Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 68

Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 68
66 Þjóðmál VETUR 2010 og mun Geir hafa sett sig í samband við aðra utanríkisráðherra Norðurlandanna vegna þessa .9 Ekkert varð úr aðgerðum, en hugmyndinni var greinilega haldið vakandi, því rúmum áratug síðar flytur Halldór Ásgrímsson, þá utanríkisráðherra, hana inn í ríkisstjórn, þar sem hún var samþykkt, eins og áður greinir . En hvaða kringumstæður og andrúmsloft réðu því? Er óvarlegt að álykta sem svo að áhugi embættismanna utanríkisráðuneytisins hafi verið ríkari en áhugi stjórnmálamanna á þessari þróun og síðan hafi fræðasamfélagið fylgt í kjölfarið og talað rækilega fyrir hugmyndinni og leitað margvíslegra raka? Í þessu samhengi má vísa í fræðimenn á borð við Baldur Þórhallsson, Anthony Giddens o . fl ., sem lagt hafa áherslu á þátt, framlag og áhrif smáríkja í alþjóðakerfinu, en athygli vekur að enginn íslenskur fræðimaður hafði uppi efasemdir um þessa þróun eða hélt uppi gagnrýni, þótt það kæmi í hlut ýmissa ólíkra stjórnmálamanna að gera það, sem vikið verður að síðar .10 Við þennan „smáríkjatón“ kveður svolítið í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis 2004, þar sem hann skilgreinir hagsmuni Íslands í nokkuð víðara samhengi en títt var áður, þegar hann ræðir framboð Íslands til Öryggisráðsins og segir: „Beinn ávinningur af framboði Íslands til Öryggisráðsins er ekki meginmarkmiðið, en ljóst er að með framboðinu styrkir Ísland stöðu sína á alþjóðavettvangi og auðveldar gæslu á grundvallarhagsmunum Íslands . Jafnframt styrkir framboðið samningsstöðu íslenskra 9 Samtal höfundar og Geirs H . Haarde, fv . forsætis- ráðherra, 16 . ágúst 2010 . 10 Helgi Ágústsson, fv . sendiherra, lét þess getið í spjalli við höfund að ekki væri óalgengt að embættis- menn hefðu áhrif á skoðanir ráðherra sinna . Taldi Helgi alls ekki fjarri lagi að hugmyndin hafi verið fóstruð og þróuð af embættismönnum fremur en stjórnmálamönnum . Um þetta er þó ekki hægt að slá neinu föstu . stjórnvalda í þeim mörgu erfiðu málum sem leysa þarf á alþjóðavettvangi . Með framboðinu gefst einstakt tækifæri til að halda fram megináherslum utanríkisstefnu Íslands og annarra Norðurlanda og smærri ríkja almennt á alþjóðavettvangi . Takist vel til öðlast Ísland virðingu og traust annarra ríkja, sem aftur eykur bolmagn Íslendinga til að koma málum á framfæri á alþjóðavettvangi . Jafnframt krefst framboð og seta í Öryggisráðinu þess að Íslendingar leitist við að verða öðrum ríkjum fyrirmynd, einkum á eigin áherslusviðum, og því verður framboðið hvatning til að gera enn betur heima fyrir .”11 Hvað má lesa út úr þessum orðum ráðherrans? Einhverja meðvitaða ákvörðun íslenskra stjórnvalda að gera landið virkara í alþjóðakerfinu en verið hafði? Voru stjórnmálamenn að horfa til ein- hverra skilgreindra langtímahagsmuna og sjónarmiða lands og þjóðar, eða voru hér á ferð aðeins huglæg viðhorf þeirra embættis- manna, sem störfuðu innan íslensku utan- ríkis þjónustunnar og áhugasamra fræði- manna? Í öllu falli voru sjónarmiðin og kringumstæðurnar, sem Baldur Þór halls- son prófessor setur fram í grein sinni frá 2006, ekki komnar til sögunnar í utan- ríkis ráðherratíð Geirs Hallgrímssonar 1983–1986 .12 Að mati höfundar blasir við að í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar 1998, að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu, hvort sem hugmyndin átti beinlínis rætur að rekja til stjórnmálamanna eða embættismanna, hafi fræðasamfélagið fylgt í kjölfarið og hannað og undirbyggt rökin fyrir þessari ákvörðun . Í því skyni var mjög 11Skýrsla Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál (Lögð fyrir Alþingi á 130 . löggjafarþingi 2003-2004) . 12 Sbr . grein Baldurs Þórhallssonar, „Hefur Ísland valið sér nýja stærð í alþjóðakerfinu?“ í Rannsóknir í félagsvísindum VII . (2006), bls . 627–642 .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.