Þjóðmál - 01.12.2010, Page 93
Þjóðmál VETUR 2010 91
verkefnunum í ráðuneytinu eru neytenda-
málin honum hugleiknust og áhugi hans á að
gera þau að alvörumála flokki . Hann verður
auðvitað að útskýra hvers vegna hann tók
sæti í ríkisstjórn sem hann var svona mikið
á móti og virðist póli tísk ábyrgðartilfinning
og afstaða stuðn ingsmanna hans og ráðgjafa
hafa ráðið þar miklu um . Hann fjallar
einnig nokkuð um þær umræður sem áttu
sér stað í innsta hring Samfylkingarinnar,
sem er samkvæmt frásögn Björgvins afar
þröngur, í aðdraganda stjórnarmyndunar
og kemst í raun að þeirri niðurstöðu að for-
ystu menn Samfylkingarinnar hafi verið svo
áfram um að komast í ríkisstjórn að þeir
hafi verið tilbúnir til að leggja stór prinsipp
til hliðar, þar á meðal umsókn um aðild
að Evrópusambandinu . Andstaðan við
Sjálfstæðisflokkinn var af mörgum ástæð-
um mjög djúpstæð og víðtæk innan Sam-
fylkingarinnar en hún stóð samt sem áður
ekki í vegi fyrir því að forysta flokksins gerði
tillögu um að fara í samstarf með honum
eftir kosningar 2007 .
Björgvin rekur afstöðu sína til Evrópu-
mála alllangt aftur í tímann og færir fyrir
henni ýmis rök . Hann gerir mikið úr póli-
tískum kjarki til að fylgja sannfæringu
sinni og segir frá greinum sem hann skrif-
aði til stuðnings Evrópumálstaðnum í
óþökk forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar,
enda hafi hann fengið bágt fyrir . Síðasti
hluti bókarinnar fer allur í Evrópumálin,
sérs taklega stöðu landbúnaðar, fari svo að
Ísland gangi í ESB .
Í lýsingum Björgvins á sjálfum sér tekur
hann sums staðar nokkuð stórt upp í sig þó
að heilt yfir hlífi hann sér, göllum sín um,
mistökum og breyskleikum ekki . Dæmi
um hið fyrrnefnda er eftirfarandi texti:
„Þetta eru þokukenndir dagar í minning-
unni [eftir að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis kom út] þótt ekki sé langt um
liðið, en ég hélt ró minni og var staðráðinn
í því að láta þennan fellibyl ekki feykja mér
um koll, hvorki persónulega né pólitískt .
Kalt höfuð og jarðbundið stöðumat vina
og félaga, sem stóðu sem klettar við bak
mér þessa undarlegu daga, hjálpuðu mér
að ráða fram úr aðstæðum og taka erfiðar
ákvarðanir .“
Björgvin segir frá áhuga sínum og
tengslum við breska Verkamannaflokkinn
og að í tvígang hafi hann farið til Bretlands,
unnið sem „kosningasmali“ með því að
ganga hús úr húsi fyrir flokkinn, og drukkið
í sig stemmninguna . Vegna þessa áhuga og
þessara tengsla „var kaldhæðnislegt í meira
lagi og nokkuð harmrænt að það skyldi vera
ríkisstjórn Verkamannaflokksins sem inn-
siglaði hrun íslenska efnahagskerfisins með
því að setja hryðjuverkalög á Landsbankann
og fella Kaupþing með stjórnvaldsaðgerð,
einn banka á Bret lands eyjum .“ Undirrituð
er ekki viss um að aðrir en Björgvin sjái
harmrænuna í þessum tengslum .
Betur hefði mátt vanda til yfirlestrar
bók ar innar en hún er annars ágætlega vel
skrif uð og læsileg . Málfarið er nokkuð upp-
hafið á köflum en þeir sem hafa fylgst með
Björgvini vita að hann á það til að bregða
fyrir sig nokkuð hátíðlegu orðfæri .
Ómissandi heimild um
einstæða atburði
Árni Matthiesen ásamt Þórhalli Jósepssyni: Árni
Matt – frá bankahruni til byltingar, Veröld, Reykja-
vík 2010, 272 bls .
Eftir Einar K . Guðfinnson
K reppan hefur orðið eins konar iðnað ur til bókaframleiðslu . Í hillum er lendra
bókabúða hafa slíkar bækur sprottið fram
og fyllt marga hillumetrana . Hér á landi
er orðinn til dálaglegur bunki slíkra bóka .