Félagsbréf - 01.05.1960, Side 26

Félagsbréf - 01.05.1960, Side 26
24 FÉLAGSBRÉF Það sem mér virðist skáldið eiga við cr þetta: Líf manns streymir fram. tíminn er kyrr, eins og segir á öðrum stað í kvæðinu Mig dreymir við hrunið heiðarsel. M. ö. o. allt er til, sem eitt sinn hefur gerzt, þess vegna er fuglmn sem flýgur hjá enn á sama stað, um alla framtíð. Þetta er hugsun, sem er utan við reynslusvið vort. metafýsikk. og tíminn er mér svo óræður, að ég voga.mér ekki lengra út í þessa sálma, en vildi henda á þetta atriði öðr- um til umhugsunar. Náttúru-lýrikk Snorra er fögur sem fyrr, en hlærinn, sem hún skilur eftir í hug lesandans, er nokkuð breyttur. málarinn í skáldinu er i'kki eins einráður, náttúrulýsingarnar og hugúr skáldsins fléttast nánar saman, þ.e.a.s. landslagið í sjálfu sér verður ekki eins áberandi hluti ljóðþins. skáldið notar það í ríkara mtfli til að bera boð frá hugsud sinni. Og nátlúru-ljóðin ráða ekki eins miklu um heildarsvip siðari bókarinnar og þeirrar fyrri, enda þótt þess beri að geta, að Snorri notar mjög mikið skírskotanir til náttúrunnar í ljóðum, sem fjalla um samtímann, og á þann hátt svífur hin mema skynjun skáldsins á fegurð hennar hvarvetna vfir vötnunum. Eg læt þá útrætt um síðari bók Snorra Hjartarsonar og vil ljúka þessu erindi mínu með nokkrum orðum um 1 jóðform skáldsins og stöðu í íslenzkri Ijóðagerð. IV. Ljóðform Snorra Hjartarsonar er svo mikið og margþælt efni eitl sér. að um það mætti lialda sérstakan fyrirlestur. Hér verð ég því að láta nægja að geta örfárra atriða, sem miklu ráða um yfirbragð Ijóða hans. Tungutaki, hrynjandi og öllum blæ Ijóðanna verður skiljanlega aldrei lýst fyrir öðrum að neinu gagni, hver og einn verður að skynja iþað sjálfur, þegar hann les ljóðin eða heyrir þau flutt; og ljóðform Snorra er þannig vaxið, að sum kvæðanna njóta sín bezt í upplestri, önnur ekki lil fulls nema lesin séu á bók. t.d. ljóðið Á Gnitaheiði. sem er þannig að formi. að augað þarf að> vera með í leiknum, þegar þess er notið. Ég geri ráð íyrir, að Jónas Hallgrímsson sé fyrsta ljóðskáld ítýrri tíma á Islandi sem yrkir samkvæmt ströngustu kröfum um mál og stíl, lætur tilviljun engu ráða um orðaval, lveldur vegur hvert orð og metur. áður en það fær sinn stað í kvæðinu. Eftir hans dag réð þó tilviljun og skyndiinnblástur úm of í viðskiptum skáldanna við málið; en með Einari Benediktssyni og Þorsteini

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.