Félagsbréf - 01.05.1960, Page 21

Félagsbréf - 01.05.1960, Page 21
PÉLAGSBRÉF 19 Og hann leggur af stað í leit að því, sem hann hafði þráð, og þegar tákn þess, fjallið á strönd draumlandsins, rís fyrir sjónum hans, biður hann vætti þess að taka sig í sátt. En það, sem hann heyrir sem svar hinna helgu vætta, eru gjallandi högg, þjöl og töng sem gæla við stál og hvæs heitra eggja í herzluþró. Og þá spyr hann sig sjálfan: „Hvar er þitt friðarathvarf, gróðurhlé/ þíns innsta draums og hjartans vörn?‘“ Og hann kemst að rau 1 um, að „í skjóli fjallsins er þrotlaust stríð í fyrirsát“ og undan því lífi verður eigi skotizt. Og skáldið bregzt jákvætt við því sem hann heyrir innan úr fjallinu og segir: „------Gef/þig sjálfan, gef þig allan dýrð og valdi/ lífsins, þér sjálfum, þú ert þetta líf,/ það sem þú vinnur til og færð að gjöf!“ Kvæðið endar því í einbeittri ákvörðun líkt og upphafskvæðið, hin forna þrá skáldsins eftir fegurð og sælu hefur hlotið skírslu sína, og nú ákveður hann að: slá í órofsönn ef ekki sverð, þá gullin stef á skjöldu! Og með bókinni lýkur áfanga í skáldskap Snorra Hjartarsonar, og ný við- horf bíða hans eins og fram kemur í næstu bók. III. Eins og ég sagði í upphafi, kom bókin Á Gnitaheiði út 1952; kvæðin eru því ort á fyrstu árum hins endurreista lýðveldis. Það var sögulegur tími bæði hér á landi og úti í heimi. Styrjöldinni var lokið, búið aðl sprengja fyrstu atómsprengjuna, og hinir öflugu bandamenn, sem sigrað höfðu nazismann og fasismann, sundruðust og mynduðu tvær gagnstæðar fylkingar, — austrið og vestrið, — sem síðan hafa háð kalt stríð. Eins og flest önnur ríki Evrópu sá ísland sig tilneytt að taka sér stöðu öð'ru hvoru megin og skipaði sér við hlið vestrænna ríkja. Þetta olli miklum pólitískum átökum hér á landi, þjóðin, sem staðið hafði saman sem einn raaður við stofnun lýðveldisins, klofnaði í andstæða hópa fáum missir- um síðar, og það öldurót, sem þá komst á þjóðlífið, hefur ekki lægt enn; í rauninni er þjóðin vopnlaus og fámenn milli tveggja elda og stendur frammi fyrir þeirri staðreynd, að hólminn, sem hún byggir, er í einni svipan orðinn þýðingarmikil þjóðbraut og hernaðarlega mikilvægur. Og erlent herlið hverfur ekki úr landinu. Yfir henni vofir ógn og tortíming en um leið blasa við nýir, heillandi möguleikar. Þessir umbrotatímar eru

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.