Félagsbréf - 01.05.1960, Page 13

Félagsbréf - 01.05.1960, Page 13
KÉLAGSBRÉF 11 fjölmörg önnur vestrœn öfl liaja mótmœlt har'Slega og vinna kröftuglegn gegn öllu því ojbeldi, sem jrami'8 hejur veriS í þessum löndum. Hvort œtli t.d. hin jasistíska stjórn SuSur-Afríku óttist mei.ra í dag rithö/undasambönd Sovétríkjanna marflöt við fœtur Krústjoffs eða hinar frjálsu mótmælaöld ur, sem risið hafa gegn kynþáttakúgun hennar á Vesturlöndum? Vissulega hið síðarnefnda, og það af þeirri einföldu ástœðu, að sovétrithöfundar hafa uldrei svo kunnugt sé skrifað stafkrók gegn stefnu stjórnar Suður-Afríku, enda liefur kommúnistaflokkur Sovétríkjanna aldrei pantað hjá þeini slík skrif. Sjálfur fordœmir Hannes Sigfússon hörðum orðum öll mistök í ofbeldis- átt vestan járntjalds, — ekki vegna ofbeldisins sjálfs, að því er virðist, heldur til þess að reyna að sverta með því vestrœna starfsbræður sína. Erí hann nefnir þjóðarmorð Rússa á Ungverjum aðeins „íhlutun“ og lœtur að því liggja, að með valdaráni kínverskra kommúnista í Tíbet hafi einungis „þjóðníðingar“ orðið fyrir barðinu á mannúðarleysinu. Það er samkvœmn- in þar, eða hitt þá heldur. Það er víðar kúgun en í ríkjum kommúnista og víðar drýgðir pólitískir glæpir en þar. En Hannes Sigfússon hefði gott af að muna, að um allait hinn lýðfrjálsa heim er unnið ósleitilega að því, að slík mistök endurtaki sig ekki. Og það er einmitt þeirri baráttu að þakka, að þessum mistökum fer fœkkandi og jleiri og fleiri ríki (nýlendur sem önnur) sœkja fram til aukins lýðrœðis. Það steðja. rnargar ógnir að mannkyninu í dag. Ein þeirra er kommún- isrninn, voldiigasta kúgiinarstefna, sem nokkru sinni hefur ógnað heiminuin. Onnur er fasisminn, sem ávallt skýtur upp kollinum, ef hann sér fœri á. Þriðja er kynþáttavandamálið, sem tröllríður sumum ríkjum og er bein ognun við tilverurétt mannkynsins. Fjórða er kjarnorkusprengjan, ógnun við ullt líf. Fimmta er vonleysi og svartsýni sumra lýðrœðissinnaðra manna er vex í augum þau erfiðu verkefni, sem óleyst eru. En vér eruin minnug þess, að lýðrœðisríkin búa yfir þeim krajti, sem felst í frjálsri hugsun, og sá kraftur er vissulega sterkasta lífsafl heimsins í dag, — enda það afl, sem kommúnistar og aðrir kúgarar óttast mest. Með því og því einu munum vér sigra kjarnorkusprcngjur, kommúnisma, fas- isina, kynþáttavandamál og eigið vonleysi.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.