Þjóðmál - 01.12.2010, Síða 76
74 Þjóðmál VETUR 2010
með afgerandi hætti við einhliða brottför
Bandaríkjahers af landinu árið 2006 .
Íslendingar höfðu misst sinn mikilvægasta
bandamann á alþjóðavettvangi áratugum
saman . Skyldi það hafa engu skipt?
Lokaorð
Hér hefur að nokkru verið gerð grein fyrir framboði Íslands til Öryggisráðs
S .þ ., sem var löng vegferð og hafði það í för
með sér að staða Íslands í alþjóðakerfinu var
endurskilgreind og sömuleiðis mat ráða-
manna og fræðasamfélags á getu landsins
til að láta að sér kveða á alþjóðavettvangi
til framtíðar litið . Hér hafa verið færð fram
rök fyrir því að vera kynni að áherslur
Íslands í framboðinu, eftir því sem nær dró
kosningunum, hafi verið rangar og bein-
línis hrakið frá möguleg stuðningsríki .
Jafn framt að bæði fræðasamfélagið og
stjórn málamennirnir hafi metið stöðu
lands ins ranglega og matið dregið dám
af hinni miklu efnahagslegu velgengni í
upphafi aldarinnar . Auðvitað er engu hægt
að slá föstu um réttmæti gagnrýni minnar,
en engu að síður var landið svo fjarri því
að ná markmiði sínu að nauðsynlegt er að
leita annarra og fjölbreytilegri skýringa en
þeirra, að fjandsamleg afstaða áhrifamikilla
ríkja í garð Íslands í kjölfar bankahrunsins
hafi algerlega skipt sköpum .
Hér á kannski við hið fornkveðna: „Mað-
ur, líttu þér nær .“
Gunnar Thor og
stjórnmálamenningin
Guðni Th . Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen.
Ævisaga. JPV, Reykjavík 2010, 256 bls .
Eftir Guðmund Magnússon
Gunnar Thoroddsen (1910–1983) var í um það bil hálfa öld virkur og lit-
ríkur þátttakandi í opinberu lífi á Íslandi,
alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, laga pró-
fessor, borgarstjóri, fjármálaráð herra, sendi-
herra, hæstaréttardómari, iðnað ar ráðherra
og loks forsætisráðherra . Samt verður tæp-
ast sagt að hann hafi skilið eftir sig spor í
sögu þessa tíma í þeim skilningi að hann
hafi verið áhrifavaldur um þjóðfélagsþróun
eða stöðu landsins í samfélagi þjóðanna
á þann hátt sem til dæmis flokksbræður
hans og samtímamenn, Ólafur Thors og
Bjarni Benediktsson, urðu um og uppúr
miðri síðustu öld, eða Davíð Oddsson
undir lok hennar . Þegar hinar stóru línur
Íslandssögu 20 . aldar eru dregnar er þáttur
Gunnars varla meira en neðanmálsgrein .
En þess er þá að gæta að neðanmálsgreinar
bóka eru stundum áhugaverðasta efni
þeirra . Það sýnir vel þessi ævisaga Gunnars
á rúmlega sex hundruð síðum, rituð af
Guðna Th . Jóhannessyni sagnfræðingi
fyrir frumkvæði fjölskyldu Gunnars . Gildi
hennar felst ekki síst í því að varpa ljósi á
þá stjórnmálamenningu sem sögupersónan
lifði og hrærðist í .
Guðni Th . Jóhannesson hefur á undan-
förnum árum sent frá sér hvert stórvirkið
á fætur öðru um íslenska samtímasögu .
Hann hefur lipran stíl og á auðvelt með að
vinna úr flóknu og viðamiklu efni, einfalda
það og gera læsilegt og áhugavert fyrir hinn
almenna lesanda . Ástríða fræðimannsins
fyrir smáatriðum sögunnar reynir þó