Félagsbréf - 01.05.1960, Blaðsíða 34
32
FÉLAGSBRÉF
Hann er nefnilega með slæma lifur. Konan hans sagði mér það.
Barþjónninn beygði sig niður til að ná í sítrónflöskuna, ritstjórinn hélt
áfram við krossgátuna. Ungu mennirnir þrír úr bankanum gerðu hlé á
hlátrinum og horfðu allir á litla manninn. Stóri maðurinn kom alveg upp
að borðinu, tók sér stöðu við hliðina á ritstjóranum og hélt áfram að
horfa á mynd sína í speglinum.
Það er hægur vandinn að ráða krossgátur, sagði hann.
Þessi er nokkuð erfið, anzaði ritstjórinn og fékk sér sopa úr viskíglasinu.
Sumir halda sér levfist allt, sagði stóri maðurinn, hann lagði hendurnar
á barborðið, tók þéttu taki um brúnina og hvessti augun á sjálfan sig í
speglinum. Barþjónninn rétti litla manninum sítrónið sitt yfir borðið.
Tíu krónur, sagði þjónninn.
Ég borga, sagði ritstjórinn, þetta eru mínir gestir. Ykkur er óhætt að
biðja um hvað sem þið viljið.
Ungu mennirnir þrír úr bankanum voru aftur farnir að segja sögur.
Tveir Bretar komu inn og báðu um vodka, þeir voru að tala um gæsir, lax-
veiðar og rigningu. Þeir spurðu þjóninn hvers vegna ekki mætti alltaf
skjóta gæsir á Islandi.
Þú heldur það sé nóg að vera hortugur og hræða svo fólk með þessu
hlaði, sagði stóri maðurinn og horfði nú á ritstjórann, ég skal láta þig
vita að það eru til fleiri blöð. Og það eru ritstjórar sem mundu taka grein
um svínarí.
Þú getur fengið inni í mínu hlaði, sagði ritstjórinn, þú mátt skrifa hvað
sem þú vilt. Eg gæti lánað þér blýant og blað.
Litli maðurinn var kominn uppað barborðinu hinumegin við ritstjórann.
Barþjónninn reyndi að útskýra fyrir Bretunum hversvegna ekki mætti alltaf
skjóta gæsir á íslandi. Þeir hlustuðu þolinmóðir á hann og kinkuðu kolli
og hummuðu.
Lofaðu henni að koma niður og tala við mig, sagði litli maðurinn, það'
er allt sem ég bið um. Bara að tala við hana. Hún getur þá útskýrt málið
fyrir mér. Bara að tala við hana. Ég vil ekki beita neinn valdi. Ég vil ekki
fara í hart.
Þetta er svínarí, sagði stóri maðurinn, við gætum kallað á lögregluna.
Og við höfum talað við lögfræðing.
Ritstjórinn lagði frá sér krossgátuna og saup á viskíinu.