . Ólafur
sagði þá: „Góði minn, nú er ég orðinn for-
sætisráðherra . Nú verður annar hvor okkar
að hætta að drekka .“ Raunar á Arreboe
Claus en góða setningu í Kjarna málsins .
Einn viðmælandi hans hafði eitt sinn for-
vitnast um einhver undirmál, sem hann átti
að vita stöðu sinnar vegna . Arreboe færðist
undan að svara . Viðmælandinn spurði
þá: „Ert þú ekki innsti koppur í búri allra
stjórnmálaflokka?“ Arreboe svaraði: „Jú, ég
er það, en sá koppur lekur ekki .“
Fræg voru líka tilsvör Ólafs Thors og
frammí köll á fundum . Hann sat á þingi
fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu . Eitt sinn á
fimmta áratug 20 . aldar kallaði fundarmað-
ur í Keflavík fram í fyrir honum: „Það er
ég viss um, Ólafur, að þú þekkir ekki einu
sinni muninn á þorski og ýsu!“ Ólafur
svaraði að bragði: „Ég þekki þó að minnsta
kosti muninn á þér og þorski, og það er
meira en margur gerir!“ Í annað sinn sagði
Ólafur: „Það þýðir ekkert fyrir ykkur að
skamma mig; ég er fyrir löngu kominn með
sigg á sálina!“ Ólafur gaf einu barnabarni
sínu þetta góða ráð: „Það er tvennt, sem þú
skalt ekki eyða lífinu í, litla mín, og það er
að kvíða fyrir og sjá eftir .“
Tómas Guðmundsson
Tómas Guðmundsson skáld fæddist 1901 og lést 1983 . Hann var ekki
aðeins hagur á bundið mál, heldur líka
laust . Eitt sinn sagði hann, þegar vindhviða
kom óvænt í fang honum á Lækjartorgi:
„Ja, nú þykir mér lognið vera farið að flýta
sér!“ Í annað skipti laumaði hann út úr sér:
„Það má áfengið eiga, að það hefur aldrei
gert neinum manni mein að fyrra bragði .“
Eitt sinn lét Tómas svo um mælt við bind-
indispostula nokkurn: „Ég hét því einu
sinni að fara í algert bindindi tvö síðustu ár
æv innar, en nú þori ég ekki að hætta alveg,
því þá er ég feigur .“ Það var í sama anda,
sem hann mælti í ræðu í Gamla bíói 1929:
„Ístöðu leys ið hefur alltaf verið mín sterkasta
hlið .“
Tómas hafði hæfileika til að sjá mál frá
ýms um hliðum . Á fundi Stúdentafélags
Reykja víkur um atómkveðskap í Sjálf-
stæð is húsinu vorið 1952 komst hann svo
að orði: „Frá sjónarmiði sóttkveikjunnar
hlýtur nefnilega heilbrigðin að vera alveg
ægi legur sjúkdómur .“ Hann hitti eitt sinn á
Hótel Borg Þórð Albertsson fisksölumann á