Þjóðmál - 01.12.2010, Qupperneq 98
96 Þjóðmál VETUR 2010
Rut, kona mín, til Frakklands og dvöldumst
þar í viku í senn við jóga qi gong æfingar í
sveitasælu í hjarta landsins .
Frakkinn, sem kenndi okkur qi gong,
hlaut þjálfun hjá kínverskri konu í París
sem hafði lært æfingarnar í heimalandi sínu,
Kína . Á þessum árum bauð Ingimundur
Sigfússon í Heklu mér að sækja námskeið
með sér og fleirum í Talskóla Gunnars og
Baldvins Halldórssonar við Skúlagötu í
Reykjavík . Þar hittumst við Gunnar í fyrsta
sinn en áður hafði ég aðeins séð hann á
leiksviði, fyrst í Horfðu reiður um öxl undir
lok sjötta áratugarins – í bókinni kynntist
ég því, hve þátttaka í sýningunni skipti
miklu fyrir Gunnar og leikferil hans .
Að loknum öndunaræfingum í Tal skól-
anum spurði ég Gunnar einu sinni, hvort
hann kynni qi gong . Frá því atviki segir
hann réttilega í bókinni og síðan hvernig
kynni okkar í kringum æfingarnar hafa
leitt til þess að í um 20 ár höfum við hist
reglulega til æfinga og síðan tekið til við að
kenna þær fleirum .
Í bókinni ræðir Gunnar um grunnþættina
sem hann leggur til grundvallar í qi
gong . Hann segir þeim sem vilja kynnast
æfingunum að þeim beri að ýta langrækni frá
sér og hvorki leggja rækt við hana né reiði í
garð náunga síns . Alvara leiksins tekur mið af
þessu, því að almennt liggur Gunnari gott og
hlýtt orð til allra sem koma við sögu hans .
Hitt fer ekki fram hjá neinum að Gunnar
er skapmaður sem stendur á rétti sínum og
lætur hvorki vaða yfir sig né bugast . Þar
sýnir hann hæfileika í anda qi gong, að geta
bognað en bresta ekki . Er ekki að undra
þótt þverhausar eigi erfitt með að skilja
þessa hugmyndafræði, þeim kann jafnvel
að þykja hún óþörf viðbót við ævisögu
Gunnars, án hennar hefði sagan hins vegar
verið hálfsögð, svo ríkur þáttur er qi gong í
lífsnautn hans og gleði .
Gunnar segir: „Ég er íslenskur kaþólikki,
íslenskur krati, íslenskur leikari – og þá er
að gera sem best úr því hlutskipti .“ Hann
segir einnig í framhaldi af þessu (bls . 290):
Ég tel mig mega vera stoltan af því að við
[Íslendingar] höfum gert margt ágætt af
stórhug og dugnaði . Við höfum líka gert
marga hörmulega vitleysu og gert illt verra
með fyrirhyggjulausum dugnaðinum!
En stundum hefur mér líka fundist
eins og búið væri að drepa lífsandann í
Íslendingum . Meira að segja löngu fyrir
þann dapurleika sem menn voru gripnir
eftir hrunið mikla árið 2008 . Þá þegar
heyrðist ungt fólk einatt fjasa um það
að allt hlyti að vera betra og þægilegra
annars staðar . Það hafði misst trúna á
að lifa á Íslandi . Þessu fylgdi kannski
Evrópudekur sem mér er hvimleitt, of
margir hafa miklað það fyrir sér hve
allt væri þægilegra og einfaldara ef við
gengjum inn í Evrópu .
Þarna talar hinn 84 ára gamli heims maður
undir lok bókar þeirra Árna . Baráttu-
krafturinn og lífsorkan er óbuguð . Bókin
endurspeglar lífsviðhorf manns sem vill
leggja gott af mörkum og hefur rétt mörgum
styrka hjálparhönd sína . Hvern virkan dag
vikunnar hittir hann þá sem koma saman
á ólíkum stöðum í borginni til að iðka qi
gong . Hvarvetna hefur hann eitthvað að
gefa og ávallt frá einhverju að segja .
Eins og áður sagði fagna ég því að Árni
Bergmann tók að sér að skrá sögu Gunnars .
Textinn er lipurlega skrifaður . Ég rakst á
fáeinar prentvillur . Myndir eru í bókinni og
nafnaskrá .
Ég er sannfærður um að mörgum finnist
þeir verða betri menn og öðlist dýpri
skilning á fjölbreytileika mannlífsins við
lestur á Alvöru leiksins . Víst er að engum
mun leiðast kynnin af Gunnari Eyjólfssyni
og fólki hans í bókinni .