Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 89
Þjóðmál VETUR 2010 87
markmiði sínu vegna þess hve gírugir þeir
voru til áhrifa og valda . Undir forystu Ólafs
Jóhannessonar var tekið á móti þeim af
festu og hafnað kröfunni um að flokkurinn
hyrfi af miðjunni til vinstri .
Eins og áður er sagt hefur verið blásið út
fyrir öll hæfileg mörk að Ólafi Ragnari var
vikið frá þáttagerð í RÚV . Hin langa bók
Elíasar Snælands snýst að verulegu leyti
um efni, sem skiptir í raun ekki miklu fyrir
stjórnmálasögu landsins en veitir sýn inn í
ákafar deilur innan Framsóknarflokksins,
einkum meðal ungra kappsfullra manna .
Ýmsir Möðruvellingar hafa lagt sig fram
um að halda minningunni um hrakfarir
sínar á vettvangi Framsóknarflokksins á lífi í
þeim tilgangi að snúa þeim sér í vil . Ekki er
ólíklegt að það sé tilgangur þessarar bókar .
Þegar grannt er skoðað leiðir hún hins vegar
í ljós að Möðruvallahreyfingin hefur í raun
yfir ótrúlega litlu að miklast .
Fróðleg heimild um
Baugsmálið
Sölvi Tryggvason: Jónína Ben. Sena, Reykjavík
2010, 294 bls .
Eftir Hannes Hólmstein Gissurarson
Í bókinni Jónínu Ben skrásetur Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður ævintýra lega
sögu umdeildrar athafnakonu . Hún fæddist
á Akureyri 26 . mars 1957, en ólst upp á
Húsavík . Hún var aðeins unglingur, þegar
hún gekk í Bahaisöfnuðinn, en þar kynntist
hún Sveini Eyjólfi Magnússyni, sem var
fimm árum eldri . Þau gengu í hjónaband,
þegar Jónína var aðeins sautján ára að aldri,
og héldu til náms í Kanada . Þar lærði Jónína
íþróttafræði og starfaði í líkamsræktarstöð .
Þau Sveinn skildu, en Jónína sneri aftur til
Íslands snemma á níunda áratug . Giftist
hún Stefáni Einari Matthíassyni lækni og
eignaðist með honum þrjú börn . Einnig
stofnaði hún ásamt Ágústu Johnson „Stúdíó
Jónínu og Ágústu“, sem varð vinsælt . Hún
fór ásamt manni sínum til Svíþjóðar 1989,
rak þar líkamsræktarstöð og seldi hana með
miklum hagnaði, þegar hún kom heim með
manni sínum 1997 . Þá stofnaði hún Planet
Pulse á Hótel Esju .
Einn viðskiptavinur Jónínu í Planet Pulse
var Jóhannes Jónsson, þá kenndur við Bónus,
síðar við Baug . Hann var sautján árum eldri .
Skildu þau Jónína bæði við maka sína og hófu
sambúð . Næstu árin fjárfesti Jónína óspart í
líkamsræktarstöðvum, sem urðu loks fimm
talsins, en lenti í miklum fjárhagserfiðleikum .
Hún segir hreinskilnislega frá því í bók
sinni, að þau Jóhannes hafi þessi ár neytt
meira áfengis en góðu hófi gegndi . Fyrirtæki
Jóhannesar og sonar hans, Jóns Ásgeirs,
Baugur, gekk hins vegar vel og óx hratt, og
heyrði Jónína lögð á ráðin heima hjá sér um
yfirtöku ýmissa fyrirtækja á laun, þar á meðal
Skeljungs og Tryggingamiðstöðvarinnar,
en þau ætluðu feðgarnir að nota til þess
að ná yfirráðum yfir Íslandsbanka . Upp úr
sambandi þeirra Jóhannesar var þó að slitna
vegna framhjáhalds Jóhannesar veturinn
2001–2002, þegar margt gerðist í einu .
Fjárhagserfiðleikar Jónínu höfðu aukist,
svo að gjaldþrot var framundan, en
Baugsfeðgar reyndust ófúsir að aðstoða
hana . Í nóvember 2001 fékk hún þá muni
sína, sem hún hafði geymt á Akureyri,
senda suður, og í janúar 2002 var
úttektarkorti hennar í búðum Baugsfeðga
lokað fyrirvaralaust . Fór síðasta samtal
hennar við Jóhannes þá fram við kassann
á Bónus, þar sem hún stóð með varning
sinn og gat ekki greitt fyrir hann . Í sama
mund lenti samstarfsmaður Baugsfeðga í
Bandaríkjunum, Jón Gerald Sullenberger, í
deilu við þá um uppgjör á skuldum vegna