Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 72
70 Þjóðmál VETUR 2010
A . Árnadóttir, gamall samherji hins nýja
utanríkisráðherra úr sveitarstjórnar mál un-
um – nú sendiherra Íslands í Kína, og jafn-
framt var stofnað til sérstaks kosn inga teymis
í ráðuneytinu . Ingibjörg Sól rún Gísla-
dóttir „gerði þá kröfu til utan ríkisþjónust-
unnar að framboðsstarfinu væri sinnt af
metnaði og fagmennsku .“24 Staða Íslands
var skilgreind með hliðsjón af styrkleika og
veikleika . Segja má að í fyrstu hafi verið litið
til eftirtalinna þátta, Ísland er: (1) Smáríki .
Áhersla er lögð á smæð þjóðarinnar, þar
sem flest aðildarríki S .þ . eru smáríki . Það
er hvorutveggja í senn réttur og skylda
smáríkja að láta að sér kveða í samfélagi
þjóðanna og í starfi Öryggisráðsins . Þetta
varð grunnstef í kosningabaráttunni; (2) Í
fyrsta skipti í framboði . Ísland hafði verið
aðildarríki S .þ . frá 1946 og aldrei áður sóst
eftir sæti í Öryggisráðinu . Var styrkur talinn
fólginn í því; (3) Evrópuríki utan ESB . Þetta
sjónarhorn var talið jákvætt þar sem fjölmörg
ríki litu svo á að aðildarríki ESB gegndu
hlutfallslega of mörgum ábyrgðarstöðum
innan S .þ .; (4) Eitt af Norðurlöndunum . Það
var talið til veigamikils styrkleika að til heyra
hópi Norðurlandanna, sem njóta al mennr-
ar viðurkenningar á alþjóðavettvangi . Auk
þessa var bent á stöðu Íslands sem fyrrum
ný lendu, sem hafi að fengnu sjálfstæði barist
frá örbirgð til auðlegðar, og hið leiðandi
hlutverk landsins í þróun hafréttarins og
sjálfbærri nýtingu auðlinda, einkum hvað
varðar fiskveiðar og endurnýjanlega orku .25
En nú taka fleiri áherslumál að bætast
í vopnabúr hins nýja utanríkisráðherra
og veltir höfundur fyrir sér hvort þær
áherslur hafi með einum eða öðrum hætti
24 Sama heimild, bls . 12 . Þótt óvarlegt væri að
draga þá ályktun að fyrir tíma ISG hefðu aðeins
léttviktaramatörar unnið að framboði Íslands, má
greina að sjálfstraust ráðherrans og hins nýja starfs-
liðs hans er með ágætum .
25 Sama heimild, bls . 13–14 .
dregið úr áhuga fjölda ríkja á stuðningi við
Ísland vegna þess að nýju áherslurnar eru
mörgum framandi og jafnvel fráleitar . Hér
er átt við ýmiss konar femínískar áherslur
og hugmyndir, sem eru aðallega norrænar,
þótt þær eigi sér auðvitað hljómgrunn
meðal annarra vestrænna þjóða, en eru
beinlínis litnar hornauga mjög víða um
lönd og eru taldar stofna samfélagseiningu
í löndum múslima í voða . Í skýrslu um
utanríkis- og alþjóðamál, sem þáverandi
utanríkisráð herra, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, lagði fyrir alþingi í apríl 2008 er
farið yfir áherslumál í framboði Íslands .
Og ekki er laust við að nokkuð kveði við
nýjan tón: „Megináherslumál Íslands í
framboðinu nú eru vernd almennra borgara
á átakasvæðum, sér í lagi kvenna og barna;
aukin aðkoma kvenna að friðarviðræðum og
friðaruppbyggingu sbr . ályktun [Öryggis]
ráðsins númer 1325, mikilvægi þess að
mæta ógnum við öryggi í víðasta samhengi,
sérstaklega með tilliti til mannöryggis og
samþættingu öryggismála og þróunarstarfs,
og að Ísland beiti sér fyrir bættum og
gegnsærri starfsháttum innan ráðsins .“26
Ástæðulaust er auðvitað að gera lítið úr
göfugum markmiðum, en hugleiða má
hvort þau séu ætíð góð og heppileg söluvara
á markaðstorgi alþjóðastjórnmálanna .
Ályktun Öryggisráðs S .þ . nr .1325, sem
vísað er til hér að framan, er ályktun um
konur, frið og öryggi . Ályktunin lofar öll-
um konum heimsins því að réttinda þeirra
verði gætt og gata þeirra greidd til þátttöku
í friðarumræðum og friðaruppbyggingu .
Hugmyndin að baki er sú að nauðsynlegt
sé að konur komi að friðarferli, þar sem
samið sé um framtíð heilla samfélaga .
26 Skýrsla Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utan-
ríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál . (Lögð
fyrir Alþingi á 135 . löggjafarþingi 2007–2008) .
www .utanrikisraduneyti .is/media/skyrslur/skyrslan .
pdf