Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 85

Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 85
 Þjóðmál VETUR 2010 83 Má nefna það til marks um áróðurs- hæfileika þeirra félaga Ólafs Ragnars og Baldurs að enn þann dag í dag er látið eins og brottvísun Ólafs Ragnars frá RÚV hafi verið til marks um einstakt pólitískt ofríki . Skyldi einhver muna eftir því eftir 43 ár, 2053, að fréttamanni var í nóvember 2010 vikið úr starfi hjá RÚV fyrir að skrifa viðtalsbók við fyrrverandi fjármálaráðherra og láta ekki yfirmann sinn, Óðin Jónsson, vita fyrirfram um nafn viðmælanda síns? Elías Snæland Jónsson gekk í Sam vinnu skólann á Bifröst . Hann hafði áhuga á blaðamennsku og sótti nám í henni í heimavistarskóla norska Alþýðu sambandsins, LO, í Sörmarka skammt fyrir utan Ósló og hóf síðan störf sem blaða maður á Tímanum undir lok árs 1963, tvítugur að aldri . Samið hafði verið við Örlyg Hálfdanarson, formann Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) og Eystein Jónsson, formann Framsóknarflokksins, að Elías Snæland annaðist einnig Vettvang æsk unnar, það er SUF-síðu í Tímanum, sem átti að birtast vikulega . Þannig kynntist hann og tengdist síðan innviðum félaga ungra framsóknarmanna . Ungir framsóknarmenn deildu harka lega innbyrðis á þessum árum og skiptust á milli vinstri og hægri . Afstaðan til banda ríska varnarliðsins var helsta ágreinings efnið . Elías Snæland skipaði sér í vinstri fylk- inguna og þar með í hóp með þeim Baldri og Ólafi Ragnari þegar fram liðu stundir . Elías Snæland segir á 425 blaðsíðum frá átökum fylkinganna innan Fram- sóknarflokksins og örlögum Möðru valla- hreyfingarinnar sem varð til í kringum þá Baldur og Ólaf Ragnar . Spannar bókin um 10 ár í sögu Framsóknarflokksins og lýsir misheppnaðri viðleitni þeirra félaga til að stofna til öflugs samstarfs við aðra vinstri menn, einkum Hannibal Valdimarsson og Björn Jónsson í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna, (SFV), sem urðu til með klofningi úr Alþýðubandalaginu fyrir þing- kosningar 1971 . Þeir Hannibal, Björn og Magnús Torfi Ólafsson settust í ríkis stjórn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar, arftaka Eysteins á formannsstóli fram- sóknar eftir þær kosningar . Innan Framsóknarflokksins náðist ein hvers konar sátt í af- stöðunni til varnar liðsins á sjö unda áratugnum og gekk flokk urinn með hana til kosn- inga 1971 . Ríkisstjórn Ólafs Jó hannessonar með fram sókn- ar manninn Einar Ágústs son sem utanríkisráðherra hafði endurskoðun varnar samn ings- ins og brottför varnar liðsins í áföng um á stefnuskrá sinni, baráttumál þeirra Baldurs og Ólafs Ragnars . Ólafur Jóhannesson vildi hins vegar lítið af þeim Baldri og Ólafi Ragnari vita og hélt þeim frá sér og í skefjum innan flokksins, þótt þeir létu verulega að sér kveða út á við og beittu öllum ráðum til að koma ár sinni fyrir borð meðal flokksmanna . Hvar sem þeir létu að sér kveða urðu átök um menn og málefni . Þeim tókst hins vegar að fjölga þátttakendum í starfi ungra framsóknarmanna, þótt fáir úr röðum þeirra kæmust nokkurn tíma til markverðra áhrifa fyrir hönd flokksins . Elías Snæland lýsir þessum átökum innan Framsóknarflokksins af mikilli nákvæmni . Hann telur sig og félaga sína oft hafa verið beitta rangindum . Þar hafi þeir Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Tímans, og Tómas Karlsson, ritstjórnarfulltrúi og síðan ritstjóri Tímans, verið fremstir í flokki . Kristinn hafði mikil ítök innan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.